Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 30
Vikublað 21.–23. febrúar 201726 Menning Þ etta er nánast eins og hjá 15 ára unglingahljóm- sveit,“ segir María Huld, fiðluleikari Amiinu, og af- sakar draslið í æfingahús- næðinu sem er staðsett rétt við jaðar miðbæjarins. Þetta er lítið hús falið í skugga spánnýrra hótelbygginga og byggingarkrana, við þverhnípi tómra húsgrunna og bílakjallara fram- tíðarinnar. Í þrjá áratugi hafa tón- listarmenn æft og tekið upp í hús- næðinu sem stendur nú til að rífa. Kannski er kominn tími til, enda hafa sprengingar undanfarinna ára gert gólfið ójafnt og myndað sprungur í veggjunum. Hljómsveitin Amiina var stofn- uð fyrir hartnær tuttugu árum af fjórum stelpum sem höfðu kynnst í Tónlistar skóla Reykjavíkur. Sveitin varð fyrst þekkt sem strengjakvar- tett Sigur Rósar en vakti svo athygli fyrir sína fyrstu breiðskífu með eigin tónsmíðum árið 2007. Á næstu árum bættust tveir karlmenn í hópinn og síðan þá hefur meðlimafjöldinn rokk- að upp og niður eftir verkefnum. Í dag eru þau fjögur, María Huld Markan Sigfúsdóttir, sellóleikarinn Sólrún Sumarliðadóttir, trommarinn Magnús Trygvi Eliassen og rafhljóða- smiðurinn Guðmundur Vignir Karls- son, einnig þekktur sem Kippi Kanin- us. Þegar blaðamann ber að garði eru þau að ljúka við að fylla út umsókn- ir til að fá að ferðast og spila í Kína næsta haust, þar munu þau flytja tón- listina af nýútkominni plötu sinni Fantômas, sem samin er við sam- nefnda þögla spennumynd frá árinu 1913. Og það er einmitt Fantômas sem við ætlum að spjalla um. Flaustur og súrrealismi „Þetta byrjaði með því að franski tón- listarmaðurinn Yann Tiersen, sem flestir þekkja fyrir tónlistina úr kvik- myndinni Amelie, hafði samband og bað okkur um að semja nýja tónlist við eina af þessum fimm myndum um Fantômas,“ útskýrir Sólrún. „Hann var þá að safna fimm tón- listarmönnum og hljómsveitum til þess að skrifa nýja músík við mynd- irnar og flytja í tilefni af aldarafmæli þeirra. Á hrekkjavökunni 2013 voru svo allar myndirnar sýndar með lif- andi tónlist í Théâtre du Châtelet í París, það tók sjö tíma að flytja þetta og var mjög skemmtilegur viðburð- ur.“ Fantômas er skáldsagnapersóna sem naut mikilla vinsælda í Frakk- landi á fyrstu árum 20. aldarinnar. Fyrsta sagan um þennan miskunnar- lausa og dularfulla glæpamann birt- ist árið 1911 og voru það höfundarn- ir Marcel Allain og Pierre Souvestre sem skrifuðu sögurnar af miklum móð og gáfu út, ein skáldsaga í fullri lengd birtist í hverjum mánuði næstu árin. Árið 1913 gerði Louis Feuillade svo fimm kvikmyndir upp úr bók- unum á svipuðum vinnuhraða. Talað hefur verið um að aðferða- fræði við skrif bókanna og upptök- ur myndanna hafi orðið módelið að því hvernig Hollywood-myndir voru framleiddar í kjölfarið. „Ekkert okkar þekkti þessar myndir af neinu viti, en það var mjög skemmtilegt að kynna sér þær. Þetta eru alveg stórmerkilegar bíómyndir og ekki síst stórfurðulegar – enda bera þær þess greinileg merki hvað þær voru unnar hratt. Stundum er skautað mjög hratt yfir og senur leys- ast nánast bara upp í einhverja vit- leysu,“ segir Vignir. „Myndin sem við sömdum tón- list við er númer tvö í seríunni [Juve contra Fantômas]. Meðal ástæðn- anna fyrir því að við völdum hana var að í henni er mjög myndrænt lestar- slys, atriði þar sem slanga er drepin og alls konar súrrealismi. Það er lík- lega að hluta til vegna þess hversu hratt sögurnar urðu til sem fram- vindan verður svo súrrealísk og skemmtileg,“ segir María Huld og bæta má við að frönsku súrrealistarn- ir voru margir hverjir yfir sig hrifn- ir af Fantômas, til að mynda skáldið Guillaume Apollin aire og málarinn René Mag- ritte. Holdgervingur illskunnar En hver er þessi Fantômas sem myndin fjallar um? Vignir: „Fantômas er eiginlega holdgerv- ingur illskunnar. Hann virðist vera aristókrati Semja við aldargamla þögla spennumynd Hljómsveitin Amiina hefur gefið út tónlist sína við rúmlega hundrað ára gamla kvikmynd um harðsvíraða glæpamanninn Fantômas. Mynd Heiða Helgadóttir „Fantômas er eiginlega holdgervin gur illskunnar Draugurinn í tónlistinni n Hljómsveitin Amiina samdi tónlist við 100 ára gamla költ-kvikmynd um Fantômas Kristján guðjónsson kristjan@dv.is Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322 CNC renniverkstæði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.