Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 14
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Stutt á milli
Það er oft
ankannalega stutt
á milli fólks í ís-
lensku samfélagi.
Það sannaðist enn
þegar nýráðinn
aðstoðarmaður
Þórdísar Kolbrúnar
Reykfjörð Gylfadóttur, Ólafur
Teitur Guðnason, birti á Face-
book-síðu ljósmynd sem verður
að teljast sú fyrsta sem hann birt-
ir starfs síns vegna. Á myndinni
má sjá ráðherrann og Rannveigu
Rist, forstjóra Rio Tinto á Íslandi
sem starfrækir álverið í Straums-
vík. Það vill svo skemmtilega til
að áður en Ólafur Teitur kom til
starfa í ráðuneytinu vann hann
einmitt sem upplýsingafulltrúi
téðs fyrirtækis. Það er því ekki að
undra að Rannveig eigi greiðan
aðgang að ráðherra síns geira.
Til sóma
Fyrstu dagar Donalds Trump í
embætti forseta vestra hafa verið
með slíkum ósköpum að kaldur
hrollur hefur far-
ið um sæmilega
frjálslynt fólk um
allan heim. Með
tilskipunum hefur
Trump heft ferða-
frelsi fólks sökum
þess hvaða trú það
aðhyllist og hefur lagt mannfjand-
samlega línu í málefnum flótta-
fólks. Það er því mikið gleðiefni að
fylgjast með íslenskum ráðherr-
um og þingmönnum stíga fram og
fordæma framferði Bandaríkja-
forseta. Ekki síður er gleðilegt að
sjá Guðna Th. Jóhannesson taka
einarða afstöðu gegn mannhatri
með því að bjóða flóttamönnum
heim til Bessastaða. En betur má
ef duga skal! Ríkisstjórnin þarf
að bregðast við með heildstæð-
um hætti og segja skýrt að Ísland
standi fyrir mannréttindi og láti
svona hegðun ekki óátalda.
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
Maður orða sinna
V
enjulega er stjórnmálamönn-
um talið það til tekna ef þeir
uppfylla kosningaloforð
sín. Í hugum almennings er
hinn dæmigerði stjórnmálamaður
einstaklingur sem stígur fram með
langan loforðalista í kosningabar-
áttu en er svo á harðahlaupum frá
loforðunum nokkrum dögum eftir
kosningar. Sennilega áttu flestir von
á því að svipað ætti við um Donald
Trump, kosningaloforð hans væru
líka svo fjarstæðukennd að ekki
væri rökrétt að gera ráð fyrir að þau
kæmust nokkru sinni til
framkvæmda. Nú sýnir sig
að þeir sem þetta héldu
voru barnslega einfaldir.
Því miður hefur Donald
Trump reynst vera maður
orða sinna. Það verður
því ekki sagt að kjósend-
ur hans hafi keypt köttinn
í sekknum. Hann var kos-
inn út á ógeðfelld stefnu-
mál sín og kjósendur hans
eru vísast himinlifandi
og líta svo á að loksins
sé kominn forseti í Hvíta
húsið sem mark sé tak-
andi á. Á fyrstu dögum í
embætti hefur hann verið
iðinn við að undirrita til-
skipanir sem miða að því
að efna kosningaloforðin,
auk þess sem hann hefur
gefið ýmsar hrollvekjandi
yfirlýsingar, eins og þá að
pyntingar væru ekki svo
slæmar vegna þess að
þær virka. Trump hefur á
undraskömmum tíma tek-
ist að skapa svo mikinn
óróa meðal Bandaríkjamanna
að fjöldamótmæli eru orðin daglegt
brauð.
Í lýðræðisríkjum er það yfirleitt
þannig að þegar umdeildur forseti
er kjörinn þá sækist hann eftir því að
sætta þjóðina og lýsir því yfir að hann
ætli sér að vera forseti allra lands-
manna. Trump hefur ekki farið þessa
leið. Hann hefur greinilega litla sem
enga diplómatíska hæfileika og virð-
ist þar að auki ekki geta tekið leið-
sögn. Allri gagnrýni tekur hann sem
persónulegri árás. Slíkir menn raða
já-mönnum í kringum sig og ein-
angrast snarlega í veruleikafirringu
sinni.
Ákvörðun Trump að banna flótta-
mönnum að koma til Bandaríkj-
anna og tímabundið bann við komu
fólks frá Írak, Íran, Sýrlandi, Súdan,
Sómalíu, Líbíu og Jemen hefur valdið
uppnámi. Nú er svo komið að þær
þjóðir heims sem kenna vilja sig við
mannréttindi eru komnar í þá ótrú-
legu stöðu að spyrja sig hvort mögu-
legt sé að eiga náin og góð tengsl við
stórveldið Bandaríkin. Hvað er til
ráða þegar forseti landsins boðar að
troðið skuli á mannréttindum fólks
og ákveðnum hópum útskúfað?
Ljóst er að ásýnd Bandaríkjanna hef-
ur beðið verulegan hnekki.
Á sama tíma og sýrlenskum
flóttamönnum er meinað að koma
til Bandaríkjanna opnaði forseti Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson, dyr
Bessastaða fyrir þeim. Sú tímasetn-
ing er alveg örugglega engin tilviljun.
Sennilega man Guðni vel eftir hin-
um fleygu orðum, sem eignuð eru
Edmund Burke: „Það eina sem þarf
til að hið illa sigri er að góðir menn
geri ekkert.“ n
Kolbrún Karlsdóttir flúði frá Íslandi til Afríku. – DV
Mér býður við þeirri ofboðslegu
neysluhyggju sem er á Íslandi
Sigfús Sigurðsson gagnrýnir aumingjavæðingu. – visir.is
Til að ná árangri í íþróttum þá
þarf að ala upp vissa hörku
Ákæru á hendur Pétri Gunnlaugssyni fyrir hatursorðræðu var vísað frá í héraðsdómi. – mbl.is
Stórskaðað okkur og mig
persónulega
Myndin Hlýjar móttökur Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heilsar hér ungri sýrlenskri stúlku sem kom til landsins á mánudag. mynD SiGTRyGGuR ARi
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Ljóst er að ásýnd
Bandaríkjanna
hefur beðið verulegan
hnekki.