Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 38
Vikublað 21.–23. febrúar 201734 Fólk
Aðstoða íslenska hönnuði á
Reykjavík Fashion Festival
R
eykjavík Fashion Festival
verður haldin í sjöunda
sinn dagana 23.–25. mars
2017. Verður hátíðin haldin
samhliða Hönnunarmars
og fara viðburðir fram í Silfurbergi
í Hörpu – tónlistar- og ráðstefnu-
húsi. Hátíðin hefur verið haldin í
marsmánuði frá árinu 2010 og hefur
stækkað ár frá ári og þykir stökkpall-
ur fyrir hæfileikaríka fatahönnuði.
Hátt í 180 manns taka þátt í undir-
búningi RFF og stendur undirbún-
ingur yfir í sex mánuði.
Hönnuðir sem munu vera með
tískusýningu á Reykjavík Fashion
Festival í ár eru Another Creation,
Anita Hirlekar, Cintamani, Magnea,
Myrka og Inklaw.
„Þetta er flottur hópur sýnenda
sem gefa hver á sinn hátt vel til
kynna hversu fjölbreyttur okkar
tískuheimur er. Anita Hirlekar, sem
hefur hlotið mikla athygli erlendis,
er að sýna sína fyrstu línu á Íslandi,
Harpa Einars mun frumsýna sitt
nýja brand MYRKA og Cintamani
kynnir nýja stefnu sem er „streetwe-
ar“-miðað. Inklaw mun stíga
fyrsta skrefið á pöllum með mjög
spennandi og nýstárlegt konsept,
og eru Ýr og Magnea að sýna áfram-
haldandi þróun á línum sínum en
við munum eftir stórkostlegum sýn-
ingum þeirra frá síðustu hátíð. Sum-
ir hafa áður sýnt á hátíðinni en aðrir
koma nýir inn og mikil eftirvænting
er ríkjandi varðandi hvað hönnuðir
munu sýna á pöllum RFF,“ segir
Kolfinna Von Arnardóttir, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Fashion
Festival.
Kynna hönnuði með
myndböndum
Í ár var ákveðið að auka kynningu
á hverjum hönnuði fyrir sig til að
kynna betur hverjir það eru sem
koma að íslensku tískusenunni.
Einnig vildi RFF tengja hönnuði
betur út fyrir landsteina. Því flutti
Reykjavík Fashion Festival, í sam-
vinnu við Icelandair, inn tökufólk
sem starfar einnig fyrir útgáfufélag-
ið Conde Nast. Fyrir þá sem ekki vita
er Conde Nast leiðandi útgáfufélag
í tísku og lúxustímaritum og þótti
tvíeykið Juliane Ullmann og Marco
Lewes hæfast til að vera hönnuðum
innan handar við framleiðslu kynn-
ingarmyndbanda fyrir tískuhönnuði.
„Þau eru einnig að vinna sér inn
gagnagrunn sem nýtist þeim í fram-
tíðarverkefnum svo við komumst að
samkomulagi um að þetta yrði öllum
til góða. Við erum virkilega ánægð
með þetta nýja skref. Nú vinnum
við að því að búa til flott kynningar-
arkív um hönnuði sem koma að RFF
og ætlum að búa til gagnagrunn
um íslenska tískuhönnuði,“ segir
Kolfinna.
Ný heimasíða
Um helgina var ný heimasíða RFF
opnuð og þar munu myndböndin
fljótlega birtast. Tvíeykið sem kom
til landsins hefur áður búið til mynd-
skeið fyrir blöð í eigu útgáfunnar,
meðal annars Vogue, Architectural
Digest og GQ magazine en einnig
kynningarmyndbönd fyrir þekkta
hönnuði á borð við Mikael Kors. Tök-
ur fóru fram um helgina á vinnustof-
um hönnuða og úti í náttúrunni.
„Tískan er mikið kynnt á netinu.
Það er því mikilvægt að hafa sterkt
teymi með sér. Hugsunin á bak við
þetta var að búa til góða kynningu
á hönnuðum áður en sýningar fara
fram og leyfa fólki að kynnast hverju
og einu brandi. Þetta sama teymi
kemur svo aftur hingað til Íslands og
verður viðstatt hátíðina og tekur hana
upp,“ segir Kolfinna og bætir við:
„Við lögðum upp úr því að
hönnuðir fengju að kynnast
tvíeykinu persónulega. Samstarf sem
þetta er dýrmætt og tengingar og vin-
skapur þróast á milli hönnuða og er-
lendra fagaðila og aldrei er hægt að
vita hvert það leiðir.“ n
Í fjörunni hjá Hrafni Gunnlaugssyni Frá
vinstri: Hönnuðirnir Guðjón Geir Geirsson, Cristopher
Cannon, Anton Birkir Sigfússon og Róbert Ómar
Elmarsson, en þarna var verið að taka upp
kynningarmyndband fyrir vinnustofu Inklaw.
Framleiða
kynningar-
myndbönd
fyrir RFF
Tvíeykið Juliane
Ullmann og
Marco Lewes
var hönnuðum
til halds og
trausts.
Þú færð fallega borð-
búnaðinn og fullt af fíneríi
frá greengate hjá okkur
Austurvegi 21, Selfoss / Sími 482 3211
facebook.com/sjafnarblom
Höfðabakka 3, Reykjavík / Sími 587 2222
facebook.com/litlagardbudin