Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 11
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 www.avaxtabillinn.is avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 ÁVAXTA- LUNDUR Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll tilefni. Er kannski heilsuátak framundan? Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. Við komum með ávexti og þið uppskerið hressara starfsfólk Áhrif ávaxtakörfunnar eru göldrótt á sálarlíf og heilsufar starfsfólks. Fyrir óverulega upphæð er því hægt að hafa afar góð áhrif á mannskapinn. Fyrir nokkru tók Múlalundur við pökkun Ávaxtabílsins á sendingum ávaxta til fyrirtækja. Hefur það samstarf gengið prýðilega, enda vel vandað til verka hjá Múlalundi hvert sem verkefnið er. Fréttir 11 Þiggja laun frá ríki og bæ tveimur mönnum inn í bæjarstjórn og myndaði meirihluta með Sjálf­ stæðisflokki í bænum. Fyrir sæti sitt í sveitarstjórn er Theodóra með 33 prósent af þingfararkaupi. Hærri laun en forsætisráðherra Líkt og í Mosfellsbæ þá var ákvörðun­ in um hvort miðað yrði við nýja þing­ fararkaupið frestað og því er mið­ að við áðurnefndar 762.940 krónur á mánuði. Það þýðir að Theódóra fær 251.770 krónur fyrir setu sína í bæjar stjórn. Þá er hún einnig for­ maður bæjarráðs sem gefur laun upp á 45 prósent af þingfararkaupi, samtals 343.323 krónur á mánuði. Að auki er hún formaður skipulags­ ráðs Kópavogsbæjar sem veitir henni rétt á launum upp á 11,25 prósent af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Alls fundaði ráðið sautján sinnum árið 2016 og miðað við það fær Theódóra 121.593 krónur í mánaðarlaun fyrir þá vinnu. Þá má ekki gleyma því að Theo­ dóra situr í stjórn Isavia ohf. og þigg­ ur þar 160.000 krónur í mánaðar­ laun. Að endingu situr hún í almannaverndarnefnd og hafnar­ stjórn. Fundir þar eru afar fáir en fyrir hvern í almannaverndarnefnd fær Theodóra 7.000 krónur og 4,5 prósent fyrir hvern fund í hafnar­ stjórn en fundirnir voru tveir í fyrra. Samandregið eru mánaðarlaun Theodóru 2.152.282 krónur eins og sakir standa. Ef ske kynni að Kópa­ vogsbær myndi miða við nýhækkað þingfararkaup við útreikning á laun­ um kjörinna fulltrúa þá myndu laun hennar hækka upp í 2.473.566 krón­ ur á mánuði. n Bryndís Haraldsdóttir Þingfararkaup + 5% álag: 1.156.253 kr. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar: 190.735 kr. Formaður bæjarráðs: 267.029 kr. + fríðindi Formaður samgöngunefndar: 154.115 kr. Stjórn Strætó bs.: 121.350 kr. Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins: 11.333 kr. Samtals: 1.900.833 kr. - gæti hækkað í 2.117.035 kr. Bryndís: „Var kosin til að vera bæjar- fulltrúi út þetta kjörtímabil“ Aðspurð hefur Bryndís væntingar til þess að hægt sé að sinna bæði þingmennsku og bæjarstjórnarstörfum. „Bæjarfulltrúastarfið er hlutastarf og aðrir bæjarfulltrúar í fullu starfi annars staðar. Ég var kosin til þess að vera bæjarfulltrúi út þetta kjörtímabil og hef vonir og væntingar til að geta staðið undir því trausti kjósenda. Hvort ég þurfi að breyta og fækka þeim verkefnum sem ég sinni að öðru leyti fyrir Mosfellsbæ verður að koma í ljós. Ég er að skoða núna ásamt samstarfsfólki mínu hvernig við skiptum með okkur verkum í bæjarstjórninni,“ segir Bryndís í skriflegu svari til DV. En telur hún enga hættu á hagsmunaárekstrum í þessum störfum? „Nei, þvert á móti þá gaf ég kost á mér til setu á þingi sem sveitarstjórnarmaður vegna þess að okk- ur sveitarstjórnarmönnum hefur þótt skorta á ákveðna virðingu og skilning á störfum okkar hjá bæði Alþingi og framkvæmdavaldinu. Ég mun leggja mig fram við að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og tel að skilningur minn á nærþjónustu í gegnum sveitarstjórnarstörf mín nýtist vel í störfum mínum á þinginu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.