Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Blaðsíða 18
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20174 Útivist - Kynningarblað Fagleg þjónusta fyrir gönguskíðafólk Craftsport flytur inn fyrsta flokks vörur C raftsport er ein flottasta úti- vistarbúðin á landinu, og þó víðar væri leitað. Eig- andinn, Kristbjörn R. Sigur- jónsson, er sjálfur mikið í úti- vist og flytur inn útivistarfatnað frá Craft, gönguskíðavörur frá Mads- hus og skíðaáburð frá Rode. Það eru þónokkrir smásöluaðilar sem selja Craft-vörur á Íslandi og er lista yfir þá að finna á vefsíðu Craftsport, craft. is. „Við sérhæfum okkur í gönguskíð- um, gönguskíðafatnaði og -búnaði, reiðhjólabúnaði og almennum úti- vistarbúnaði. Þeir sem koma hingað segja að hér sé flottasta hlaupabúð- in á landinu, en Craft framleiðir frá- bæran fatnað fyrir hvers kyns útivist,“ segir Kristbjörn. Fyrsta flokks vörur og þjónusta Hjá Craftsport fást fyrsta flokks gönguskíði frá norska fyrirtækinu Madshus, sem er eitt stærsta fyrirtæk- ið í gönguskíðabransanum. Um er að ræða hágæða gönguskíði sem henta jafnt í skemmtigöngur og í keppnir. „Ég stunda sjálfur mikið gönguskíði og hef verið í þessu í yfir tuttugu ár,“ segir Kristbjörn. Þegar Kristbjörn er ekki í búðinni eða á gönguskíðum, situr hann síður en svo auðum hönd- um. Hann stundar einnig mikið hlaup, göngur og hjólar mikið. Hann þekkir útivistarvörurnar vel af eigin reynslu og þykir mikilvægt að þeir sem koma í búðina í leit að búnaði, fái góða þjónustu sem hentar þeim persónulega. „Í Noregi og Svíþjóð er alla jafna hægt að treysta því að þegar þú ferð í búð sem selur skíðabúnað, veit starfsfólkið allt um vöruna og hefur sjálft reynslu. Það leiðir til þess að viðskiptavinurinn fær vöru sem hentar honum. Þannig er það líka í búðinni hjá mér,“ segir Kristbjörn. Hann segist ekki vera að þessu til þess að einfaldlega selja, heldur vilji hann að þeir sem leiti til hans haldi áfram að stunda íþróttina. Það er mikilvægt að viðskiptavinurinn fái góðar vörur sem endast vel og eru þægilegar. „Þú heldur ekki áfram í sportinu ef þú færð ekki góðan búnað, það er mikið atriði,“ segir Kristbjörn. Frá Madshus fást svokölluð skinn- skíði, en það eru gönguskíði með skinni undir miðjunni sem eykur festu og fatt og gerir það auðveldara að spyrna sér áfram. „Þessi eru mjög vinsæl í dag og henta öllum sem vilja stunda gönguskíði af krafti. Við flytj- um líka inn gönguskíðaskó og stafi frá Madshus,“ segir Kristbjörn. Göngu- skíðaskórnir eru yfirleitt hreyfan- legri og léttari en þessir hefðbundnu svigskíðaklossar. „Svo erum við með mjög góða skíðastafi frá Madshus. Markaður fyrir gönguskíði hefur stækkað stöðugt vegna aukins áhuga hér á Íslandi.“ Alhliða fatnaður „Ásamt gönguskíðunum frá Madshus þá flyt ég inn fatamerkið Craft, sem framleiðir ýmsan sportfatnað en Craft hefur verið með þeim stærri og betri undanfarin ár í gönguskíðafatnaði. Gönguskíðafatnaðurinn er alhliða fatnaður og hentar því ekki eingöngu í gönguskíðasportið, heldur einnig vel í aðra útivist svo sem gönguferðir, hlaup og reiðhjólamennsku. Framan á fatnaðinum er oft vindhlíf sem tek- ur vindinn þegar verið er að renna sér. Hér í búðinni eigum við til dæmis einar bestu buxurnar á markaðnum fyrir hjólreiðar á veturna. Þetta eru í raun gönguskíðabuxur með vindhlíf framan á, en henta frábærlega í hlaup og reiðhjólamennsku. Ég hef lagt mikið upp úr því að flytja inn það sem ég veit að virkar og er góð og vönduð vara,“ segir Kristbjörn Craftsport er staðsett að Austur- vegi 2, 400 Ísafirði. Opið er alla virka daga frá 10–18 og á laugardögum frá 11–13. Sími: 456-3110 Netfang: craftsport@craft.is Nánari upplýs- ingar má nálgast á vefsíðu Craftsport, craft.is og Facebook-síðunni. n Hágæða gönguskíðavörur. Útivistarfatnaður frá Craft. Fyrsta flokks gönguskíði frá Madshus. Nettir gönguskíðaskór frá Madshus. Skíðaáburður frá Rode. Besta búðin varðandi hlaupavörur. Útivistarfatnaður frá Craft. Um að gera að viðhalda orkunni á fjöllum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.