Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 12
Vikublað 21.–23. febrúar 201712 Fréttir B jarni Benediktsson hefur legið undir verulegu ámæli sökum þess að tvær skýrslur sem unnar voru fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem Bjarni stýrði á síðasta kjörtímabili, voru ekki birtar fyrir síðustu kosningar, þrátt fyrir að hafa verið tilbúnar. Annars vegar var um að ræða skýrslu um umfang aflandseigna Íslendinga og skattaundanskot í tengslum við þær eignir. Hins vegar var um að ræða skýrslu um þjóðhagsleg áhrif Leiðréttingarinnar svokölluðu. Báðar tilbúnar fyrir kjördag Fyrrnefnda skýrslan, sú sem fjallar um aflandseignir Íslendinga, var til- búin um miðjan september 2016 og var kynnt fyrir Bjarna í byrjun október það ár. Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 6. janúar á þessu ári. Svo sem kunnugt er var ástæðan fyrir því að kosningum var flýtt uppljóstrun á aflandseignum stjórnmálamanna í Panama-skjölunum svokölluðu. Því hefur verið haldið fram að tekin hafi verið pólitísk ákvörðun um að birta ekki skýrsluna fyrir kosningar. Hver sem ástæðan er hefur það vakið mikla úlfúð og reiði að skýrsla þessa efnis hafi ekki verið birt fyrir kosn- ingar, þegar hún var tilbúin. Síðari skýrslan, sú sem fjallar um þjóðhagsleg áhrif Leiðréttingarinn- ar, mun hafa verið tilbúin í drögum í janúar á síðasta ári, eftir því sem Kjarninn greindi frá. Lokadrög voru tilbúin í júní 2016 og vinnslu við skýrsluna var lokið í október 2016, fyrir kosningar. Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 18. janúar á þessu ári. Í skýrslunni kemur fram hvernig leiðrétting verð- tryggðra fasteignalána dreifðist á milli Íslendinga. Meðal annars kemur fram þar að sá fimmtungur þjóðarinnar sem átti mestar hreinar eignir fékk tæplega þriðjung þeirra 72 milljarða sem fóru í leiðréttinguna. Þessum upplýs- ingum, um eitt allra stærsta þing- mál síðustu ríkis- stjórnar, var haldið frá kjós- endum fyrir kosningarnar 2016. Setið á SkýrSlum Pólitísk ákvörðun um að birta ekki skýrslur fyrir kosningar B jört Ólafsdóttir umhverfisráð- herra fór rangt með í óund- irbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi þegar hún svaraði fyrirspurn Oddnýjar Harðardóttur fyrr í þessum mánuði. Oddný spurði þar hvort Björt hygðist beita sér fyrir lagabreytingu í anda mál- efnasamnings ríkisstjórnarinnar um að ekki verði efnt til nýrra íviln- andi fjárfestingarsamninga vegna uppbyggingar á mengandi stór- iðju. Björt fullyrti í svari sínu við fyr- irspurninni að nefnd um veitingu ívilnana hefði fengið tilmæli um að ekki skyldi veita ívilnanir til meng- andi stóriðju. Nefndin hefur hins vegar engin slík tilmæli fengið. Greint var frá málinu í Kvennablað- inu og Stundinni. Í svari sínu við fyrirspurninni fullyrti Björt einnig að í ramma- löggjöf um ívilnanir til nýfjár- festinga væri „talað um náttúru- og umhverfisvernd“. Það er ekki rétt hjá Björt. Hefði átt að nota orðalagið leiðsögn Björt hefur svarað fyrir málið með þeim orðum að hún hafi verið að vísa til stefnu ríkisstjórnarinnar en hefði ekki átt að nota orðið „til- mæli“ í þessu tilfelli heldur hefði orðið „leiðsögn“ verið heppi- legra. „Það sem ég var að vísa til með orðum mínum er stefna rík- isstjórnarinnar. Hún er mjög skýr í þessum málum og kemur fram í stjórnarsáttmálanum. Þeirri leið- sögn hefur verið komið á framfæri til ráðuneytanna allra sem vinna nú eftir henni.“ Engu að síður hefur Björt legið undir töluverðri gagnrýni fyrir mál- ið, einkum á samfélagsmiðlum. Fór rangt með á Alþingi Umhverfisráðherra vísaði í orðalag sem ekki er til staðar VIÐ ERUM ÓDÝRARI EN ÞIG GRUNAR SPRENGJUVERÐ Á LED FLÓÐKÖSTURUM FYRIR VERKTAKA Ludviksson ehf - Ledljós Flatahraun 31 - Hafnarfirði www.ledljós.is LEDLÝSING VINNUKASTARAR 80-90% SPARNAÐUR Gæði - ábyrgð og brautryðjendur í betri verðum ... 20W og upp í 1000w LED kastarar eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði powerið og bassinn engu líkur! Þráðlausu Touch heyrnartólin fást á www.mytouch.rocks Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Fæst á www.mytouch.rocks

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.