Fréttablaðið - 10.10.2017, Qupperneq 22
FÓTBOLTI Draumur heillar þjóðar
rættist á Laugardalsvelli í gærkvöldi
þegar strákarnir okkar tryggðu sér
sæti í úrslitakeppni HM í fyrsta sinn
í sögu Íslands. Um leið varð Ísland
langfámennasta þjóð sögunnar til
að eiga fulltrúa á stærsta sviði knatt-
spyrnunnar. Sjálfsagt eru margir
sem töldu aldrei raunhæft að þessi
stund myndi aldrei renna upp en
hún gerði það á blautu mánudags-
kvöldi í Laugardalnum í október. Og
hún var engu lík.
Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann
Berg Guðmundsson voru hetjur
Íslands þetta kvöld en þeir tryggðu
Íslandi 2-0 sigur gegn Kósóvó í
lokaleik riðlakeppninnar. Þar með
sigur í I-riðli og langþráðan farseðil
á lokakeppni HM, sem fer fram í
Rússlandi næsta sumar. Eftir ótrú-
legt sumar í Frakklandi í fyrra sýndu
okkar menn að árangurinn var
engin tilviljun, þvert á móti aðeins
upphafið á vegferð sem enn sér ekki
fyrir endann á.
Taugarnar þandar
Þolinmæði var nauðsynleg en á
kvöldi þar sem taugar heillar þjóðar
voru útþandar virtist það síður en
svo auðvelt. En það kom í ljós að
okkar menn voru líklega rólegustu
mennirnir í Laugardalnum í gær.
Ísinn brotnaði á 40. mínútu þegar
Gylfi Þór sýndi enn og aftur snilli
sýna og skoraði eftir frábært ein-
staklingsframtak.
Eins marks forysta var þó varla
nóg til að leyfa sér að anda léttar.
Þar til á 68. mínútu er Jóhann Berg
skoraði annað mark Íslands, eftir
Litli knattspyrnurisinn til Rússlands
Ísland vann í gær eitt sitt allra stærsta íþróttaafrek í sögu þjóðarinnar er karlalandsliðið í fótbolta tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni
HM, sem fer fram í Rússlandi næsta sumar. Árangurinn á EM í Frakklandi var engin tilviljun og strákarnir ætla sér enn stærri afrek.
Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fagna hér sæti á HM í Rússlandi næsta sumar eftir að liðið hafði unnið frábæran sigur á Kósóvó á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Aron Einar eftir leik
„Það er mikill tími sem hefur
farið í að hugsa um
þetta markmið.
Markmiðinu er
náð og þetta
markmið var
sett eftir leikinn
sem við töp-
uðum gegn Króatíu
úti í umspilinu,“ sagði Aron
Einar, landsliðsfyrirliði.
„Menn voru mikið niðri þá
og við settum það markmið
að komast á HM 2018 og við
gerðum það. Við komumst yfir
Króatana og það var dálítið sætt.
Þetta var tilfinningaþrungin
stund. Þetta var kærkomið en
þetta var erfið fæðing.“
ÍSLAND 2– 0 KÓSÓVÓ
Frammistaða Íslands (4-5-1)
Hannes Þór Hallórsson 7
Birkir Már Sævarsson 7
Kári Árnason 8
Ragnar Sigurðsson 8
Hörður Björgvin Magnússon 7
Jóhann Berg Guðmundsson 9
Aron Einar Gunnarsson 9
(78. Sverrir Ingason -)
Emil Hallfreðsson 8
(89. Rúnar Már Sigurjónsson -)
*Gylfi Þór Sigurðsson 9
Birkir Bjarnason 7
Jón Daði Böðvarsson 7
(61. Alfreð Finnbogason 7)
Maður leiksins:
Gylfi Þór Sigurðsson
Besti fótboltamaðurinn á
vellinum sýndi gæði
sín enn og aftur.
Skoraði mikil-
væga markið
sem braut ísinn
og „bossaði“ svo
miðjuna með stæl.
Magnaður leikmaður
sem sýndi snilli sína líka þegar
hann lagði upp seinna markið fyrir
Jóhann Berg Guðmundsson eftir
laglegan fótboltadans í teignum.
1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (40.), 2-0 Jóhann Berg Guðmundsson (69.).
Skot (á mark): 11 (7) – 3 (1). Horn: 4– 2. Rangstöður: 0 – 2.
Gylfi Þór eftir leikinn
„Frábært að við stóðumst press-
una. Það er erfitt að lýsa þessu
og þetta er eitthvað sem okkur
er búið að dreyma um síðan
maður var lítill krakki,“ sagði
Gylfi Þór Sigurðsson eftir leik.
„Það var mikið af fólki sem hélt
að við værum búnir eftir EM, að
við myndum hrynja niður og
myndum ekki ná sama árangri.
Það gerir þetta enn sætara að ná
að sýna að við erum meiri kar-
akterarar en bara eitt stórmót.
Þetta er mikið stærra. Nú spilum
við bestu lönd í heiminum,
mikið stærri keppni og þetta er
næstum því eins stórt og þetta
gerist. HM er toppurinn,“ sagði
Gylfi kátur.
stoðsendingu Gylfa. Fögnuðurinn
var gríðarlegur og léttirinn ekki
minni. Ísland hafði oft spilað betur
en í þessum leik, en það skipti engu
máli. Ísland hafði tekist hið ómögu-
lega.
Sigurvegarinn Heimir
Sigurvegari gærkvöldsins var
Heimir Hallgrímsson, landsliðs-
þjálfari. Verkefni hans var ekki auð-
velt. Eftir ótrúlega velgengni á EM í
Frakklandi, þar sem Íslendingar
urðu eftirlæti knattspyrnuheims-
ins og Lars Lagerbäck oftast þakkað
sem arkitekt þeirrar velgengni, stóð
Heimir einn eftir í brúnni og fékk
í hendurnar stærsta verkefni sem
nokkrum íslenskum þjálfara hefur
verið falið – að koma liðinu í loka-
keppni HM.
Heimir naut auðvitað góðs af
vinnu undanfarinna ára en það
dylst engum að hann á fullan heiður
skilinn fyrir afrekið. Hann naut auð-
vitað þess að vera með öflugt starfs-
lið, frábæra leikmenn og lið sem
býr yfir ótrúlegri liðsheild, vinnu-
semi og fórnfýsi. Sjálfsagt eru fáir
sem þorðu að vona að þetta væri
hægt en Heimir, hans starfslið og
leikmennirnir, sýndu og sönnuðu
að það var í góðu lagi að leyfa sér að
dreyma stórt.
Verðskuldaður árangur
Því má ekki gleyma að árangurinn
er verðskuldaður. Ísland vann einn
sterkasta Evrópuriðil undankeppn-
innar og fer ekki til Rússlands sem
farþegi, þvert á móti. Ísland fer til
Rússlands sem litli risinn, liðið sem
ekki nokkurt lið hefur efni á að van-
meta eða gera lítið úr. eirikur@365.is
FÉLAG L U J T MÖRK S
Ísland 10 7 1 2 16 - 7 22
Króatía 10 6 2 2 15 - 4 20
Úkraína 10 5 2 3 13 - 9 17
Tyrkland 10 4 3 3 14 - 13 15
Finnland 10 2 3 5 9 - 13 9
Kosóvó 10 0 1 9 3 - 24 1
Úkraína - Króatía 0-2
0-1 Andrej Kramaric (62.), 0-2 Andrej
Kramaric (70.).
Finnland - Tyrkland 2-2
0-1 Cenk Tosun (57.), 1-1 Paulus Arajuuri
(76.), 1-2 Tosun (84.), 2-2 Pohjanpalo (88.).
Riðill Íslands - lokastaða
Ísland er eina þjóðin
með minna en milljón íbúa
sem nær að tryggja sér sæti á
HM í fótbolta í 88 ára sögu
heimsmeistarakeppninnar.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-3
A
0
4
1
D
E
F
-3
8
C
8
1
D
E
F
-3
7
8
C
1
D
E
F
-3
6
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K