Fréttablaðið - 10.10.2017, Side 30
Markmiðið með
Bleiku slaufunni í
ár er að efla og styrkja
Ráðgjafarþjónustuna,
gera hana sýnilegri,
lengja opnunartímann og
fjölga úrræðum eftir því
sem þörf krefur.
Halla Þorvaldsdóttir
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Það skemmti-
lega við þetta
átak er hversu
margir eru
tilbúnir til að
leggja því lið og
vera með,“ segir
Halla. MYND/
ANTON BRINK
Bleika slaufan snýst í raun um tvennt. Hún er árveknisátak sem snýr að krabbameini
hjá konum og er fjársöfnun fyrir
Krabbameinsfélagið. Markmiðið
með Bleiku slaufunni í ár er að efla
og styrkja Ráðgjafarþjónustuna,
gera hana sýnilegri, lengja opn-
unartímann og fjölga úrræðum
eftir því sem þörf krefur. Krabba-
meinsfélagið er með átta svæðis-
skrifstofur úti á landi og við viljum
efla það starf enn frekar. Þá stendur
til að koma á netráðgjöf. Ráðgjöfin
stendur öllum einstaklingum,
sem greinast með krabbamein,
til boða sem og aðstandendum
þeirra,“ segir Halla Þorvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Krabba-
meinsfélagi Íslands, en síðustu tíu
árin hefur félagið tileinkað októ-
bermánuði baráttu gegn krabba-
meini hjá konum með sölu á Bleiku
slaufunni.
Bleika slaufan nýtur mikillar
velvildar
Halla segir sérlega ánægjulegt að
finna þann stuðning og velvild sem
Bleika slaufan nýtur á meðal ein-
staklinga og fyrirtækja um land allt.
„Það skemmtilega við þetta átak
er hversu margir eru tilbúnir til að
leggja því lið og vera með. Mörg
fyrirtæki standa fyrir viðburðum
upp á eigin spýtur eða eru með
vörur til sölu þar sem allur ágóðinn
rennur til Bleiku slaufunnar. Ég
tel að þennan mikla áhuga megi
rekja til þess að krabbamein snertir
marga á einhvern hátt, einhvern
tímann á ævinni.“
Léttir fólki róðurinn
„Þegar einstaklingur greinist með
krabbamein er fyrirvarinn að því
oft stuttur og lífið fer gjörsamlega
á hvolf. Þótt krabbamein sé ekki
lengur dauðadómur hefur það
mikil áhrif á fólk og eðlilegt að
margar erfiðar spurningar vakni
hjá fólki sem þarf að takast á við
þennan óboðna gest. Í þessum
aðstæðum skiptir gríðarlega miklu
máli að fólk fái stuðning, ráðgjöf og
upplýsingar. Heilmikið hefur verið
rannsakað hvað hægt er að gera til
að auðvelda fólki að takast á við
krabbamein og ástæðulaust að hver
og einn finni það upp hjá sjálfum
sér. Við hjá Krabbameinsfélaginu
hugsum Ráðgjafarþjónustuna sem
nokkurs konar vegakort í ókunn-
ugu landi þar sem fólk ratar ekki
um, veit ekki hvert leiðin liggur
eða hvaða leiðir eru færar,“ segir
Halla. „Það þurfa ekki allir að fara
Fjallabaksleið, við getum bent á
greiðfærari leiðir, úrræði sem hafa
sýnt sig að létta fólki róðurinn.“
Hjá Ráðgjafarþjónustunni starfa
reynslumiklir hjúkrunarfræðingar,
félagsráðgjafi og sálfræðingur og
þjónustan er fólki að kostnaðar-
lausu. „Hægt er að koma beint inn
af götunni, panta tíma eða fá
Vegakort í ókunnugu landi
Í ár rennur söfnunarfé Bleiku slaufunnar til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Að sögn
Höllu Þorvaldsdóttur er markmikið að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf fyrir fólk um allt land.
símaráðgjöf. Fólk getur komið eitt
og sér eða tveir eða fleiri saman.
Ráðgjafarþjónustan býður upp á
alls konar námskeið, fjölbreytta
fræðslu, fyrirlestra og hópastarf.
Ég mæli með að fólk skoði heima-
síðu félagsins vel, www.krabb.is
og heimasíðu Bleiku slaufunnar,
www.bleikaslaufan.is. Þar eru upp-
lýsingar og fræðsla um krabbamein
og einkenni þess, viðbrögð við því
að greinast og alls kyns hagnýt ráð
og upplýsingar. Svo er líka hægt að
kaupa Bleiku slaufuna þar,“ segir
Halla að lokum.
Sigrún segir að
það sé ótrú-
lega margt
hægt að gera
fyrir þá sem
glíma við
krabbamein.
MYND/ERNIR
Ráðgjafarþjónusta Krabba-meinsfélagsins leggur sig fram við að mæta þörfum þeirra
sem hafa greinst með krabbamein
og aðstandenda þeirra með stuðn-
ingi, fræðslu og ráðgjöf. Þjónustan
er ókeypis, öllum opin og hægt er
að fá stuðning og ráðgjöf frá bæði
fagaðilum og jafningjum.
Ráðgjafarþjónustan býður upp á
símaráðgjöf. „Það geta allir hringt
ef þeir eru með einhver einkenni,
vantar upplýsingar um réttindamál
eða spurningar um krabbamein,“
segir Sigrún Lillie Magnúsdóttir,
forstöðukona Ráðgjafarþjónust-
unnar. „Það er líka hægt að koma til
okkar án þess að gera boð á undan
sér og vel tekið á móti öllum. Það
er mikilvægt að upplýsingar og ráð-
gjöf sem fólk sækir séu ábyggilegar
og réttar.“
„Lítið hefur verið rannsakað hér
á landi um gildi stuðnings fyrir
fólk með krabbamein en erlendar
rannsóknir sýna að fólki sem leitar
sér aðstoðar vegnar betur,“ segir
Sigrún. „Það er mikið álag á þeim
sem greinast með krabbamein og
fjölskyldum þeirra. Ég held að það
skipti gríðarlega miklu máli að fólk
finni að það er ekki eitt í þessum
aðstæðum og að það er ótrúlega
margt hægt að gera.“
„Sumir eiga líka í erfiðleikum með
að ná jafnvægi í lífinu eftir að hafa
læknast, margir hafa farið í gegnum
veikindaferlið á hnefanum og ekki
gefið sér færi á að vinna með áfallið,“
segir Sigrún. „Það virkar bara í tak-
markaðan tíma, við viljum hjálpa
fólki að ná jafnvægi á ný.“
Ráðgjafarþjónustan er faglegt
bakland við þjónustuskrifstofur
félagsins á landsbyggðinni, einnig
ber þjónustan ábyrgð á átta íbúðum
í Reykjavík sem ætlaðar eru fyrir fólk
sem er búsett á landsbyggðinni en
þarf að sækja meðferð eða rannsókn
í höfuðborgina. „Þau geta þá dvalið
í heimilislegu umhverfi á meðan,“
segir Sigrún. „Það er ekki nein ein
rétt leið fyrir alla og við aðstoðum
fólk við að finna sína leið.“
Fólki sem leitar
aðstoðar vegnar betur
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á
fjölbreytta þjónustu til að létta á álaginu sem hvílir á þeim
sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra
Kápur
Verð 23.900 kr.
Stærð 36 - 46
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R4 BLEIKA SLAUFAN
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-2
1
5
4
1
D
E
F
-2
0
1
8
1
D
E
F
-1
E
D
C
1
D
E
F
-1
D
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K