Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 38
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201726 Fólk ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD MÚRUM & SMÍÐUM ehf Ertu að fara í framkvæmdir ? Ekkert verk of smátt né stórt ! Fagleg og góð þjónusta . Upplýsingar í síma 788 8870 eða murumogsmidum@murumogsmidum.is TIL BOÐ ÞÉ R A Ð KO STN AÐA RLA USU ! Múrvinna Smíðavinna Málningarvinna Jarðvinna Dansað í Laugardalshöll n Reykjavík International Games stendur yfir n Danskeppnin fór fram um helgina Þ að var mikið um dýrðir í Laugardalshöll á sunnudag þegar danskeppni WOW Reykjavík International Games fór fram. Um er að ræða alþjóðlegt íþrótta- mót sem var sett síðastliðinn fimmtudag en mótinu lýkur svo næstkomandi sunnudag. Keppt er í tuttugu og einni íþróttagrein og má þar nefna sund, lyftingar, karate, skvass, júdó, skylmingar, keilu, fimleika og frjálsar íþróttir svo nokkur dæmi séu tekin. Margt af besta og efnilegasta dans- fólki landsins var saman komið í Laugardalshöll á sunnudag þegar danskeppnin fór fram. Ljós- myndari DV myndaði það sem fyrir augu bar. n Öflugt teymi Ásgeir Bolli Kristinsson, sem stundum er kenndur við verslunina Sautján, sést hér ásamt dönsurunum Kristni Þór Sigurðssyni og Lilju Rún Gísladóttur. Kristinn er barnabarn Ásgeirs. Kristinn og Lilja lenti í 2. sæti í fullorðinsflokki í suður- amerískum dönsum og hafa verið að gera það gott utan landsteinanna að undanförnu. Lét sig ekki vanta Hanna Rún Bazev Óladóttir lét sig að sjálfsögðu ekki vanta um helgina. Hanna Rún er einn þekktasti dansari Íslands en hún ákvað að gerast atvinnumaður í íþróttinni undir lok síðasta árs. Hún var því ekki gjaldgeng í keppnina um helgina. Heimsmeistarar Polina Oddr og Pétur Gunnarsson unnu í suðuram- erískum dönsum um helgina í flokki fullorðinna. Þau urðu heimsmeistarar í flokki 21 árs og yngri í desember síðast- liðnum og urðu þar með fyrsta íslenska parið til að hljóta heimsmeistaratitil í latíndönsum. Brá á leik Borgarfulltrúinn S. Björn Blöndal brá á leik þegar verðlaun voru afhent á sunnudag. Hér sést hann sýna hvað hann getur í júdó. Tvenn verðlaun Dansparið María Tinna Hauks- dóttir og Gylfi Már Hrafnsson er í hópi efnilegustu dansara landsins. Þau unnu til tvennra verðlauna um helgina; í suðuramerískum dönsum og standard dönsum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.