Fréttablaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 38
Ráðgjafarþjónusta Krabba-meinsfélagsins býður fjölda námskeiða, fyrirlestra og
viðburða fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur án
endurgjalds.
Dæmi um námskeið í október
og nóvember eru eftirfarandi:
• Hugræn atferlismeðferð við
svefntruflunum
• Réttindi fólks með krabbamein
• Gott útlit – betri líðan fyrir
konur í krabbameinsmeðferð
• Einbeiting og minnisþjálfun
• Núvitund fyrir ungmenni sem
aðstandendur
• Öndun og slökun
• Hugræn atferlismeðferð
• Núvitund: frá streitu til sáttar
• Jóga og áfallamiðað jóga
• Sogaæðabjúgur: Leiðir til að
bregðast við sogæðabjúg á hand-
legg í kjölfar krabbameinsmeð-
ferðar
• Skapandi skrif
Dæmi um fyrirlestra og
viðburði á árinu eru:
• Kastað til bata – endurhæfing
fyrir konur að lokinni brjósta-
krabbameinsmeðferð
• Karlarnir og
kúlurnar –
endurhæfing
fyrir karla
með krabba-
mein
• Kynlíf og
krabbamein
hjá Krafti
• Hvíldar-
helgi á Eiðum
(þátttakendum
að kostnaðar-
lausu)
• Kúnstin
að nærast
á 21.
öldinni
• Óður til
framtíðar.
Málþing um
líknarþjónustu.
• Fjölskyldan og krabbamein. Röð
fyrirlestra í samstarfi við LSH og
Rannsóknarstofnun í barna- og
fjölskylduvernd. Fyrir fjölskyldur
þar sem foreldri hefur greinst með
krabbamein.
• Ráðstefnur og málþing um mis-
munandi tegundir krabbameina;
ristilkrabbamein, blöðruháls-
kirtilskrabbamein, brjóstakrabba-
mein og krabbamein í kven-
líffærum.
Þá er boðið upp á fjölda
hádegisfyrirlestra:
• Mataræði í veikindum
• Áfallamiðað jóga
• Hreyfing og andleg líðan
• Lesið úr þremur bókum
• Máttur matarins
• Sumarblóm og ræktun
• Sykur og reykingar: má líkja
þessu tvennu saman?
• Að spyrna við fótum. Mikilvægi
styrktarþjálfunar
Hægt er að skrá sig á póstlista
eða fylgjast með dagskránni á
www.krabb.is og Facebook-síðu
Ráðgjafarþjónustunnar.
Fjöldi fyrirlestra
og námskeiða
Stuðningur og velvilji sam-starfsfólks getur haft verulega þýðingu fyrir þann sem
greinist. Hér eru nokkur hollráð
sem geta komið að gagni:
• Verum tilbúin að hlusta, leitast
við að skilja og sýna áhuga þó án
óþarfa hnýsni.
• Sýnum sveigjanleika og verum
tilbúin að breyta skipulagi til
að koma til móts við breyttar
aðstæður vinnufélagans.
• Munum að það hefur víðtæk
áhrif að greinast með krabbamein
og fara í krabbameinsmeðferð.
Áhrifin á hvern og einn eru þó
mismunandi. Meðal algengra
aukaverkana eru þreyta, úthalds-
leysi, einbeitingarskortur, hár-
missir, ógleði/uppköst, kvíði, reiði
og sorg.
• Verum meðvituð um að líðan
getur verið mjög breytileg. Algengt
er að fólk í krabbameinsmeðferð
eigi bæði góða daga og slæma.
• Það getur verið mjög mikil-
vægt fyrir fólk sem greinst hefur
með krabbamein að halda áfram
að vinna eða vera í tengslum við
vinnustaðinn sinn. Vinnan veitir
mörgum öryggi og reglu þegar
daglegt líf getur annars verið
gerbreytt. Að halda tengslum
við vinnufélaga getur uppfyllt
félagslegar þarfir og dregið úr
einangrun.
• Höfum í huga að mörgum
þykir erfitt að biðja um aðstoð.
Spyrjum beint hvort hægt sé að
aðstoða og hvernig. Ef aðstoð er
afþökkuð er gott að láta viðkom-
andi vita að boðið standi áfram.
• Verum meðvituð um að þótt
krabbameinsmeðferð sé lokið
þá finna margir fyrir úthalds- og
einbeitingarleysi löngu eftir að
meðferð lýkur.
• Á krabb.is má finna ítarlegri
fræðslu og hollráð fyrir sam-
starfsfólk og vinnuveitendur um
stuðning við þá sem greinast með
krabbamein.
Þegar vinnufélagi fær krabbamein
Kauptu NOKIAN gæðadekk hjá
MAX1 og styrktu Bleiku slaufuna
Veldu NOKIAN margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða
• Ein öruggustu dekk sem völ er á
• Ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum
• Breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja
• Eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
SÖLUSTAÐIR:
Bíldshöfða 5a, Reykjavík
Jafnaseli 6, Reykjavík
Dalshrauni 5, Hafnarfirði
OPIÐ:
Virka daga kl. 8-17
Laugardaga kl. 9-13
AÐALNÚMER:
515 7190
Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.IS frábært verð
Hluti söluágóða AF NOKIAN gæðadekkjum hjá MAX1
rennur til Krabbameinsfélagsins
STOLTUR STYRKTARAÐILI BLEIKU SLAUFUNNAR
SENDUM UM AL
LT LAND
- Flutningur me
ð Flytjanda
750 kr. hvert de
kk
1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R12 BLEIKA SLAUFAN
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
F
-3
A
0
4
1
D
E
F
-3
8
C
8
1
D
E
F
-3
7
8
C
1
D
E
F
-3
6
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K