Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 53

Fréttablaðið - 06.10.2017, Side 53
Fyrsta laugardag hvers mánaðar í vetur verða svokallaðir „pop up“ markaðir, eða eins og aðstand­ endur hafa kosið að kalla það, smá­ stundamarkaðir, haldnir í safnbúð Hönnunarsafnsins. Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2016, barnafatamerkið AS WE GROW, ríða á vaðið með sölu á sýnishorn­ um laugardaginn 7. október frá klukkan tólf til fimm. Þarna verður hægt að kaupa glás af vörum fyrir lítinn pening og mögulega hægt að koma heim með nýtt sett af fötum handa barninu. Þarna verða til að mynda peysur og kjólar á 5.000 kr., kápur á 5.500, buxur og skyrtur á 3.000 kr. Í umsögn dómnefndar um As We Grow segir: „Með vörulínunni tvinna eigend­ ur As We Grow saman fagurfræði, hefðir og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða. As We Grow byggir á ábyrgum umhverf­ issjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar. Tímalaus einfald­ leiki hönnunar og einstök gæði vöru hafa ásamt samfélagslegri ábyrgð og metnaðarfullri stefnu í umhverfis­ málum skapað fyrirtækinu sérstöðu heima og heiman.“ Hönnunarsafn Íslands er á Garða­ torgi í Garðabæ og þar er opið alla daga frá hádegi til klukkan fimm nema á mánudögum. „Smástundamarkaður“ með As We Grow í Hönnunarsafninu As We GroW byGGir á ábyrGum umhverfis­ sjónArmiðum oG Afstöðu GAGnvArt líftímA oG endinGu frAmleiðsluvöru á tímum ofGnóttAr. listafólk sem vert er að fylgjast með. Tónleikar með þeim eru jafnt veisla fyrir augu og eyru þar sem áhorfandinn er hrifinn inn í djúpið, glimmerið, myrkrið, glamúrinn, óskilgetna hugaróra og taumlausan dans. Hvað? Svavar Knútur Hvenær? 22.00 Hvar? Dillon, Laugavegi Svavar Knútur slær á létta strengi á Dillon. Hvað? Agent Fresco Hvenær? 22.00 Hvar? Græni hatturinn, Akureyri Eftir vel heppnaða útgáfu á Destr­ ier, annarri breiðskífu Agent Fresco, hélt sveitin í tónleika­ ferðalag um Evrópu. Hitaði hún upp fyrir sænsku hljómsveitina Katatonia sem er heimsfræg innan metalsenunnar. Síðasta árið hefur sveitin því haldið sárafáa tónleika hérlendis en nú er komið að tónleikum á Græna hattinum. Viðburðir Hvað? Vetrarstarfið hefst með kynn- ingarfundi Hvenær? 20.00 Hvar? Lífspekifélagið, Ingólfsstræti Opið öllum áhugasömum. Hvað? Sýningaropnun og blysför til heiðurs Benedikt Gröndal á fæðingar- degi skáldsins Hvenær? 16.30 Hvar? Gröndalshús, Fischersundi Landsbókasafn Íslands­Háskóla­ bókasafn og Reykjavík Bók­ menntaborg UNESCO verða með sameiginlegan viðburð á fæð­ ingar degi skáldsins í dag. Þá verð­ ur farin blysför frá húsi skáldsins í Fischersundi þar sem skáldið Þórarinn Eldjárn segir frá blysför sem farin var að húsi Gröndals á áttræðisafmæli hans árið 1906, en nemendur hans úr Lærða skól­ anum fóru þá blysför. Einnig mun Sigurður Skúlason leikari lesa ljóð eftir Gröndal. Hvað? Stofublóm Inniblóm Potta- blóm Hvenær? 16.00 Hvar? Bryggjan Brugghús, Granda- garði Kristín Dóra Ólafsdóttir (1992) útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2017 og er Stofublóm Inniblóm Pottablóm hennar fyrsta einkasýning að námi loknu en sú fjórða á ferlin­ um. Hún vinnur með tilfinningar og samfélagið í verkum sínum og á þessari sýningu fjallar hún um nýfengna ást sína á inniplöntum. Hvað? Elastic Hours / Teygjanlegir tímar Hvenær? 17.00 Hvar? Kling & Bang, Grandagarði Listamenn sem sýna í Kling & Bang eru Anna K.E. & Florian Meisenberg, Ásgerður Birna Björnsdóttir, Rebecca Erin Moran, David Horvitz, Eduardo Navarro, Nancy Lupo, Sara Magenheimer, og Una Sigtryggsdóttir. Á opnun­ inni verður framin samhæfing við sólina eftir Eduardo Navarro, In collaboration with the Sun. Gerum betur Landsfundur VG Grand hótel 6.–8. október 2017 Barnamerkið As We Grow ríður á vaðið í mánaðarlegum fatamarkaði Hönn- unarsafnsins. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 29F Ö S T U D A g U R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 7 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E A -7 5 3 8 1 D E A -7 3 F C 1 D E A -7 2 C 0 1 D E A -7 1 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.