Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Side 8
Vikublað 21.–23. febrúar 20178 Fréttir ALLT MERKILEGT Sérmerktar persónulegar gjafavörur Hægt er að fá bæði sent heim eða sækja í versluninni. Pantaðu í netverslun okkar Þú velur lit og texta! 10 ára GarðatorGi 3, Garðabæ - S: 555 3569 - www.alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS Okkar kjarnastarfssemi er greiðslumiðlun og innheimta. Hver er þín? 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is Síðan 2006 Bjarni átti allt lífið framundan B jarni var ótrúlega rólegur, sjálfstæður og átti allt lífið framundan.“ Þetta segir Íris Jóna Gunnarsdóttir, móður systir Bjarna Salvars Eyvindssonar, sem fannst látinn á útivistarsvæði í nágrenni Höfða- borgar í Suður-Afríku á sunnudags- morgun. Vildi láta gott af sér leiða Bjarna, sem fór nýverið til Suður- Afríku til að vinna sem sjálfboðaliði fyrir Norðursuður.org, hafði verið saknað frá því um hádegi á laugar- dag. Hann var í fjallgöngu ásamt tveimur piltum á Tafelberg-fjalli þegar hann varð viðskila við þá og týndist. Mjög vont veður var á fjall- inu þegar Bjarni, sem varð 19 ára þann 5. febrúar síðastliðinn, lést. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. „Hann ætlaði að vera í Suður- Afríku í tvær vikur í hjálparstarfi. Áður en Bjarni fór út var hann búinn að ákveða að fara aftur á næsta ári og þá ætlaði hann að vera í mánuð,“ segir Íris og rifjar upp hvað frænda sínum þótti gaman að hjálpa öðrum. Þá var Bjarni stoð og stytta móður sinnar og mjög náinn fjöl- skyldunni. Bjarni var lögblindur en hann sá ekkert með öðru auganu og var sjón- dapur á hinu. Það hamlaði honum þó ekki mikið í daglegu lífi en hann var nýbyrjaður að vinna í grunn- skóla í Kópavogi. Samhliða því starf- aði Bjarni í 10-11 í Hafnarfirði. „Hann var harðákveðinn að fara í þessa ferð. Ekkert okkar gat stoppað hann. Enda engin ástæða til. Hann var orðinn sjálfráða og var alltaf mjög skynsamur.“ Íris segir að Bjarna hafi síðustu ár verið mjög umhugað um heilsuna. Fjallgangan var ekki hluti af sjálf- boðastarfinu heldur fór hann á úti- vistarsvæðið með það í huga að skoða sig um í landinu. Frá því að móðir Bjarna fékk fregnina af andláti sonar síns, um miðjan dag á sunnudaginn, hefur mikið gengið á. Næsta fimmtudag fara móðir hans, uppeldisfaðir og móðuramma til Suður-Afríku til þess að bera kennsl á líkið og ganga frá hinum ýmsu málum svo hægt verði að flytja jarðneskar leifar Bjarna heim til Íslands. Safnað fyrir fjölskyldu Bjarna Ferlið sem nú fer í hönd hjá fjöl- skyldu Bjarna er mjög kostnaðar- samt. Þrátt fyrir að Bjarni hafi verið með ferðatryggingu þá þarf móðir hans að leggja mikið út. Til dæmis fyrir ferðakostnaði til Suður-Afríku og útfararkostnaði. Styrktarreikningur fyrir fjöl- skyldu Bjarna hefur verið stofnaður á nafni Írisar. „Við hvetjum alla sem geta aðstoðað á þessum erfiðu tím- um að leggja hönd á plóg til að gera harmleikinn ögn bærilegri fyrir nánustu aðstandendur Bjarna,“ Íris. Að lokum segir Íris um frænda sinn: „Stór hluti fjölskyldunnar fór núna um daginn, þegar Bjarni varð 19 ára. Mamma ætlaði að gefa honum pening í afmælisgjöf en Bjarni af- þakkaði. Hann sagði að það eina sem hann vildi í afmælisgjöf væri að hún kæmi með sér og fjölskyldunni út að borða. Þetta var mjög lýsandi fyrir þennan yndislega strák sem ætlaði að afreka svo margt í lífinu.“ n Styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Bjarna; kennitala: 100477-3439, reikningsnr: 0140-05-071968. n Var í sjálfboðastarfi í Suður-Afríku fannst látinn á sunnudaginn n Safnað fyrir fjölskylduna Kristín Clausen kristin@dv.is Bjarni Salvar Vildi láta gott af sér leiða. Íris Jóna Gunnarsdóttir Móðursystir Bjarna Salvars. Bjarni var nýorðinn 19 ára Með honum á myndinni er móðir hans, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, og yngri systir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.