Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Blaðsíða 12
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201712 Fréttir Erlent
M
illjarðamæringar í Kísil
dalnum í Kaliforníu í
Bandaríkjunum eru ekki
bara duglegir að fjárfesta í
nýjustu tækni heldur virð
ast sífellt fleiri fjárfesta í eigin öryggi
ef allt færi á versta veg. Til eru dæmi
um auðmenn sem hafa fjárfest í
neðanjarðarbyrgjum, byssum, skot
færum og mótorhjólum til að komast
hratt og örugglega á milli staða.
Hinir reiðubúnu
Stutt er síðan DV fjallaði um fyrir
tæki í SuðurDakóta, Vivos Group,
sem rekur þyrpingu byrgja sem áður
gegndu hernaðarlegu hlutverki.
Fjölmargir hafa tryggt sér slíkt byrgi
ef allt færi á versta veg; kjarnorku
styrjöld brytist út, sjúkdóms faraldrar
ógnuðu framtíð mannkyns eða loft
steinn lenti á jörðinni svo dæmi séu
tekin. Bandaríska tímaritið New
Yorker fjallaði á dögunum um ann
an anga þessa máls, milljarðamær
ingana í Kísildalnum sem eru í hópi
þeirra sem stundum eru kallaðir
hinir reiðubúnu.
Mótorhjól, byssur
og matur
Reid Hoffman, meðstofn
andi samfélagsmiðilsins
LinkedIn, er einn þessara
milljarðamæringa en í við
tali við New Yorker sagðist
hann telja að um helming
ur þeirra milljarðamæringa
sem starfa í Kísildalnum
væri þegar farinn að gera
ráðstafanir í þágu eigin ör
yggis. En af hverju? spyrja
eflaust sumir. Hoffman
segir að ástæðurnar geti
verið af ýmsum toga, til
dæmis geti tækninýjungar
í framtíðinni, þar sem
vélar leysa manninn af hólmi í æ rík
ari mæli, gert að verkum að almenn
ingur muni snúast gegn fyrir tækjum
í Kísildalnum með ófyrirséðum af
leiðingum. „Ég á nokkur mótorhjól.
Ég á slatta af byssum og byssukúl
um. Ég á líka mat og gæti lokað mig
inni heima í nokkuð langan tíma,“
segir hann við blaðið.
Rökrétt skref
Aðrir milljarðamæringar hafa fjár
fest í eyjum, stórum landsvæð
um eða neðanjarðarbyrgjum, eins
og þeim sem Vivos Group rekur.
Antonio García Martínez, fyrrver
andi framkvæmdastjóri hjá Face
book, festi nýverið kaup á fimm ekra
eyju í norðvesturhluta Kyrrahafs.
Sólarorka sér húsinu hans fyrir raf
magni og þar er einnig nokkuð stórt
vopnabúr. En þó að sífellt fleiri búi
sig undir hið versta er það ekki
endilega trú manna að allt fari á
versta veg.
New Yorker ræddi við Yishan
Wong, fyrrverandi stjórnarformann
Reddit, sem segir að milljarða
mæringar séu einungis að hugsa
rökrétt. „Þeir líta á þetta sem fjar
lægan möguleika en samt sem áður
möguleika sem hefði mjög slæmar
afleiðingar í för með sér. Svo, miðað
við það fjármagn sem þeir hafa úr
að spila, þá er það aðeins rökrétt að
eyða brotabroti af eignum sínum til
að búa sig undir það versta.“
Umræða á villigötum
Eins og að framan greinir er engin
vafi á því að sífellt fleiri auð
menn séu farnir að velta þessum
möguleika fyrir sér. Max Levchin,
stofnandi PayPal og Affirm, er hins
vegar mjög mótfallinn þessari um
ræðu og segir að auðmenn ættu
frekar að einbeita sér að því að fjár
festa í lausnum á því sem hugsan
lega getur farið úrskeiðis.
„Þetta er einn af fáum hlutum
sem ég þoli ekki við Kísildal – það
álit að við séum á hærri stalli en
annað fólk og þegar okkur mistekst,
jafnvel þótt það sé engum öðrum
en okkur sjálfum að kenna, þurfi
að þyrma okkur,“ segir Levchin sem
reynir að forðast þessa umræðu.
„Ég á það til að reyna að kveða fólk
í kútinn og spyrja hversu miklu fé
það hefur varið til handa heimilis
lausum,“ segir hann og bætir við að
auðmenn ættu frekar að fjárfesta í
lausnum en fjárfesta í eigin öryggi ef
og þegar allt fer á versta veg. „Eins
og staðan er núna er staða efna
hagsmála í heiminum nokkuð góð.
En þegar efnahagskerfið tekur dýfu
mun fjöldi fólks hafa það skítt. Við
hverju eigum við að búast þá?“ n
Búa sig undir það versta
n Topparnir í Kísildalnum gera ráðstafanir í þágu eigin öryggis n Eru kallaðir hinir reiðubúnu
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is „Ég á
nokkur
mótorhjól.
Ég á slatta af
byssum og
byssukúlum.
Á villigötum Max Levchin segir að auðmenn ættu frekar að fjárfesta í lausnum en gera ráðstafanir ef allt fer á versta veg. Mynd EPA
Reiðubúinn Reid Hoffman
segist telja að ástæður þess
að topparnir í Kísildalnum
búi sig undir hið versta
séu meðal annars þær að
almenningur geti snúist
gegn tæknifyrirtækjum í
Kísildalnum. Mynd EPA
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
V e g a m ó t a s t í g u r 4 | 1 0 1 R e y k j a v í k | s í m i 5 1 1 3 0 4 0 | v e g a m o t @ v e g a m o t . i s
FRÁ 11–16