Fréttablaðið - 27.10.2017, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 3 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Bergur Ebbi
skrifar um félög,
flokka og rjóma
sprautur. 17
Menning Fyrrverandi
hjónin Margrét
Jónsdóttir
og Bjarni H.
Þórarins
son sýna
saman.30
lÍFið Það
verður kosn
ingapartí á
Íslendinga
barnum á
Tenerife. 42
plús sérblað
l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun
Gallup apríl-júní 2015
Veldu gæði
og endingu,
á góðu verði.
7 ára
AFMÆLISHÁTÍÐ
ELKO granda
26–29 OKT.
25%
12%
40%
25%
50% FULL BÚÐ AF
TILBOÐUM Á
ELKO GRANDA
kosningar Enginn frambjóðandi
Framsóknarflokksins í höfuðborg
arsvæðiskjördæmunum þremur
nær inn á þing og Lilja Alfreðsdóttir,
varaformaður flokksins, missir sæti
sitt ef marka má skoðanakönnun
fréttastofu 365.
Samkvæmt könnuninni er Lilja
allnokkru frá því að halda sæti sínu
á þingi. Hún segir þó flokkinn eiga
mikið inni. „Ég er í baráttuhug og
vongóð. Á kjördag fyrir ári vorum
við að mælast með fjögur prósent
í Reykjavík suður en við enduðum
með yfir sjö prósent og ég var inni.
Nú er maður bara á fullu og heldur
áfram að kynna málefnin,“ segir Lilja.
Þó verður að setja þann fyrirvara
við útreikninga Fréttablaðsins að
könnunin skiptir Reykjavíkurkjör
dæmunum ekki í tvennt og er því
ekki útilokað að fylgið sé mismun
andi á milli kjördæma. Jafnframt er
úrtakið í landsbyggðarkjördæm
unum minna en á höfuðborgar
svæðinu og vikmörkin því hærri.
Þá getur minnsta sveifla breytt því
hverjir fá jöfnunarsæti.
Öfugt við Framsóknarflokkinn
stefnir í að Viðreisn nái ekki inn
mönnum í landsbyggðarkjördæm
unum þremur. Myndu Benedikt
Jóhannesson, fyrrverandi formaður,
og Jóna Sólveig Elínardóttir varafor
maður því missa sæti sín. Hins vegar
myndu allir þingmenn flokksins í
höfuðborgarsvæðiskjördæmunum
halda sætum sínum samkvæmt
könnuninni.
Athygli vekur að þótt Flokkur
fólksins mælist úti á landsvísu,
undir fimm prósenta þröskuldinum
og því án möguleika á jöfnunarþing
manni, vantar bara örfá atkvæði til
þess að oddviti hans í Suðurkjör
dæmi, Karl Gauti Hjaltason, nái inn.
Samkvæmt útreikningum Frétta
blaðsins sem byggjast á könnuninni
vantar einungis 23 atkvæði þar
upp á og er því sannarlega mjótt á
munum.
Svo gæti einnig farið að Rúnar
Gíslason, frambjóðandi Vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi, setji
Íslandsmet og verði yngsti kjörni
þingmaður lýðveldissögunnar.
Rúnar er fæddur árið 1996 en hann
mælist inni með einungis einu
atkvæði meira en Teitur Björn Ein
arsson, frambjóðandi Sjálfstæðis
flokksins. – þea
Framsókn úti á höfuðborgarsvæðinu
Útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn nái ekki inn manni á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt könnun fréttastofu. Viðreisn missir báða
sína þingmenn á landsbyggðinni. Flokkur fólksins nálægt því að ná einum manni inn og nýr yngsti þingmaður líklegur.
MosFellsbær Sigrún Pálsdóttir og
Hildur Margrétardóttir, aðal og vara
menn Íbúahreyfingarinnar í bæjar
ráði Mosfellsbæjar, saka bæjarstjóra
Mosfellsbæjar og aðra bæjarfulltrúa
um einelti í sinn garð og annarra í
Íbúahreyfingunni.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjar
ráðs í gær. Óskaði bæjarfulltrúi Íbúa
hreyfingarinnar, Sigrún Pálsdóttir,
eftir því að fenginn yrði vinnusál
fræðingur sem hlotið hefði viður
kenningu Vinnueftirlits ríkisins til
að gera úttekt á samskiptum fulltrúa
í bæjarráði og bæjarstjórn Mosfells
bæjar og honum falið að gera áætlun
um úrbætur.
„Ég hef þurft að sitja undir þessu í
þrjú ár, hvern fundinn á fætur öðrum.
Það er verið að uppnefna mann og
rjúka út af fundum og sýna mikla
bræði,“ segir Sigrún. – sa / sjá síðu 4
Sálfræðingur í
bæjarstjórnina
Gengið verður til kosninga á morgun og frambjóðendur á lokametrum kosningabaráttunnar. Formenn og fulltrúar níu stærstu flokkanna mættu í settið hjá fréttastofu í gær til þess að ræða
málefnin. Þegar kom að því að stilla sér upp fyrir ljósmyndara fann formaður Miðflokksins heststyttu sem svipaði til merkis flokksins sem vakti lukku meðal leiðtoganna. Fréttablaðið/Ernir
2017
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
5
-2
3
E
8
1
E
1
5
-2
2
A
C
1
E
1
5
-2
1
7
0
1
E
1
5
-2
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K