Fréttablaðið - 06.10.2017, Blaðsíða 58
Ekki lofa upp í ermina
Elsku Hrúturinn minn. Það er viss ró í kringum
þig, en svo ótalmargt í uppsiglingu. Þetta er
algjörlega þinn mánuður vegna þess að fullt
tungl í Hrútsmerkinu er á þessum mánuðum.
Þú hefur brennandi þrá til að ná árangri en
minni þrá eftir athygli, en mundu að svolítið
samasemmerki er á milli árangurs og athygli.
Að gefast upp er ekki til í þinni orðabók og
þú hefur stundum sagt: „Ég er þreyttur, upp-
gefinn, búinn á því,“ en aldrei: „Ég gefst upp,“
hvort sem það er í veikindum, starfi, skóla
eða ást. Næsti mánuður segir þér að vera
staðfastur og trúa á það sem þú ert að fram-
kvæma. Margir munu leita hjálpar hjá þér en
ekki lofa einhverju sem þú veist að þú getur
ekki staðið við. Aðstæður munu svo myndast
sem hjálpa þér að losa þig við þær persónur
sem gefa þér ekki leyfi að vera þessi litríki
karakter sem þú ert. Þú hefur of mikla orku til
að hanga eða hangsa.
Mottó: Ég mun sigra!
Spáin gildir fyrir október
Lengri útgáfa af stjörnuspá á
visir.is/SiggaKling
Októberspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Spáin birtist fyrsta föstudag hvers mánaðar.
Passaðu að útkeyra þig ekki
Elsku Nautið mitt. Þú hefur verið undir miklu
álagi í dálítinn tíma, en ég er með nýtt orð
fyrir þig yfir álag, það kallast bara lífið! Þér
hafa fundist aðstæður í kringum þig hafa
verið afskaplega erfiðar en ef þú hugsar til
baka þá hefur þú gengið í gengum miklu meiri
erfiðleika en núna. Fólk hefur það álit á þér
að þú sért svo ofboðslega heppin persóna
en sannleikurinn er sá að þú hefur unnið
hörðum höndum og það hefur komið þér
á þann stað sem þú ert á núna. Allt sem þú
hefur gert er svo 100% gert, svo það er best
fyrir þig að taka ekki allt of mikið að þér í
einu. Ef þú gerir það klárar þú bara batteríin.
Ef þú ert að taka stóra ákvörðun núna um
breytingar, skoðaðu þá hvað innsæi þitt segir
þér; ef þú færð kvíðahnút í solar plexus þýðir
það: „Nei.“ Ef við ætlum að spjalla aðeins um
ástina þá er staðreyndin sú að þú verður ekki
oft ástfangið, en elskar af öllu hjarta og helst
til eilífðar. Mottó: Hafðu trú, það er lykillinn.
Þetta reddast alltaf
Elsku Tvíburinn minn, þú alheimsins mið-
punktur! Þú ert miðpunktur þótt þú sért bara
með sjálfum þér á rigningardegi. Þú elskar
músík og lífgar alltaf upp á umhverfi þitt með
skemmtilegum uppátækjum og kaldhæðnum
húmor. Þú staldrar samt yfirleitt stutt við
í partíum eða boðum því þér hættir til að
leiðast og þótt þú sért mannfælinn og lok-
aður hefur þú samt þann einstaka hæfileika
að veita öðrum andlega upplyftingu. Það býr
í þér listamaður hvað svo sem þú gerir. Núna
þegar veturinn gengur í garð þarftu að muna
að hafa sumarið í hjarta þínu og finna út hvað
tengir þig við þá tilfinningu, því þá byrja hlut-
irnir að gerast. Þú vinnur svo vel undir stressi
að það er magnað hversu mikið getur gerst
á síðustu stundu hjá þér. Svo hafðu engar
áhyggjur því að þetta reddast alltaf. Það er
þér ómögulegt að vera með maka sem gerir
allt sem þú segir eða óskar og þú stjórnar. Þá
færðu leiða. Mottó: Þú ert krafturinn.
Hafðu meiri trú
Elsku Ljónið mitt. Þér finnst líf þitt stundum
fara úr skorðum. En það er svolítið út af því
að þú hefur svo mikið ímyndunarafl og þú
átt það til að fyllast hugljómun sem þýðir að
ef þú ert spennt fyrir einhverju leggurðu þig
1000% fram og talar stöðugt um það sem
heillar þig. Það er gott fyrir þig að hinkra að-
eins og slaka á huganum, taka svo ákvörðun
um hvað er best fyrir þig. Þú hefur þennan
skemmtilega keppnisanda og þolir alls ekki
stöðnun svo hefðbundin vinna frá 8-4 er
eitur í þínum beinum. Hafðu meiri trú á því
að þú getir gert það sem þú vilt. Settu þér
samt tímamörk svo þú frestir ekki og frestir
því sem þú ætlar að gera. Því þá verðurðu enn
þá meira pirrað út í sjálft þig og getur lent í
vítahring. Næstu vikur munu sýna þér hvað
í þér býr, því þegar þú þarft að vera sterkt þá
er eins og þú fáir tvöfalt afl. Þú munt koma
sjálfu þér á óvart og þessi atburðarás mun
svo halda áfram næstu sex mánuði.
Mottó: Ég er ógleymanlegt.
Mundu að segja „takk fyrir“
Elsku hjartans umhyggjusama Meyjan mín.
Þú þarft að vita það að þú getur treyst á
sjálfa þig skilyrðislaust og öðlast meiri trú á
eigin verðleikum. Það eru alltaf einhver öfl í
kringum þig sem vilja draga þig niður svo þú
skínir ekki svona skært. Það er búin að vera
mikil umbylting í kringum þig, og þú hefur
kastað mörgum hugmyndum út í alheiminn.
En í augnablikinu virðist allt standa kyrrt, það
er ekki nógu mikið um svör þannig að þú átt
það til að finnast þú vera svolítið dofin. Það
mun bjarga þér gjörsamlega að vita að það er
fullt tungl í Hrút núna í byrjun október og það
gefur vinnusemi og kjark. Þú skalt nýta þér
þennan kjark til að sparka áfram því sem þú
vilt að breytist. Ég hef trú á að þú sért að fara
inn í tíma sem munu breyta hamingju þinni
og láta þér líða betur, þú átt eftir að sjá að í
þér býr virkilega góð manneskja sem er annt
um marga. Þú skalt svo halda þakklætisdag
þar sem þú hringir í fólk og segir: „Takk fyrir.“
Mottó: Frelsaðu hugann.
Hamingjan er í sjálfri þér
Elsku hjartans smarta Vog. Þú ert svo sannar-
lega að fara inn í spennandi upphaf í lífi
þínu og mjög margt mun koma þér á óvart
og hefur komið á óvart á síðustu dögum. Í
þér býr svo gömul sál, sem vill að allt í kring
sé með friði og spekt. En þú þráir að hafa
spennu, en samt þennan dásamlega frið og
það getur verið erfitt að ná jafnvægi í því. Í
kringum þetta tímabil, sem þú ert að hlaupa
inn í, muntu finna fyrir titringi í hjarta þínu
og ástarskjálfta. Á þessu tímabili muntu
finna nýjar leiðir sem gefa þér hamingju, en
hamingjan er fólgin inni í sjálfri þér – ekki í
peningum, veraldlegum hlutum eða háskóla-
gráðum. Í öllum þessum hraða sem þú ert að
fara í, þá þarftu að takmarka allt það vesen
sem þú getur svo sannarlega lokað fyrir. Þú
hefur það eðlisfar að vera bæði ströng og blíð
og þar af leiðandi sveiflast tilfinningar þínar
eins og veðurfarið á Íslandi, ekki dæma þig
fyrir það. Við hin elskum svona fólk eins og
þig. Mottó: Kveiktu elda.
Haltu í draumana þína
Elsku hjartans merkilegi Sporðdrekinn minn.
Þú ert ekki alveg viss allar stundir um hvort
þú ert að koma eða fara, hvað þú vilt eða
hvað þú vilt ekki. Það er svo sem í lagi en
hafðu undirstöðurnar þó alveg á hreinu.
Fyrsta setningin til þín er: „Passaðu upp
á sjálfan þig og vertu viss um að þú sért
sú manneskja sem þú heldur sjálfur mest
upp á.“ Slepptu alls ekki taki á draumunum
þínum, því það eru svo sannarlega margir
draumar sem hafa ræst og það væri mjög
gott fyrir þig að skrifa niður alla þá gleði og
hamingju sem þú hefur fengið og verðskuld-
að á síðustu þremur árum, því annars kemur
hin niðurdrepandi tilfinning að draga sig í hlé
og festast í því að vorkenna sjálfum sér. Ef
þér finnst ekkert vera að gerast í ástinni og
enginn að láta hjarta þitt slá örar (eins og það
á svo sannarlega skilið) þá ertu ekki á réttum
stað í ástinni. Næstu þrír mánuðir gefa þér
það að ef þú ert á jákvæðri tíðni, þá færðu
ótrúlega möguleika til að skrifa skemmtilega
kafla. Mottó: Þú ert litríkur eins og vindurinn.
Hafðu húmor
Elsku magnaði Bogmaðurinn minn. Opnaðu
augun aðeins betur og þá sérðu að þú ert
að fara hárrétta leið. En varastu að hafa of
marga bolta á hendi og of marga mögu-
leika opna því þá gefurðu sjálfan þig ekki
allan í það sem þú tekur þér fyrir hendur.
Hentu allri reiðinni sem þú hefur í hjartanu
eins langt og þú mögulega getur, því reiði
út í sjálfan þig eða aðra getur sett ský yfir
höfuðið á þér og þar sem er ský kemur
rigning og þar sem er rigning er lægð. Næstu
fimm mánuðir eru mest hvetjandi mánuðir
til afreka sem hafa komið í langan tíma.
Útkoma þess sem þú hefur óskað þér nær
samt ekki hámarki fyrr en á næsta ári, 2018.
En þú ert að byggja svo sterkar undirstöður
fyrir framtíðina að það er lágmark að klappa
fyrir sjálfum þér. Þér finnst fjárskortur vera
að stoppa þig, svo leitaðu annarra leiða því
þær eru miklu nær þér en þú heldur. Þér mun
reynast auðvelt að ná þeim frama sem þú
vilt næstu mánuði. Mottó: Hafðu húmorinn
með þér í liði, þú ert ekki fúll á móti.
Ekki leika þér að ástinni
Elsku Krabbinn minn. Þú ert svo skemmtilega
opinn og upplífgandi, en samt svo ofurvið-
kvæmur eins og lítill spörfugl. Þú getur verið
svo rosalega harður og ákveðinn en í raun
ertu eins og mjúkur koddi. Þú gerir allt til að
tryggja ást og öryggi og í þeirri flóðbylgju
þarftu að skoða að ef þú hefur ást á pening-
um þá hindrar það þig í hamingjunni og gerir
þig hræddan. Þegar þú sérð að hamingjan
er fólgin í manneskjum en ekki veraldlegum
hlutum þá mun hamingjan flytja heim til
þín! Þú ert mjög vinsæll og skemmtilegur en
lendir eða setur þig of oft í dramatískar að-
stæður sem þú getur ekki flúið úr. Ef þú ert að
leita að ástinni, jafnvel nýbúinn að finna hana
að þér finnst, þá er þín innsta þörf að hafa
maka sem þekkir galla þína og elskar þá: sem
sagt skilningsríkan maka. Ef hann er fundinn
þá ertu hólpinn. Ef þú vilt sigra í ástinni þá
máttu ekki leika þér að henni því þá er ástin
ekki sönn. Mottó: Brostu framan í lífð.
Orkustraumar í október
Elsku hjartans duglega Steingeitin mín. Þú
hefur unnið svo marga sigra og ert með
sigurvegaramerkið um hálsinn, ekki breyta
því merki í hengingaról og láta orku Stein-
geitarinnar draga þig niður í kassalaga Excel-
pakka. Þær manneskjur sem hafa hjálpað
mér að ná mestum árangri í lífinu hafa verið í
þessu merki. Láttu ekki uppgjör, sama hvaða
nöfnum það nefnist, þurfa að gerast til að
þú breytir lífsstefnu þinni eða skorir sjálfa
þig á hólm og gerir það sem byggir upp sál
þína. Það er svo algengt að þú sleppir þér
ekki lausri fyrr en liðið er á miðja ævina.
Öryggi, öryggi, öryggi er þér of mikilvægt, en
heftir þig í að gera það sem þú í raun og veru
treystir þér til. Októbermánuður sendir þér
mikla strauma af orku og hvatvísi og sérstak-
lega byrjun október getur gefið þér nægilegt
hugrekki til að margfalda allt sem þú getur
fyrir. Ekki hugsa of langt fram í tímann vegna
þess að þú heldur að þú neyðist til þess. Og
þú þarft heldur ekki fimm háskólagráður til
að vera fullkomin. Mottó: Ástin er allt.
Veröldin mun verðlauna þig
Elsku Vatnsberinn minn. Þú ert svo ólíkur
fjöldanum en samt svo dásamlega þægi-
legur. Þú átt það til að vera dálítið stressaður
og núna ertu bara búinn að vera með lokuð
augun í einhvern tíma. Þú horfir fram hjá
vandamálunum sem er samt góður hæfi-
leiki. En þú þarft að kveikja á háu ljósunum
á þessum tímapunkti og skoða vel í kringum
þig. Horfast í augu við vandamálin því núna
er hárréttur tími. Þú hefur svo frjálsan og
ferskan anda og elskar rómantík. Svo skoð-
aðu aðeins í kringum heimili þitt eða þar sem
þú býrð, hefur það rómantískan blæ? Ef það
hefur það ekki þá ertu að villast. Þú átt eftir
að sýna svo mörgum hvað þú ert rausnarleg-
ur og gjafmildur og í hvert skipti sem þú gefur
muntu fá tvöfalt til baka. Kannski ekki á þeim
tíma eða frá þeirri persónu sem þú bjóst við,
heldur mun veröldin verðlauna þig því þú ert
að fara að ganga inn á verðlaunapallinn! Þú
ert að fara inn í rómantískan tíma sem mun
standa yfir í marga mánuði og jafnvel fram á
vor. Mottó: Kveiktu á kertinu og lífinu.
Leitið og þér munuð finna
Elsku Fiskarnir mínir. Það er svo sannar-
lega hægt að segja að húmor og hugvit séu
ykkar einkenni. En þið þurfið að tengja þetta
tvennt saman, hafa húmor fyrir hugvitinu
og hafa hugmyndir fyrir húmorinn, því þið
sveiflist á skalanum 1-10 frá því að finnast
allt alveg frábært og yfir í það að finnast
enginn tilgangur í því sem er að gerast. Næstu
mánuði þarftu bara að hafa eina setningu
hugfasta: „Slakaðu á eða slappaðu af.“ Það er
engin manneskja eins afslöppuð týpa eins
og fólk í Fiskamerkinu. Hindranirnar eru bara
ímyndun og ef þú kemst ekki þangað sem
þú vilt munu þér bjóðast betri möguleikar.
Það eru góðar fréttir að berast af fólki sem
er þér mjög nákomið og það mun efla kraft
þinn. Ef þig langar í ástina og ert ekki búinn
að ná miðjum aldri þá eru margir heitir reitir
búnir að vera í kringum þig, þú hefur þessa
dásamlega ástríðufullu útgeislun. Ekki bíða ef
þú ert að leita. „Leitið og þér munuð finna“
eru skilaboðin fyrir næstu mánuði. Mottó:
Slappaðu af!
6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r34 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Lífið
0
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
A
-8
8
F
8
1
D
E
A
-8
7
B
C
1
D
E
A
-8
6
8
0
1
D
E
A
-8
5
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K