Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 18
Vikublað 21.–23. febrúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Kylfingurinn Ólafía Þórunn viðurkenndi brot sem enginn sá á LPGA-móti. – visir.is
Ég gekk upp að dómaranum
og sagði frá þessu
Vanhugsuð
forræðishyggja
Óttarr Proppé er sagður hafa ósk
að eftir því að verða heilbrigðis
ráðherra og valdi sér um leið
málaflokk sem er engan veginn
auðveldur viðfangs. Nú vill heil
brigðisráðherra flokka rafrettur
með hefðbundnu tóbaki og gera
þeim sem vilja venja sig af venju
legu tóbaki og nota rafrettur
verulega erfitt fyrir. Það er mjög
umdeilt því ýmsar rannsókn
ir benda til að rafrettur séu fjarri
því jafn hættulegar og sígarettur.
Ungir Píratar gagnrýna ráðherr
ann mjög fyrir þessar fyrirætlan
ir og fordæma í ályktun „þessa
vanhugsuðu forræðishyggju“. Nú
er það svo að enn hafa drög að
frumvarpi um rafsígarettur ekki
verið birt á vefsíðu ráðuneytis
ins. Vera má að frumvarpið sé hið
þarfasta og muni verða til mikilla
bóta verði það samþykkt. Um það
er hins vegar ekki hægt að segja
að svo komnu máli og ráðherra
er þögull sem gröfin. Á meðan
fara menn mikinn í umræðu um
frumvarpið, sem enginn hefur
séð, og Óttarr fær á baukinn fyrir
vikið. Það telst ekki mikil stjórn
kænska.
Vita ekki hvað
þeir gjöra
Smári McCarthy er ekki ánægður
á þingi og sagði á dögunum: „Al
þingi er svo til getulaust … lenti í
því á dögunum að þurfa að greiða
atkvæði um mál
sem ég hafði heyrt
um en ekki náð
að lesa, og var það
ekki fyrr en eftir
atkvæðagreiðsl
una sem ég fékk
að vita að stóra
atriðið sem stóð útaf í því hafði
ekki verið lagfært.“ Það er vitan
lega ekki gott þegar þingmenn
vita ekki hvað þeir eru að gera.
Spurning hvort þeir ættu ekki að
líta í eigin barm í því samhengi
frekar en finna sinnustaðnum allt
í foráttu.
E
kki þarf sérstaka spádómsgáfu
til að ætla að ríkisstjórn Sjálf
stæðisflokks, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar verði ekki
langlíf. Meirihlutinn er svo naumur
að ekkert má fara verulega úrskeiðis.
Vegna þess hefði mátt búast við að á
ríkisstjórnarheimilinu myndu menn
vanda sig við að ganga í takt, allavega
svona til að byrja með. Sú hefur ekki
orðið raunin.
Allt frá því ný ríkisstjórn var
mynduð hefur gætt furðu mikils óróa
á stjórnarheimilinu og miður heppi
leg orð fallið. Allt er það rakið annars
staðar í þessu blaði. Ríkisstjórn
in virðist ekki virka sem ein heild
og reyndar er eins og þar á bæ hafi
menn lítinn áhuga á að skapa slíka
ímynd. Eða hvernig á að skýra það
að nokkrir þingmenn Sjálfstæðis
flokk hafa stokkið fram á sviðið og
lýst yfir andstöðu við áætlanir félags
málaráðherra, Þorsteins Víglunds
sonar, um jafnlaunavottun. Þeim
ætti að vera jafn ljóst og öðrum að
málið er eitt af forgangsmálum Við
reisnar, enda er það í ríkisstjórnar
sáttmála. Staðan er því sú að mál
sem er í ríkisstjórnarsáttmála nýtur
ekki meirihlutafylgis í ríkisstjórninni!
Ekki er sú niðurstaða til að styrkja
ríkisstjórnina eða auka trú almenn
ings á henni. Stjórnarsamstarf fel
ur í sér málamiðlanir, öðruvísi getur
það ekki gengið upp, og þarna gætti
furðulegs óþols hjá nokkrum þing
mönnum Sjálfstæðisflokksins. Þeir
hefðu sennilega betur nöldrað heima
hjá sér eða á lokuðum þingfundum í
stað þess að hrópa á torgum.
Sú áleitna spurning vaknar hvort
einhverjir í þingliði Sjálfstæðisflokks
ins hafi frá byrjun verið andsnúnir
myndun þessarar ríkisstjórnar og
ætli ekki að leggja sérlega mikið á sig
til að halda lífi í henni. Fari fram sem
horfir og átökin innan ríkisstjórnar
innar aukist enn mun stjórnarand
staðan geta hallað sér makindalega
aftur og skemmt sér við að sjá ríkis
stjórnina eyða sjálfri sér, svona svip
að og vinstri stjórnin gerði um árið.
Stjórnarandstaðan þarf þá ekki að
hafa mikið fyrir stjórnarskiptum.
Það blasir við að ríkisstjórnar
samstarfið hvílir á veikum grunni.
Við það bætist að skoðanakannan
ir sýna ítrekað að stuðningur lands
manna við ríkisstjórnina er ekki
mikill. Bæði Viðreisn og Björt fram
tíð eru í frjálsi falli í hugum þjóðar
innar. Það kann að hafa mikil áhrif
á stjórnarsamstarfið. Flokkarnir
veir þurfa nauðsynlega að skerpa
á áherslum sínum og spyrna við
fótum ætli þeir að lifa þetta stjórnar
samstarf af. Þeir hafa ekki efni á að
láta Sjálfstæðisflokkinn teyma sig
áfram. Um leið mun ágreiningur
innan ríkisstjórnarinnar nær
örugglega aukast mjög og verða enn
harðari. Stjórnarskipti kunna því
að verða fyrr en seinna og þá getur
ríkis stjórnin engum um kennt nema
sjálfri sér. n
Stjórnarsamstarf á veikum grunni
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Myndin Útivera og útsýni Víða er að finna aðstöðu til íþróttaiðkunar og hér bregður ungur drengur á leik með fótbolta. Mynd heiða helgadÓttir
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Sú áleitna spurn-
ing vaknar hvort
einhverjir í þingliði Sjálf-
stæðisflokksins hafi frá
byrjun verið andsnúnir
myndun þessarar ríkis-
stjórnar og ætli ekki að
leggja sérlega mikið á sig
til að halda lífi í henni.
Vilhjálmur Birgisson er ósáttur við sjávarútvegsráðherra. – Facebook
Hún sagði bara að
lögin væru klár
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Írak. – Sky news
Við erum ekki í Írak
til að stela olíu