Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 2
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20172 Fréttir
U
mhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið festi þann 23.
nóvem ber síðastliðinn
kaup á nýjum og glæsileg-
um Mercedes Benz GLE
500e ráðherrabíl og endurnýjaði þar
með 11 ára gamla ráðherrabifreið
ráðuneytisins. Lúxusjeppinn, sem
er tengitvinnbíll og gengur því fyrir
bæði eldsneyti og rafmagni, kostaði
9.973.000 krónur. Björt Ólafsdóttir tók
við sem umhverfis- og auðlindaráð-
herra þann 11. janúar síðastliðinn.
Bílar keyptir fyrir 87 milljónir
Átta af tíu núverandi ráðherrabifreið-
um ríkisins hafa verið endurnýjað-
ar frá árslokum 2014 til ársloka 2016
fyrir rétt tæpar 87 milljónir króna. Þær
tvær sem eftir á að endurnýja í flotan-
um eru komnar til ára sinna og ljóst að
fljótlega þarf að skipta þeim út. Þá er
einn nýr ráðherra ríkisstjórnarinnar
án ráðherrabifreiðar sem stendur en
hann mun fá nýja bifreið á næstunni.
DV hefur fjallað ítarlega um endur-
nýjun á ráðherrabílaflotanum síðustu
mánuði þar sem margar glæsilegar og
dýrar bifreiðar hafa verið keyptar til
að leysa af hólmi mikið eknar og lúnar
bifreiðar fyrri ríkisstjórna sem flestar
voru komnar til ára sinna.
Nú síðast í október greindi DV frá
því að atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytið hefði gengið frá kaupum
á nýjum og glæsilegum Volvo XC90
T8-tengitvinnjeppa fyrir þáverandi
iðnaðar- og viðskiptaráðherra á 9,4
milljónir króna, stuttu fyrir kosningar.
Sú bifreið þjónar nú Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur, nýjum ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra.
Jón á leigubíl
En þar sem ráðherrum var fjölgað
úr tíu í ellefu við myndun núverandi
ríkis stjórnar Sjálfstæðisflokks, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar, þá er ljóst
að fjölga þarf um einn bíl í bílaflotan-
um í samræmi við það. Það mun koma
í hlut innanríkisráðuneytisins að
kaupa þann bíl fyrir Jón Gunnarsson,
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
en ráðherrar ráðuneytisins eru nú
tveir eftir að því var skipt upp og Sig-
ríður Á. Andersen gerð að dómsmála-
ráðherra. Hún fékk BMW X5-jeppa
innanríkisráðuneytisins sem keyptur
var síðasta vor en ráðuneytið hefur
leigt Chrysler-ráðherrabifreið fyrir Jón
sem hann mætti einmitt á til ríkisráðs-
fundar á Bessastöðum þann 11. janúar
síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum
frá ráðuneytinu er verið að skoða kaup
á nýjum ráðherrabíl fyrir samgöngu-
ráðherrann.
Óttar og Þorsteinn á
elstu bílunum
Það er velferðarráðuneytið sem eftir á
að endurnýja ráðherrabifreiðar sínar
tvær, sem báðar eru orðnar níu ára
gamlar og hafa hingað til hafa þjónað
heilbrigðisráðherra og félags- og hús-
næðismálaráðherra. Óttarr Proppé,
nýr heilbrigðisráðherra, er sem stend-
ur á 2008 árgerð af Volvo XC90 og Þor-
steinn Víglundsson, nýr félags- og
jafnréttismálaráðherra, á 2008 árgerð
af Land Rover Freelander 2. Eftir því
sem DV kemst næst mun þurfa að
endurnýja báðar bifreiðarnar á næst-
unni. n
Nýjar vörur
10 milljóna
ráðherrabíll
keyptur eftir
kosningar
n Umhverfisráðherra á nýjum Mercedes Benz-lúxusjeppa
n Eftir að endurnýja tvo og kaupa þriðja fyrir nýjan ráðherra
Ráðherra: Dómsmálaráðherra
Tegund: BMW X5 40e xDrive
Kaupverð kr: 9.150.000
Keyptur: Maí 2016
Ráðherrabílaflotinn Átta af tíu
ráðherrabifreiðum ríkisins hafa verið
endurnýjaðar á um tveimur árum fyrir
87 milljónir. Þörf er á að endurnýja
tvo síðustu og kaupa þann þriðja eftir
fjölgun ráðherra. Mynd SigTRygguR ARi
Mynd SigTRygguR ARi
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Ráðherra: Umhverfis- og
auðlindaráðherra
Tegund: Mercedes Benz
GLE 500e
Kaupverð kr: 9.973.000
Keyptur: Nóvember 2016
Ráðherra: Fjármála- og efnahagsráðherra
Tegund: Mercedes Benz E250
Kaupverð kr: 9.587.850
Keyptur: Janúar 2015
Ráðherra: Forsætisráðherra
Tegund: Mercedes Benz S-350
BlueTec Sedan
Kaupverð kr: 12.785.000
Keyptur: Janúar 2016
Ráðherra: Heilbrigðisráðherra
Tegund bifreiðar: Volvo XC90
Keyptur: Mars 2008
Ráðherra: Félags- og
jafnréttismálaráðherra
Tegund: Land Rover
Freelander 2
Keyptur: Maí 2008
Ráðherra: Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra
Tegund: Chrysler
Leigubifreið
Ráðherra: Mennta- og menningar-
málaráðherra
Tegund: Volvo XC90
Kaupverð kr: 10.490.000
Keyptur: Maí 2016
Ráðherra: Ferðamála-, iðnað-
ar- og nýsköpunarráðherra
Tegund: Volvo XC90 T8
Kaupverð kr: 9.390.000
Keyptur: Nóvember 2016
Ráðherra: Utanríkisráðherra
Tegund: Land Rover Discovery
Kaupverð kr: 13.229.810
Keyptur: Október 2014
Ráðherra: Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
Tegund: Land Cruiser 150 VX
Kaupverð kr: 12.699.900
Keyptur: Apríl 2015