Fréttablaðið - 10.10.2017, Page 35
Baldur Rafn Gylfason, framkvæmdastjóri og eigandi heildverslunarinnar bpro,
segir að fyrirtæki hans leggi hjartað
í söfnun sína fyrir Krabbameins
félagið. „Fyrirtæki og viðskiptavinir
okkar um allt land selja svokallaða
Wet Brushbursta sem eru merktir
Bleiku slaufunni,“ segir Baldur. „Og
allur hagnaður af sölunni rennur
óskiptur til Krabbameinsfélagsins.“
„Þetta eru vinsælustu hárburstar
í Bandaríkjunum og víðar og við
vitum að mjög margar dömur
hér á landi þekkja þennan töfra
grip,“ segir Baldur. „Þannig að við
vonumst til að selja mjög mikið
af burstum, svo við getum styrkt
þennan verðugu málstað af mjög
miklum krafti.“
Vill styðja fagið
Baldur hefur tveggja áratuga
reynslu að baki sem hárgreiðslu
meistari. Þá reynslu nýtir hann í
bpro, sem er fyrst og fremst heild
verslun fyrir fagfólk í hárgreiðslu.
„bpro hefur að leiðarljósi að bjóða
upp á gæðavörur og topp þjón
ustu,“ segir hann. „Og við reynum
helst að versla við erlend fyrirtæki
sem eru rekin af sömu ástríðu fyrir
sínu fagi.“
bpro vill auk þess styðja við fagið
að öllu leyti. „Við viljum byggja
undir fagið með kynningum,
námskeiðum, sýningum og öllu
öðru sem hægt er að gera til að
hárgreiðsluþjónusta á Íslandi sé
eins fagmannleg og hægt er,“ segir
Baldur.
Stærstu merki bpro eru label.m,
Davines, Marc Inbane og HH
Simonsen, en HH Simonsen í
Danmörku og bpro á Íslandi tóku
höndum saman og létu sérhanna
þennan vinsæla bursta með Bleiku
slaufunni.
Kemur öllum á óvart
„Þetta er ein skemmtilegasta vara
sem ég sel,“ segir Baldur. „Því það
eru allir svo hissa á því hvernig
burstinn virkar, það segja allir „vá,
ertu að grínast?“. Pinnarnir eru
hannaðir þannig að þegar þeir
lenda á flækju gefur pinninn eftir
og sá næsti tekur við og þannig
losar hann flækjur án þess að reyta
hárið.“
Baldur er bjartsýnn á að söfnunin
gangi vel. „Ég vonast til að allir taki
bara höndum saman til að styrkja
gott málefni og fái sér svona bursta,
því þetta er gæðavara sem allir geta
notað og verið stoltir af, því allur
ágóði af þeim fer beint til Krabba
meinsfélagsins. Við hvetjum
fyrirtæki, hópa og einstaklinga til
að taka sig saman og hjálpa okkur
svo ekkert sitji eftir, því það er allra
hagur að þetta seljist sem best. Ef
þessir burstar seljast upp getum
við styrkt þetta frábæra málefni af
miklum krafti. Það er ekki flókið.“
Burstann er hægt að fá á hár
greiðslustofum um allt land, í
Fríhöfninni, í vefverslun Lyfju og í
vefverslun Krabbameinsfélagsins á
www.krabb.is. Hann kostar 3.500
krónur.
Ekki flókið
að styrkja
gott málefni
Heildverslunin bpro selur sérhann-
aða Wet Brush hárbursta merkta
Bleiku slaufunni. Burstarnir hafa notið
mikilla vinsælda um allan heim, en
allur ágóði af sölunni hér á landi fer til
Krabbameinsfélagsins
Baldur og félagar í bpro leggja mikinn metnað í söfnun sína fyrir Krabbameinsfélagið. MYND/LAUFEY ELÍASDÓTTIR
Við hjá HH Simonsen á Íslandi erum stolt af því að vera
hluti af herferð Krabbameinsfélagsins gegn
brjóstakrabbameini í Bleikum október. Allur ágóði af
bleika burstanum rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins
Bleiki burstinn er til sölu á völdum sölustöðum í Bleikum október
Allar nánari nánar upplýsingar um sölustaði bleika burstans
f innur þú á facebooksíðu HH Simonsen á Íslandi
facebook.com/hhsimonsenaislandi/
Wet Brush flækjuburstarnir eru í miklu uppáhaldi bæði hjá ungum sem öldnum. Til styrktar herferðinni gegn
brjóstakrabbameini höfum við hannað sérstaka útgáfu af þessum vinsæla bursta skreyttum Bleiku slaufunni
EKKERT FLÓKIÐ
STÖNDUM SAMAN OG STYRKJUM KRABBAMEINSFÉLAGIÐ
Þ R I ÐJ U DAG U R 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 BLEIKA SLAUFAN 9
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-2
1
5
4
1
D
E
F
-2
0
1
8
1
D
E
F
-1
E
D
C
1
D
E
F
-1
D
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K