Fréttablaðið - 10.10.2017, Side 26
Konur sem hafa til
langs tíma búið við
ofbeldi í nánum sam-
böndum glíma oft við
þunglyndi, kvíðaröskun
og aðra tengda sjúkdóma.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
Kynferðisofbeldi og annað kynbundið ofbeldi er stórt og víðtækt vandamál á Íslandi
sem þarfnast brýnnar athygli okkar
æðstu ráðamanna. Á fimmtudaginn
fer fram málþing á vegum Femín-
istafélags Háskóla Íslands þar sem
fulltrúar stjórnmálaflokkanna fá
tækifæri til að kynna sína stefnu
í málaflokknum. Dr. Jón Ingvar
Kjaran, lektor við menntavísinda-
svið Háskóla Íslands, er annar
fundarstjóra málþingsins en hann
hefur rannsakað gerendur heimil-
isofbeldis og kannað áhrif kynbund-
ins ofbeldis á almennt heilsufar.
Jón Ingvar vinnur að viðhorfs-
rannsókn meðal karlmanna í
gagnkynhneigðum samböndum
sem beitt hafa maka sinn líkamlegu
ofbeldi. Mennirnir eiga allir sam-
eiginlegt að hafa leitað sér aðstoðar
vegna ofbeldisins. „Ég hef mikið
verið að rannsaka heimilisofbeldi
út frá sjónarhorni karlmanna og þó
ég hafi ekki rannsakað kynferðis-
ofbeldi sérstaklega fer langstærstur
hluti þeirra nauðgana, sem ekki
eru tilkynntar, fram innan náinna
sambanda, svokallaðar sambands-
nauðganir.“
Hann segir greinileg tengsl eða
fylgni á milli þess að vera fórnar-
lamb heimilis- og/eða kynferðis-
ofbeldis og fá aðra sjúkdóma. „Það
hafa verið gerðar margar rann-
sóknir erlendis sem sýna að konur
sem hafa til langs tíma búið við
ofbeldi í nánum samböndum glíma
við þunglyndi, kvíðaröskun og
aðra tengda sjúkdóma sem veikja
ónæmiskerfið og hafa þannig dulin
áhrif á allt heilsufar. Sýnt hefur
verið fram á bein tengsl milli streitu
og kvíða og lélegra ónæmiskerfis,
hjartasjúkdóma og jafnvel krabba-
meins. Líkamlegt ofbeldi, bæði bar-
smíðar og kynferðisofbeldi, getur
síðan auðvitað haft bein heilsu-
farsáhrif, til dæmis ef um áverka er
að ræða og jafnvel örkuml. Heimil-
isofbeldi er alvarlegt heilsufarslegt
vandamál. Konur sem koma út úr
slíkum samböndum geta verið illa
á sig komnar bæði á sál og líkama.
Þá er ótalið að ofbeldissambönd
eru oft tengd við neyslu með öllum
þeim heilsufarsvandamálum sem
því tengjast.“
Spurður út í forvarnarþáttinn
segir Jón Ingvar það mikilvægt
að byrja snemma að fræða um
samskipti. „Það er mikilvægast
að mínu mati að fara miklu fyrr
af stað með sambandsfræðslu í
grunnskólum, fókusera á hvernig
á að haga sér í samskiptum við
annað fólk. Ástralir hafa farið af
stað með sambandsfræðslu sem
þeir kalla „relationship education“,
fræðslu um hvernig eigi að haga sér
í nánum samböndum. Þetta fer vel
við markmið í aðalnámskrá um
vellíðan og heilbrigði.“ Einnig eru
starfrækt úrræði fyrir þá sem beita
heimilisofbeldi. „Eitt af þeim er
Heimilisfriður þar sem mönnum
er hjálpað að hætta að beita konur
ofbeldi og verða betri menn. En
það er mikilvægt að gera þann þátt
aðgengilegan svo fleiri hafi tök á að
leita sér aðstoðar.“
Málþingið hefst klukkan fimm
næstkomandi fimmtudag og
verður haldið í Lögbergi, stofu 101
í Háskóla Íslands. Formönnum
(eða fulltrúum) allra flokka sem
bjóða fram í komandi alþingis-
kosningum hefur verið boðið að
koma og halda stutt erindi um það
sem þeirra flokkur hyggst gera til að
berjast gegn kynferðisofbeldi hljóti
hann brautargengi í kosningunum.
Á eftir erindunum verða pallborðs-
umræður þar sem fundarstjórar,
dr. Gyða Margrét Pétursdóttir og
dr. Jón Ingvar Kjaran, munu beina
spurningum til fulltrúa ásamt því
að leita spurninga úr sal. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Kynbundið ofbeldi alvarlegt
lýðheilsuvandamál
Á fimmtudaginn fer fram málþing á vegum Femínistafélags Háskóla Íslands þar sem fulltrúar
stjórnmálaflokkanna fá tækifæri til að kynna stefnu sína í málefnum sem tengjast kynbundnu
ofbeldi. Jón Ingvar Kjaran er annar fundarstjóra málþingsins en hann hefur rannsakað gerendur.
Dr. Jón Ingvar Kjaran segir mikilvægt að gera sér grein fyrir áhrifum kynbundins ofbeldis á heilsu þolenda. MYND/ERNIR
Ofnbakað pasta með grænmeti er
hollur og góður réttur sem börnum
finnst góður. Hægt er að nota
hvaða grænmeti sem er, eftir því
hvað er til í ísskápnum.
Það sem þarf í eldamennskuna:
Sólblómaolía til steikingar
1 laukur
4 hvítlauksrif
1 rauðlaukur
1 haus spergilkál
400 g gulrætur
½ tsk. chili-pipar
1 dós tómatar, 400 g
1 msk. balsamkrem
1 msk. tómatpuré
1 msk. sítrónusafi
1 msk. timían
300 g heilhveitipasta
Ólífuolía
1 dós sýrður rjómi
Salt og nýmalaður pipar
Rifinn ostur og parmesan ostur
Hitið ofninn í 200°C. Skerið niður
allt grænmeti. Hitið sólblómaolíu
á pönnu og setjið laukinn út á
pönnuna og steikið þar til hann
mýkist. Bætið þá hvítlauknum út
í og síðan chili, spergilkáli og gul-
rótarbitum. Steikið áfram í stutta
stund en setjið þá tómata, balsam-
krem, sítrónusafa og tómatpuré.
Látið sósuna malla áfram í 15
mínútur. Bragðbætið með salti og
pipar. Í lokin er timían sett saman
við.
Á meðan sósan mallar er hægt
að hita upp vatnið fyrir pastað. Í
þessa uppskrift er notað penne
pasta. Sjóðið í helming þess tíma
sem gefinn er upp á umbúðum.
Takið vatnið frá. Hellið ólífuolíu
yfir pastað og látið aðeins rjúka
af því.
Smyrjið eldfast form (16,5 x 25,5
sentimetrar). Blandið pastanu
saman við grænmetisblönduna.
Stráið rifnum osti yfir. Bakið í ofni
í um það bil 15 mínútur eða þar til
osturinn er orðinn gylltur.
Ofnbakað pasta
með grænmeti
Girnilegur pastaréttur með grænmeti sem hentar allri fjölskyldunni.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Save the Children á Íslandi
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . o K tÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-4
8
D
4
1
D
E
F
-4
7
9
8
1
D
E
F
-4
6
5
C
1
D
E
F
-4
5
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K