Fréttablaðið - 10.10.2017, Qupperneq 4
Veður
Austlæg átt 5-13 m/s í dag. Þurrt að
mestu vestan- og norðanlands, en
rigning annars staðar, einkum á Suð-
austurlandi. Vaxandi norðaustanátt
við suðausturströndina í kvöld.
SJÁ SÍÐU 26
Slakað á í skólanum
Um 100 ungmenni á aldrinum sex til sextán ára komu saman í Björtuloftum í Hörpu í gær til að hugleiða í þrjár mínútur. Um var að ræða nemendur
frá mismunandi grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og var viðburðurinn á vegum styrktarfélagsins Jógahjartað. Vildi félagið með þessu vekja
athygli á hugleiðslu sem leið til að skapa innri frið og draga úr kvíða, streitu og vanlíðan. Framtakið mælist vel fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LISSABON
16. nóvember í 3 nætur
Netverð á mann frá kr. 89.995 m.v. 2 í herbergi.Hotel Altis Grand
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
89.995
m/morgunmat
á 5 stjörnu
hóteli
GLÆSILEGT
FJÖLMIÐLAR Samruni Vodafone og
365 miðla, sem felur í sér kaup Fjar-
skipta hf. á öllum eignum og rekstri
365 miðla, að Fréttablaðinu og
tímaritinu Glamour undanskildum,
var samþykktur í gær. Málinu lauk
með sátt milli Fjarskipta og Sam-
keppniseftirlitsins sem felur í sér
að Samkeppniseftirlitið samþykkir
samrunann með skilyrðum. Sam-
hliða gerði Samkeppniseftirlitið sátt
við 365 um eignatengsl á fjölmiðla-
markaði sem af samrunanum leiðir.
Samrunaaðilar skuldbinda sig
til að ráðast í aðgerðir til að tryggja
samkeppni á fjarskipta- og fjöl-
miðlamarkaði. Aðgerðirnar eru
meðal annars að Vodafone er gert
skylt að selja nýjum og smærri
keppinautum mikilvægar sjón-
varpsrásir í heildsölu.
Eftir samrunann verða 365 miðlar
og Vodafone keppinautar en 365
jafnframt stór hluthafi í Voda-
fone og því hafa 365 miðlar skuld-
bundið sig til að rjúfa eignatengsl
milli Fréttablaðsins og Vodafone
innan þrjátíu mánaða. Það gerir að
verkum að 365 miðlar þurfa innan
þessa tímaramma annaðhvort að
selja rekstur Fréttablaðsins eða
eignarhlut sinn í Vodafone. – smj
Sátt um
samruna
Ingibjörg Pálmadóttir, forstjóri 365,
og Stefán Sigurðsson, forstjóri Voda-
fone. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Konu, sem fékk slæma
áverka á höfði þegar gaskút var kastað
á tjald þar sem hún lá sofandi á úti-
hátíð, hafa verið dæmdar ríflega 3,7
milljóna króna bætur úr ríkissjóði.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur að konan hafi verið
gestur á útihátíð á Rangárvöllum við
Hellu í júlí 2012. Hún bar fyrir dómi
að hún og maður sem með henni var
hefðu farið að sofa í tjaldi sínu. „Hún
hefði vaknað um morguninn og
fundið að hún var alblóðug og með
skurð á enninu. Þá hafi verið blóð á
tjaldhimninum,“ segir um frásögn
konunnar.
Þá segir konan að vitni á staðn-
um hafi komið til hennar og bent á
menn sem hefðu verið að kasta gaskút
á milli sín nálægt tjaldinu. „Hún hefði
farið og talað við mennina og þeir
hefðu beðið hana afsökunar.“
Konan kærði atvikið til lögreglu
sem felldi málið niður. Jafnframt leit-
aði hún til bótanefndar ríkisins sem
sagði óvissu um málsatvik og hafnaði
kröfu hennar árið 2015. Stefndi hún
þá ríkinu. Fyrir dómi var lagt fram
vottorð taugasálfræðings um per-
sónuleikabreytingar sem orðið höfðu
á konunni vegna áverkans.
„Áður hafi hún verið skvísa og
farið út á meðal fólks og tekið þátt í
viðburðum, en nú nenni hún ekki að
mála sig eða taka þátt í viðburðum,
fari minna út. Það spili inn í hve þreytt
hún verði þegar áreiti er mikið,“ segir
í vottorði taugasálfræðingsins sem
kveður hana bæði hafa gefist upp í
líkamsrækt og hestamennsku.
Þá kvarti konan undan minnis- og
einbeitingarerfiðleikum. „Á ferða-
lögum verði hún mjög þreytt og þurfi
þá mikinn svefn að þeim loknum.
Hún reyni því að ferðast sem minnst.“
Sömuleiðis séu til staðar líkamleg
einkenni eins og dofi í andliti og höfði,
þrálátur höfuðverkur, stirðleiki í hálsi,
úthaldsskortur, skert lyktarskyn, jafn-
vægiserfiðleikar, svimi og yfirliða-
kennd. Hún eigi erfitt með að átta sig
á hvað fólk sé að segja, verði pirruð og
hafi minni sjálfstjórn. Hún hafi dregið
sig í hlé félagslega. „Að sumu leyti hafi
lífið verið tekið frá henni.“
Tveir menn sem voru að kasta gas-
kútnum á milli sín neituðu báðir að
kúturinn hefði lent á tjaldi. Sjúkra-
gæslumenn sem komu á staðinn
sögðu að á vettvangi hefði verið talað
um að einhver hefði lamið í tjaldið
með áhaldi, gaskút eða öðru eða að
gaskút hefði verið kastað.
Tveir dómkvaddir matsmenn
sögðu að atburður eins og konan
lýsti væri vel til þess fallinn að valda
þeim einkennum sem hún hafi lýst.
Í málsvörn ríkisins sagði að ekki
væri sannað að refsiverður verknaður
hefði verið framinn og hann valdið
áverkum konunnar. Þar sem ekki
hafi verið höfðað sakamál á hendur
þeim grunuðu sé ekki hægt að byggja
á því að þeir hafi valdið áverkunum.
Til þess að heimilt sé að greiða bætur
þurfi ríkið að eiga kröfu á einhvern
sem framið hafi refsiverðan verknað.
Dómurinn segir hins vegar
að nægar líkur hafi verið leiddar að
því að konan „hafi hlotið meiðsl sín af
því að verða fyrir gaskút sem óþekktur
aðili hafi kastað frá sér og að hátt-
semi hans yrði metin til sakar“. gar@
frettabladid.is
Ný persóna eftir að hafa
fengið gaskút í höfuðið
Ríkið á að greiða konu sem fékk höfuðhögg á útihátíð ríflega 3,7 milljónir í
bætur. Lögregla felldi rannsókn niður og bótanefnd hafnaði kröfu konunnar en
héraðsdómur segir hana fórnarlamb saknæms verknaðar óþekkts aðila.
„Besta úthátíðin“ var haldin við Hellu árin 2011 og 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Áður hafi hún verið
skvísa og farið út á
meðal fólks og tekið þátt í
viðburðum, en nú nenni hún
ekki að mála sig eða taka
þátt í viðburðum.
Úr dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
HEILBRIGÐISMÁL „Það stefnir í met
í fjölda meðferða með steinbrjóti á
Landspítala,“ segir á vef spítalans.
„Um 250 meðferðir við nýrna-
steinum hafa verið árlega með stein-
brjóti en þörfin hefur farið vaxandi.
Árið 2016 voru yfir 340 meðferðir
og Landspítali endurnýjaði stein-
brjótstækið sumarið 2017,“ segir á
landspitali.is.
Steinbrjótstæknin felst í að hljóð-
höggbylgjum er safnað saman í
lítinn punkt þar sem steinn er og
þær sundra honum án opinnar
skurðaðgerðar. „Fyrir daga þess-
arar tækni voru opnar aðgerðir til
að fjarlægja nýrnasteina algengustu
aðgerðir þvagfæraskurðlækna en nú
er þjónustan á göngudeildarformi
og þjóðhagslegur ávinningur gríðar-
legur þar sem ekki kemur þá til inn-
lagnar.“ – gar
Hafa aldrei
sundrað fleiri
nýrnasteinum
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-1
C
6
4
1
D
E
F
-1
B
2
8
1
D
E
F
-1
9
E
C
1
D
E
F
-1
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K