Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 40
Kannski er það skrítið áhugamál hjá ungu barni en þegar ég var lítil var
ég alltaf að endurskipuleggja
heimili foreldra minna. „Ef ég
var ein heima þá gátu foreldrar
mínir lent í því að koma heim
og ég búin að endurraða öllum
húsgögnum, færa heilt sófasett
yfir í hinn endann á stofunni og
endurskipuleggja eldhúsið,“ svar-
ar Elín Mjöll glettin þegar hún er
spurð út í upphafið að arkitekta-
áhuganum. „Pabbi studdi mig í
þessu og þegar mamma fór að
heiman skruppum við stundum
í Húsasmiðjuna og keyptum
málningu eða annað sem ég
hafði valið og svo máluðum við
heilu gangana. Mamma fékk svo
smá áfall þegar hún kom heim í
grænan gang.“
Innanhússarkitektúr var það
sem hin barnunga Elín Mjöll
ætlaði að verða, en það fór þó svo
að hún lærði síðar hefðbundinn
byggingaarkitektúr, fyrst í Lond-
on South Bank University og tók
svo meistaragráðu í greininni í
Danmörku, í The Royal Danish
Academy of Fine Arts, School of
Architecture.
Hún starfar í dag við fjöl-
breytt verkefni hjá arkitekta-
fyrirtækinu Yrki. „Ég er töluvert
í innanhússtengdum verkefnum
sem er mjög skemmtilegt en þar
þarf ég að velta fyrir mér endur-
skipulagningu rýma, hönnun
og húsgögnum sem passa inn í
rýmið, bæði hvað varðar útlit og
hagkvæmni.“
Elín Mjöll segist helst vilja lát-
lausa og rólega hönnun, hreinar
línur, form og liti. Hugmyndir
segist hún fá víða að. „Ég skoða
mikið í verslunum en er líka
dugleg að fara á netið og sjá hvað
framleiðendur eru að bjóða
upp á og einnig er ég áskrifandi
af nokkrum tímaritum sem
tengjast arkitektúr og hönnun.
Elín telur það mikilvægt að vera
samkvæmur sjálfum sér þegar
kemur að vali á húsgögnum eða
framkvæmdum á heimilinu. „Mér
finnst skemmtilegra að koma
inn á heimili hjá fólki sem hefur
eignast hluti sem hafa persónu-
lega þýðingu fyrir eigandann. Að
hluturinn hefur sögu að segja.“
Elín Mjöll sýnir hér hluti sem
eru í uppáhaldi hjá henni, bæði
hluti af heimilinu og þá sem hana
langar gjarnan að eignast.
Áhugamál frá barnsaldri
Elín Mjöll Lárusdóttir, arkitekt hjá Yrki arkitektastofu, velur látlausa, rólega hönnun, hreinar línur og form.
Þetta eru myndir sem sonur minn gerði af Pókemonkúlu.
Ég skannaði myndina inn, hreinsaði hana og lét prenta út
tvö plaköt.
Þessa bolla erfði
ég frá ömmu og
afa. Þeir voru mest
til skrauts hjá
ömmu og afa en
eftir að ég fékk þá
í minn hlut drekk
ég úr þeim kaffið
mitt á hverjum
degi.
Fyrstu ár okkar eiginmannsins míns bjuggum við saman
í London og þar leigir maður oftast íbúð með húsögnum.
því keyptum við engin húsgögn fyrr en við fluttum til
Danmerkur fyrir fimm árum. Þessi stóll er eitt af fyrstu
húsgögnunum sem við keyptum okkur. Við fundum hann
á danskri sölusíðu og hann hann kostaði um 250 krónur
danskar. Síðar komumst við að því að þetta væri Kai
Christiansen stóll.
Þennan hnött sem er einnig lampi keyptum við í Dan-
mörku. Af honum stafar hlýrri og góðri birtu og börnin
hafa gaman af því að skoða hann og fræðast um leið um
heiminn.
Ég myndi gjarnan vilja eignast fallegt gólfteppi á stofuna.
Ég hef verið að leita að gultóna og blátóna gólfteppi sem
myndi falla vel inn í litapallettuna í stofunni okkar. Það
eru til einstaklega falleg teppi frá Linie Design, til dæmis
þetta sem mér finnst mjög fallegt.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Elín Mjöll hefur haft arkítektúr að áhugamáli frá unga aldri. MynDir/EyÞór
Símaveski,
heyrnartól, snúrur
og allt fyrir
símann.
Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
8 KynninGArBLAÐ FóLK 6 . o K tó B E r 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
A
-9
7
C
8
1
D
E
A
-9
6
8
C
1
D
E
A
-9
5
5
0
1
D
E
A
-9
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K