Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 18
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20174 Útivist - Kynningarblað
Fagleg þjónusta
fyrir gönguskíðafólk
Craftsport flytur inn fyrsta flokks vörur
C
raftsport er ein flottasta úti-
vistarbúðin á landinu, og
þó víðar væri leitað. Eig-
andinn, Kristbjörn R. Sigur-
jónsson, er sjálfur mikið í úti-
vist og flytur inn útivistarfatnað frá
Craft, gönguskíðavörur frá Mads-
hus og skíðaáburð frá Rode. Það eru
þónokkrir smásöluaðilar sem selja
Craft-vörur á Íslandi og er lista yfir
þá að finna á vefsíðu Craftsport, craft.
is. „Við sérhæfum okkur í gönguskíð-
um, gönguskíðafatnaði og -búnaði,
reiðhjólabúnaði og almennum úti-
vistarbúnaði. Þeir sem koma hingað
segja að hér sé flottasta hlaupabúð-
in á landinu, en Craft framleiðir frá-
bæran fatnað fyrir hvers kyns útivist,“
segir Kristbjörn.
Fyrsta flokks vörur og þjónusta
Hjá Craftsport fást fyrsta flokks
gönguskíði frá norska fyrirtækinu
Madshus, sem er eitt stærsta fyrirtæk-
ið í gönguskíðabransanum. Um er að
ræða hágæða gönguskíði sem henta
jafnt í skemmtigöngur og í keppnir.
„Ég stunda sjálfur mikið gönguskíði
og hef verið í þessu í yfir tuttugu ár,“
segir Kristbjörn. Þegar Kristbjörn er
ekki í búðinni eða á gönguskíðum,
situr hann síður en svo auðum hönd-
um. Hann stundar einnig mikið
hlaup, göngur og hjólar mikið. Hann
þekkir útivistarvörurnar vel af eigin
reynslu og þykir mikilvægt að þeir
sem koma í búðina í leit að búnaði,
fái góða þjónustu sem hentar þeim
persónulega. „Í Noregi og Svíþjóð er
alla jafna hægt að treysta því að þegar
þú ferð í búð sem selur skíðabúnað,
veit starfsfólkið allt um vöruna og
hefur sjálft reynslu. Það leiðir til þess
að viðskiptavinurinn fær vöru sem
hentar honum. Þannig er það líka í
búðinni hjá mér,“ segir Kristbjörn.
Hann segist ekki vera að þessu til þess
að einfaldlega selja, heldur vilji hann
að þeir sem leiti til hans haldi áfram
að stunda íþróttina. Það er mikilvægt
að viðskiptavinurinn fái góðar vörur
sem endast vel og eru þægilegar. „Þú
heldur ekki áfram í sportinu ef þú
færð ekki góðan búnað, það er mikið
atriði,“ segir Kristbjörn.
Frá Madshus fást svokölluð skinn-
skíði, en það eru gönguskíði með
skinni undir miðjunni sem eykur
festu og fatt og gerir það auðveldara
að spyrna sér áfram. „Þessi eru mjög
vinsæl í dag og henta öllum sem vilja
stunda gönguskíði af krafti. Við flytj-
um líka inn gönguskíðaskó og stafi frá
Madshus,“ segir Kristbjörn. Göngu-
skíðaskórnir eru yfirleitt hreyfan-
legri og léttari en þessir hefðbundnu
svigskíðaklossar. „Svo erum við með
mjög góða skíðastafi frá Madshus.
Markaður fyrir gönguskíði hefur
stækkað stöðugt vegna aukins áhuga
hér á Íslandi.“
Alhliða fatnaður
„Ásamt gönguskíðunum frá Madshus
þá flyt ég inn fatamerkið Craft, sem
framleiðir ýmsan sportfatnað en Craft
hefur verið með þeim stærri og betri
undanfarin ár í gönguskíðafatnaði.
Gönguskíðafatnaðurinn er alhliða
fatnaður og hentar því ekki eingöngu
í gönguskíðasportið, heldur einnig
vel í aðra útivist svo sem gönguferðir,
hlaup og reiðhjólamennsku. Framan
á fatnaðinum er oft vindhlíf sem tek-
ur vindinn þegar verið er að renna
sér. Hér í búðinni eigum við til dæmis
einar bestu buxurnar á markaðnum
fyrir hjólreiðar á veturna. Þetta eru í
raun gönguskíðabuxur með vindhlíf
framan á, en henta frábærlega í hlaup
og reiðhjólamennsku. Ég hef lagt
mikið upp úr því að flytja inn það sem
ég veit að virkar og er góð og vönduð
vara,“ segir Kristbjörn
Craftsport er staðsett að Austur-
vegi 2, 400 Ísafirði. Opið er alla virka
daga frá 10–18 og á laugardögum
frá 11–13. Sími: 456-3110 Netfang:
craftsport@craft.is Nánari upplýs-
ingar má nálgast á vefsíðu Craftsport,
craft.is og Facebook-síðunni. n
Hágæða gönguskíðavörur.
Útivistarfatnaður frá Craft.
Fyrsta flokks
gönguskíði frá
Madshus.
Nettir gönguskíðaskór frá Madshus. Skíðaáburður frá Rode.
Besta búðin varðandi hlaupavörur. Útivistarfatnaður frá Craft.
Um að gera að viðhalda orkunni á fjöllum.