Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Page 29
Vikublað 21.–23. febrúar 2017 Skrýtið Sakamál 25
Þegar konur drepa
4 Marie Sukloff Marie Sukloff var ung rússnesk bóndadóttir í byrjun 20. aldar á þeim tíma sem Fyodor Dubasov fyrirskipaði ofsóknir gegn og morð á gyðingum.
Sukloff gekk í raðir samtaka sem vildu koma Dubasov fyrir kattarnef. Kvöld eitt árið 1914
lét Sukloff í félagi við annan mann til skarar skríða. Vitorðsmaður hennar kastaði þá
sprengju undir vagn harðstjórans en hún lenti í snjóskafli og sprakk ekki. Án þess að hika
hljóp Sukloff að sprengjunni, tók hana upp og kastaði henni inn um gluggann á vagni
Dubasovs sem lét lífið í sprengingunni. Sukloff lifði af en var síðar handsömuð og
fangelsuð fyrir morðið.
5 Kim Hyun-hui Kim Hyun-hui var 19 ára gömul framdi hún hryðjuverk sem kostaði 115 manns lífið. Kim heldur því fram að hún hafi verið valin úr háskólanum í
Pyongyang til að ganga í leyniþjónustu Norður-Kóreu. Þar hafi hún gengist undir sex ára
þjálfun, eða þar til Suður-Kórea var að fara að halda Ólympíuleikana í Seúl árið 1987, til
að læra að tala og hegða sér eins og japanskur ríkisborgari.
Sagan segir að Kim Il-sung og sonur hans Kim Jong-il hafi verið staðráðnir í að koma
í veg fyrir að leikarnir færu fram svo Kim Hyun-hui var fyrirskipað að sprengja suður-
kóreska flugvél.
Hún kom því fyrir sprengju í handfarangursgeymslu flugs 858 en sjálf kom hún sér
frá borði í millilendingu í Abu Dhabi. Á leiðinni að næsta áfangastað til millilendingar, í
Bangkok í Taílandi, sprakk sprengjan og kostaði 115 manns lífið. Hyun-hui var hand-
sömuð og játaði verknaðinn. Hún var dæmd til dauða árið 1989 en var síðar náðuð af
forseta Suður-Kóreu, Roe Tae-Woo. Það hljómar kannski furðulega en hún er í dag gift
suðurkóreskum leyniþjónustumanni og eiga þau saman tvö börn. Hún er 55 ára í dag og
lifir enn í ótta við hefndaraðgerðir frá Norður-Kóreu fyrir liðhlaup sitt.
6 Charlotte Corday Árið 1793, á tímum frönsku ógnarstjórnar-
innar, tók unga aðalskonan Charlotte
Corday það að sér að ráða áhrifamikinn
blaðamann, Jean-Paul Marat, af dögum.
Hún leit svo á að dagblað hans, L‘ami du
Peuple, bæri ábyrgð á September-
fjöldamorðunum þar sem á bilinu 1.200
til 1.400 fangar voru drepnir í miklu
blóðbaði. Taldi hún sig geta forðað
Frökkum frá allsherjar borgarastyrjöld
með því að myrða Marat.
Við komuna til Parísar komst hún
á fund með Marat undir því yfirskini að
hún hefði upplýsingar um fyrirhugaða
uppreisn. Á meðan hann skrifaði hjá sér
falskan vitnisburð hennar dró hún fram
stóran hníf og stakk hann í brjóstið.
Fjórum dögum síðar var Corday tekin af
lífi með fallöxi. Marat varð á hinn bóginn
að píslarvætti hjá Jakobínum, frönsku
róttæku stjórnmálahreyfingunni sem
leiddi frönsku byltinguna.
7 Brigitte Mohnhaupt Á
sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar var Mohnhaupt
meðlimur í kommúníska
hryðjuverkahópnum Red Army
Faction (RAF) sem herjaði á
Þjóðverja um áratugaskeið og
banaði að minnsta kosti 30
manns. Mohnhaupt átti aðild
að morðum á nokkrum
þekktum Þjóðverjum á borð við
iðnjöfurinn Hans Martin
Schleyer, yfirmann Dresdner-
bankans, Juergen Ponto og
ríkissaksóknarann Siegfried
Buback.
Mohnhaupt, sem lýst var
sem einni verstu og hættu-
legustu konu Vestur-Þýska-
lands, var árið 1985 dæmd í
lífstíðarfangelsi fyrir glæpi
sína, sem hún sýndi enga iðrun
vegna. 24 árum síðar varð mjög
umdeilt þegar henni var veitt
reynslulausn úr fangelsi.
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
ÁVAXTA-
LUNDUR
Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll
tilefni. Er kannski heilsuátak framundan?
Ávextir í áskrift
kosta um 550 kr.
á mann á viku
og fyrirhöfn
fyrirtækisins
er engin.
Við komum með ávexti
og þið uppskerið
hressara starfsfólk
Áhrif ávaxtakörfunnar eru göldrótt
á sálarlíf og heilsufar starfsfólks.
Fyrir óverulega upphæð er því hægt að hafa
afar góð áhrif á mannskapinn.
Fyrir nokkru tók Múlalundur við pökkun Ávaxtabílsins á sendingum ávaxta til fyrirtækja.
Hefur það samstarf gengið prýðilega, enda vel vandað til verka hjá Múlalundi hvert sem verkefnið er.