Fréttablaðið - 27.10.2017, Side 6

Fréttablaðið - 27.10.2017, Side 6
Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . EN N EM M / S IA • N M 83 07 9 Frá kr. 197.895 m/morgunmat & hálfu fæði skv. ferðalýsingu Netverð á mann frá kr.197.895 m.v. 2 í herbergi. Innifalið: Flug, skattar, gisting í 6 nætur á Hotel Paradis Plage Surf Yoga & Spa Resort 4* m/hálfu fæði og 3 í nætur á Hótel Royal Atlas Agadir 4*+ m/morgunmat. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns. Einstök 9 nátta ferð þar sem farþegum gefst kostur á að njóta lífsins á einstaklega fallegum hótelum sem standa við strandlengju Marokkó. Á hótelunum er frábær aðstaða til að næra sál og líkama í fullkominni slökun, dekri og vellíðan - allt eftir því hvað hver og einn kýs. Flogið er beint til Agadir í Marokkó og dvalið fyrstu 6 næturnar á Paradis Plage Surf Yoga & Spa Resort og síðustu 3 næturnar á Hotel Royal Atlas Agadir. Á Paradise Plage Surf Yoga & Spa 4* er kjörið að njóta lífsins og alls hins besta sem hótelið hefur uppá að bjóða í mat, drykk og afþreyingu. Á Paradise Plage er boðið upp á jóga, nudd, tyrknesk böð og ýmsar heilsu- og nuddmeðferðir. Fyrir þá sem vilja sörfa en eru óvanir þá er hér í boði brimbrettakennsla. Unnt er að bæta við bókun á ferðinni dásamlegum 5 daga afþreyingarpökkum: Jóga með 5x90 mín. jógatímum. Jóga & Dekur með 5x75 mín. jógatímum, 2 arabískum böðum, 1 kornmaska og 2 slökunarnuddum 25/50 mín. Brimbrettaskóli með 5x90 mín. brimbrettatímum. Brimbretti & Jóga með 5x90 mín. brimbretta- og jógatímum. Brimbretti, jóga og dekur með 5x90 mín. brimbretta- og jógatímum ásamt 2 arabískum ilmolíuböðum, 2 arabískum gufuböðum og 2x25 mín. nuddum. Síðari hluta ferðarinnar er dvalið á Royal Atlas Agadir 4*+ í Agadir, sem er stærsti sólstrandarstaður Marokkó. Í Agadir er að finna gullna strandlengju eins langt og augað eygir en á þessum fallega stað skín sólin um 300 daga á ári. LÍKAMI & SÁL Í MAROKKÓ Jóga - Vellíðan - Sörf 6. nóvember í 9 nætur Frá kr. 197.895 m/morgunmat & hálfu fæði skv. ferðalýsingu – fáðu meira út úr fríinu BRIMBRETTI & JÓGA 23.000/mann JÓGA 12.500/mann ALLUR PAKKINN 36.000/mann JÓGA & DEKUR 23.000/mann PARADIS PLAGE ROYAL ATLAS Dómsmál Þrátt fyrir að flestir lög- fræðingar sem tjáð sig hafa um lög- bann á fréttaflutning Stundarinnar telji einsýnt að því verði hnekkt fyrir dómstólum geta margir mánuðir liðið áður en úr því verður endan- lega skorið með dómi. Á meðan gildir bannið. Í máli sem Jónína Benedikts- dóttir höfðaði gegn  blaðamanni Fréttablaðsins og 365-prentmiðlum ehf.  árið 2005 var kröfu um stað- festingu á lögbanni synjað á báðum dómstigum. Þrátt fyrir að héraðs- dómur hafi synjað kröfu Jónínu um staðfestingu lögbannsins stóð bannið óhaggað allt þar til niður- staða Hæstaréttar lá fyrir tæpu hálfu ári síðar. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms um að skil- yrði lögbannsins hefðu ekki verið uppfyllt. Málsmeðferðin tók átta mánuði og lögbannið var í fullu gildi allan þann tíma.  Lögfræðingar sem Fréttablaðið hefur rætt við segja ákvæði um flýtimeðferð í lögum um meðferð einkamála ekki taka til lögbanns á fréttaflutning enda er það eingöngu sá sem höfðar mál sem óskað getur flýtimeðferðar, í því tilviki sem hér um ræðir sá aðili sem höfðar mál til staðfestingar á lögbanni, en ekki sá sem þola þarf lögbannið. Aðspurð um málshraða þessara mála og málsmeðferð segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Stundar- innar, að rétt væri að færa valdið til að leggja lögbann á fréttaflutning frá sýslumanni til dómstóla. „Við mat á því hvort takmarka eigi Lögbannið á Stundina í gildi mánuðum saman Lögbann á fréttaflutning Stundarinnar mun að óbreyttu vara í marga mánuði. Lagaákvæði um flýtimeðferð fyrir dómstólum eiga ekki við. Lögfræðingar telja rétt að ákvörðun um lögbann verði færð frá framkvæmdarvaldinu til dómstóla. Höfuðstöðvar Glitnis voru við Kirkjusand. Fréttablaðið/Valli Konungleg útför Útför Rama níunda Taílandskonungs, eða Bhumibol Adulyadej, fór fram í höfuðborginni Bangkok í gær. Aduly­ adej lést þann 13. október á síðasta ári, 88 ára að aldri, og hafði þá ríkt í sjötíu ár. Gríðarlega margir sóttu útförina en konungurinn var brenndur. Duftkeri hans var ekið á þessum vagni í gegnum miðborgina. NordicpHotos/aFp Glitnir Holdco Jónína benediktsdóttir gegn stundinni gegn prentmiðlum 365 Fréttir úr gögnum 6.-13. október 2017 24. – 26. september 2005 Lögbannsbeiðni lögð fram 13. október 2017 29. september 2005 Lögbann lagt á 16. október 2017 30. september 2005 Stefna birt 23. október 2017 6. október 2005 Þingfesting máls 31. október 2017 11. september 2005 Dómur í héraði ? 14. desember 2005 Dómur í Hæstarétti ? 1. júní 2006 Lögbanni aflétt ? 1. júní 2006 tjáningu þarf sá sem vill takmarka tjáninguna að sýna fram á knýjandi samfélagslega þörf til takmörkunar- innar. Ekki er gerð sambærileg krafa að lögum að sá sem tjáir sig þurfi að sýna fram á knýjandi samfélagslega þörf til tjáningarinnar,“ segir Sig- ríður Rut og bætir við: „Í stað þess að lögin kveði á um að beiðni sé beint til sýslumanns ættu lögin að kveða á um að henni sé beint til héraðsdóms og dómara verði þannig falið að meta þetta út frá ákvæðum sem gilda um lögbann með hliðsjón af ákvæði stjórnarskrárinnar um tjáningar- frelsi.“ Sigríður Rut segir stóraukið réttar- öryggi felast í því að færa vald til að leggja lögbann á fjölmiðlaumfjöllun frá fulltrúa framkvæmdarvalds til dómstóla og vísar til mikilvægis rétt- inda fjölmiðla til að miðla fréttum og skyldu þeirra til að upplýsa almenn- ing. adalheidur@frettabladid.is ✿ Atburðarás 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -5 0 5 8 1 E 1 5 -4 F 1 C 1 E 1 5 -4 D E 0 1 E 1 5 -4 C A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.