Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 21
Vikublað 21.–23. febrúar 2017 Kynningarblað - Afþreying 3
Ó
byggðaferðir er lítið fjöl-
skyldufyrirtæki í Fljótshlíð-
inni sem nú í ár fagnar 11.
starfsárinu. Við bjóðum upp
á skoðunarferðir á fjórhjól-
um, hvort sem er í Fljótshlíðinni
fögru eða lengra inn á hálendið, allt
árið um kring. Um síðustu áramót
fluttum við aðstöðuna um þrjá kíló-
metra. Við erum nú staðsett með vin-
um okkar Hótel Fljótshlíð í Smára-
túni, sem er svansvottað hótel og
veitingastaður.
Að njóta náttúru og útiveru á
fjórhjólum er skemmtileg upplifun.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar ferð-
ir frá tveimur klukkustundum til
dagsferða, sem henta byrjendum og
vönum.
Þórsmörk, Eyjafjallajökull, Tind-
fjöll og Markarfljótsgljúfur eru dæmi
um staði í næsta nágrenni við okk-
ur. Meðal áfangastaða í ferðum okk-
ar lengra inni á hálendið eru Land-
mannalaugar, Hrafntinnusker,
Heklusvæðið og fleira.
Óbyggðaferðir Atv Iceland.is
eru með aðsetur að Hótel Fljótshlíð
Smáratúni. Við útvegum viðskipta-
vinum allan hlíðfarfatnað og búnað
fyrir fjórhjólaferðirnar. Fjórhjólaferð-
irnar með Óbyggðaferðum henta vel
jafnt einstaklingum, fjölskyldum og
hópum allt að 30 manns. Í samstarfi
við Hótel Fljótshlíð getum við klæð-
skersniðið skemmtileg hópefli með
möguleika á gistingu, sælkeramat
beint frá býli og frábærri afþreyingu,
hvort sem er á fjórhjóli eða hestum,
en að Smáratúni er líka starfrækt
hestaleiga á sumrin.
Við leggjum metnað í persónu-
lega þjónustu og að ferðast um landið
í sátt við umhverfið og náttúru. Við
erum aðeins í 90 mínútna akstursfjar-
lægð frá Reykjavík (113 km).
Heimsókn í Fljótshlíðina svíkur
engan. Saman getum við búið til upp-
skrift að góðum degi. Upplýsingar
info@atviceland.is eða í símum 661-
2503 (Unnar) og 661-2504. n
Fjórhjólaferðir fyrir alla
Óbyggðaferðir
Kýlingar inn af Landmannalaugum
Á leið heim úr Þórsmörk Goðasteinn á toppi Eyjafjallajökuls