Fréttablaðið - 06.10.2017, Page 64

Fréttablaðið - 06.10.2017, Page 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Ég hef verið með Framsóknar-flokkinn á bakinu í 46 ár og er orðinn ansi þreyttur á honum. Ég er varla einn um þetta enda flokkurinn hundrað ára meinsemd og fólk streymir nú úr honum sem aldrei fyrr. Flóttafólkið mætti þó hafa í huga að hvert sem maður fer tekur maður sjálfan sig alltaf með. Ég fæddist daginn sem Viðreisnar- stjórnin féll. Við tóku „Framsóknar- áratugirnir“ og flokkurinn var í ríkisstjórnum frá 1971 til 1991. Öll mín mótunarár. Orsakasamhengið er augljóst og ég kenni flokknum, frekar en sjálfum mér, um að ég er þunglyndur alkóhólisti og útbrunn- inn blaðamaður. Ég fæddist nefnilega inn í Fram- sóknarflokkinn. Hef aldrei verið skráður í hann og hef því ekki getað skráð mig úr honum. En hef eytt allri minni ævi í að sverja hann af mér. Ég er skírður í höfuðið á afa mínum. Hann sat á þingi fyrir flokkinn í nítján ár og ritstýrði mál- gagni hans í rúma hálfa öld. Afi var Tíma-Tóti og vann náið með Hriflu- Jónasi, Hermanni, Eysteini, Óla Jó. og Steingrími. Ég var ekki orðinn eins árs þegar tíu miðar frá happdrætti Félags ungra framsóknarmanna duttu óumbeðnir inn um bréfalúguna hjá ungum foreldrum mínum. Ég bara fæddist inn í flokkinn! Mér var strítt í æsku og fyrsti tengdapabbi minn úrskurðaði mig ónýtan til undaneldis. Kærði sig ekki um barnabörn sem bæru hinn arfgenga og ólæknandi framsóknar- vírus. Nokkuð hefur dregið úr fram- sóknarofsóknunum á hendur mér í seinni tíð og sem betur fer deyja þeir nú hratt út sem tengja nafn mitt við flokkinn. Mér finnst samt að við ættum að gefa Framsóknarflokknum frí og leyfa mér að eiga áhyggjulaust ævi- kvöld. Ég og þjóðin öll eigum eftir 100 ár skilið að fá að vera við sjálf. Í friði fyrir Framsókn. Framsókn og ég Þórarins Þórarinssonar BAkþAnkAR FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is TEMPUR® Hybrid Hönnuð fyrir sneggra viðbragð TEMPUR® Contour Hönnuð fyrir meiri stuðning TEMPUR® Cloud Hönnuð fyrir meiri mýkt A F S L ÁT T U R 25% LOKAHELGIN T E M P U R-D A G A R MicroTech frá Tempur Fyrir þá sem kjósa Tempur® á betra verði AÐ SOFA ER EITT – AÐ HVÍLAST ER ANNAÐ ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR MEÐ 25% AFSLÆTTI – LÝKUR Á MORGUN LAUGARDAG Nýjar gerðir og fjölbreytt úrval heilsukodda Q U I C K R E F R E S H ™ Á K L Æ Ð I Rennilás gerir það afar einfalt er að taka Quick­ Refresh áklæðið af TEMPUR dýnunni og þvo. NÝ VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA, VESTURBERGI, ARNARBAKKA, GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI 365.is 0 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E A -4 D B 8 1 D E A -4 C 7 C 1 D E A -4 B 4 0 1 D E A -4 A 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 5 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.