Fréttablaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 36
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
Námskeiðið byggir á MBCT (Mindfulness-Based Cogni-tive Therapy). Aðferðin var
gagngert hönnuð í fyrirbyggjandi
tilgangi fyrir fólk með endurtekið
eða þrálátt þunglyndi en hefur
síðan verið útfærð fyrir fólk sem
glímir við ýmiss konar sálrænan
vanda. Sálfræðingurinn Edda
Margrét Guðmundsdóttir hefur
umsjón með námskeiðinu, en hún
hefur sérhæft sig í núvitundarmið-
aðri meðferð. Hún segir rann-
sóknir sýna að núvitundarþjálfun
hafi jákvæð áhrif á líðan, geti aukið
gæði daglegs lífs, bætt heilsufar og
dregið úr streitu, kvíða og depurð.
Ungmennanámskeið Ráð-
gjafarþjónustunnar er aðlagað að
sorgarferlinu og aðferðir kenndar
til að takast á við erfiðleika og
tilfinningar eins og vonleysi og
kvíða. Námskeiðið var haldið í
fyrsta skipti í fyrra og var þá fyrir
ungt fólk sem misst hafði einhvern
nákominn. Um miðjan október
verður bætt við námskeiði fyrir
ungmenni á aldrinum 15-22
ára sem eiga aðstandendur með
krabbamein.
Edda Margrét segir greiningu
krabbameins hafa áhrif á alla fjöl-
skylduna. „Aðstandendur þjást oft
ekki síður en sá sem greinist og
getur streita, þunglyndi og kvíði
látið á sér kræla. Þá er mikið áfall
að missa einhvern nákominn og
tilfinningarnar geta verið yfir-
þyrmandi, sorgin djúp og vanlíð-
anin mikil,“ segir Edda. Allt getur
þetta haft áhrif á nám, vinskap og
vinnu en rannsóknir á núvitundar-
miðaðri meðferð fyrir börn og
unglinga sýna að hún sé til bóta.
„Þá er líka gagnlegt að hitta aðra í
sömu sporum og sjá að maður er
ekki einn.“
Hingað til hafa úrræði fyrir
unga aðstandendur krabbameins-
greindra verið takmörkuð og er
ungmennanámskeið Ráðgjafar-
þjónustunnar liður í að bæta úr
því. Á námskeiðinu er núvitund
kennd með hugrænum æfingum
og hugleiðslu; að beina með ásetn-
ingi sérstakri tegund af athygli eða
viðhorfi til núlíðandi stundar, til
líkamlegra skynjana, tilfinninga
og hugsana. „Á þann hátt læra þátt-
takendur að umgangast erfiðar
tilfinningar og bera virðingu fyrir
því sem er á uppbyggilegan og
meðvitaðan hátt,“ útskýrir Edda.
Hún segir mannfólkið eiga það til
að bregðast við vanlíðan og kvíða
með því að loka á tilfinningarnar.
„Þegar um er að ræða missi er það
hreinlega ekki hægt. Að minnsta
kosti ekki til langs tíma. Tilfinn-
ingarnar láta á endanum á sér
kræla en með hjálp núvitundar er
auðveldara að lifa með þeim.“
Aðspurð segir Edda þátttak-
endur almennt hafa verið ánægða
með námskeiðið. „Þeir meta það
gagnlegt og segja það hafa jákvæð
áhrif á streitu. Þeir eiga auðveldara
með að róa sig og takast á við kvíða
og aðrar erfiðar tilfinningar. Þeir
tala líka um að það hafi jákvæð
áhrif á einbeitingu og nám og að
þeim þyki gagnlegt að læra að
takast á við lífið frá einu andartaki
til annars.“
Allar nánari upplýsingar um næstu
námskeið er að finna á krabb.is
Krabbameinsgreining hefur
áhrif á alla fjölskylduna
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á námskeið í núvitund fyrir aðstandendur
krabbameinsgreindra á aldrinum 16-22 ára. Hingað til hafa úrræði fyrir þennan hóp verið fá.
Námskeiðið hefur gefið góða raun og eiga þátttakendur auðveldara með að takast á við lífið.
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi MA hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. MYND/OSCAR BJARNASON
Þegar fólk veikist af alvarlegum sjúkdómi eins og krabba-meini verða margir sjúklingar
og aðstandendur þeirra eðlilega
kvíðnir varðandi framtíðina. Þar eru
spurningar um ýmis réttindi, bætur
og vinnutengd málefni ekki undan-
skilin. Það eru þó til staðar ýmis
úrræði í samfélaginu til að koma til
móts við sjúklinga og aðstandendur
þeirra þegar kemur að þessum
mikilvægu málefnum segir Gunn-
jóna Una Guðmundsdóttir, félags-
ráðgjafi MA hjá Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins.
„Hver og einn einstaklingur
stendur oft misjafnlega að vígi
hvað áunnin réttindi varðar. Lög
um almannatryggingar, félags-
þjónustu sveitarfélaga og félags lega
aðstoð eiga að tryggja að allir njóti
lágmarksframfærslu. Við þessar
aðstæður nýtir fólk fyrst rétt sinn
á vinnumarkaði en þegar honum
lýkur taka sjúkrasjóðir stéttarfélag-
anna við. Þegar greiðslur úr sjúkra-
sjóðum stéttarfélaga falla niður geta
tekið við greiðslur frá Trygginga-
stofnun ríkisins (TR) eða félags-
þjón ustu sveitarfélaga. Greiðslur til
sjúklinga eru þannig háðar öðrum
tekjum og áunnum réttindum fólks
á vinnu markaði.“
Hún vekur athygli á því að sækja
þarf um allar bætur ásamt því að
með öllum umsóknum þarf að fylgja
læknisvottorð og önnur umbeðin
gögn. „Eitt grunnvottorð frá lækni
vegna umsókna fyrir sama einstak-
ling nægir fyrir flestar bætur hjá TR.
Félagsráðgjafar á Landspítalanum,
í Ráðgjafarþjónustu Krabbameins-
félagsins og á Sjúkra húsinu á
Akureyri (SAK) veita sjúklingum
og aðstandendum þeirra ráðgjöf og
aðstoð við að sækja um réttindi og
leiðbeina fólki varðandi gögn sem
þurfa að fylgja umsóknum.“
Þegar alvarlegir sjúkdómar á borð
við krabbamein greinast er mikilvægt
að nýta sér faglega aðstoð, upp-
lýsingar og ráðgjöf sem í boði er að
sögn Unu. „Það er mikil hjálp í því
að fara yfir stöðu mála sinna með
aðstoð fagaðila. Ráðgjafarþjónusta
Krabbameinsfélagsins veitir ókeypis
þjónustu, t.d. upplýsingar, ráðgjöf,
stuðning, viðtöl og fræðslu fyrir fólk
sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur þess.“ Hún bendir
á að það geti verið gagnlegt að gera
sér hugmyndir um þá framtíð sem í
vændum er. „Því oft er hægt að draga
úr áhyggjum eða jafnvel depurð með
því að ræða um þá möguleika sem
eru í boði. Mikilvægt er að leita sér
upplýsinga og fá hjálp til að sækja um
það sem fólk á rétt á í samfélaginu.“
Nánar upplýsingar á www.krabb.is.
Þar má m.a. finna bækling sem inni-
heldur gagnlegar upplýsingar um
réttindi krabbameinsveikra.
Ýmis úrræði eru í boði
Þegar fólk veikist af krabbameini vakna eðlilega ýmsar spurningar um ýmis réttindi, bætur og
vinnutengd málefni. Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir ókeypis þjónustu sem meðal
annars inniheldur upplýsingar, ráðgjöf, stuðning, viðtöl og fræðslu fyrir fólk sem hefur greinst.
Hingað til hafa úrræði fyrir unga aðstandendur verið takmörkuð. Ungmenn-
anámskeið Ráðgjafarþjónustunnar er liður í að bæta úr því. MYND/HANNA
10 BLEIKA SLAUFAN
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-2
6
4
4
1
D
E
F
-2
5
0
8
1
D
E
F
-2
3
C
C
1
D
E
F
-2
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K