Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2017, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 27.10.2017, Qupperneq 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Það má heldur ekki verða svo að krafan um nákvæmni í frásögn verði til þess að fréttir séu ekki sagðar fyrr en þær eru orðnar að sagnfræði. Almenningur hefur lengi kallað eftir breytingum. Óskað eftir breyttum vinnubrögðum, nýjum áherslum og annarri forgangsröðun. Stofnun Við- reisnar fyrir einu og hálfu ári var svar við þessu ákalli og stefnuskrá flokksins er í samræmi við það. Hátt matarverð, ofurvextir, misrétti í launakjörum kynjanna og skortur á húsnæði. Ekkert af þessu er lögmál heldur afleiðingar pólitískra aðgerða eða aðgerðaleysis undanfarin ár og áratugi. Í síbreytilegum heimi felst stöðugleikinn ekki í kyrrstöðu, heldur í því að brjóta upp gömul kerfi sem eru úr sér gengin og notuð til að reisa varnarmúra um sérhagsmuni fárra. Kerfi hafa tilhneigingu til að viðhalda sér sjálf. Þegar við bætast varðmenn sem dulbúa varðstöðuna sem eftirsóknar- verðan stöðugleika í stað þeirrar stöðnunar sem hún raun- verulega felur í sér, þá getur verið á brattann að sækja. Stjórnmálamenn sem hafa raunverulegan áhuga á því að beita kröftum sínum í almannaþágu verða að hafa hugrekki og dug til að ráðast að rótum vandans í stað þess að bölva afleiðingunum og lofa skyndilausnum. Þær eru í besta falli til skamms tíma og kosta íslenska þjóð heiftarlega timbur- menn eins og dæmin sýna. Verst er þó að skyndilausnir við rótgrónum kerfislægum vandamálum fela oftast í sér mikinn og jafnvel óyfirstíganlegan kostnað fyrir næstu kynslóðir. Leið Viðreisnar felst í faglegri nálgun samhliða áherslum á nauðsynlegar kerfisbreytingar og frjálslynd alþjóðasinnuð viðhorf. Jafnréttisáherslur Viðreisnar er nær óþarfi orðið að nefna, svo samofnar eru þær öllum stefnu- málum og aðgerðum flokksins. Það er kosið um samkeppnishæf lífskjör íslenskrar þjóðar í nútíð og framtíð. Þar eru húsnæðismál og matarkostnaður fjölskyldunnar, samgöngur, heilbrigðismál og velferðarmál almennt. Menntamál eru fjöregg þjóðarinnar til framtíðar með valfrelsi, sveigjanleika, nýsköpun og námstækni. Það sama á við um umhverfismálin, án nokkurs vafa stærsta jafnréttismál milli kynslóða. Á öllum þessum sviðum getum við verið í fremstu röð ef við höldum rétt á spilunum. Viðreisn hefur sýnt og sannað á stuttum tíma að þar er unnið af krafti og elju að þessum stóru málum. Við erum því ófeimin við að biðja um umboð til frekari verka. Við munum fara vel með traustið. Framtíðin er okkar Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Við- reisnar, skipar 1. sæti í Reykja- vík suður Viðreisn hefur sýnt og sannað á stuttum tíma að þar er unnið af krafti og elju að stóru málunum. 2017 Kjósum nýja forystu! F jórir blaðamenn 365 miðla voru sakfelldir í héraðsdómi í gær fyrir meiðyrði vegna frétta-flutnings af svokölluðu Hlíðamáli. Í málinu voru tveir karlmenn sakaðir um nauðgun en lögreglan vísaði málinu síðar frá vegna skorts á sönnunargögnum. Héraðsdómur hengir sig meðal annars á það að ekki hafi verið rétt að íbúðin, þar sem verknaðurinn átti að hafa átt sér stað, hafi verið „útbúin“ til nauðgana líkt og komið hafi fram í umfjöllun blaðsins. Þessi áhersla á að hanka blaðamenn fyrir tiltekin smáatriði í umfjöllun, sem síðar reynast röng eða ónákvæm, er nokkuð sem fjölmiðlamenn hafa þurft að venja sig við í seinni tíð. Það er orðin þekkt tækni í sambærilegum málum að einblína á smáatriði, sem mögulega eru röng, og beina þannig athygli frá stóru myndinni. Auðvitað á að gera þá kröfu til blaðamanna að þeir vandi sig. Þegar fréttir eru sagðar þarf hins vegar alltaf að vera eitthvert jafnvægi. Áherslan á smáatriðin má ekki verða til þess að blaðamenn hiki við eða hreinlega þori ekki að segja fréttir. Það má heldur ekki verða svo að krafan um nákvæmni í frásögn verði til þess að fréttir séu ekki sagðar fyrr en þær eru orðnar að sagnfræði. Þegar dómstólar hjálpa til við að skapa slíkt andrúms- loft getur það vart talist annað en ritskoðun. Fréttir eru nefnilega þess eðlis að þær eru gjarnan sagðar í rauntíma. Eðli málsins samkvæmt liggja þá ekki allar staðreyndir fyrir, atburðarás getur jafnvel enn verið að eiga sér stað. Dómstólar verða að eftirláta fjölmiðlum sanngjarnt andrými. Ýmislegt bendir til þess að fjölmiðlar á Íslandi búi ekki við nægjanlegan skilning frá hinu opinbera. Nægir þar að nefna nýlegt lögbann sem lagt var á umfjöllun Stundarinnar upp úr gögnum er eiga uppruna sinn hjá slitastjórn Glitnis. Starfsumhverfi fjölmiðla er eitt, en annað og verra við niðurstöðu héraðsdóms eru þau skilaboð sem send eru þolendum kynferðisbrota og fordæmið sem sett er varðandi umfjöllun um kynferðisbrot. Kynferðisbrot og baráttan gegn þeim hefur verið mikið í umræðunni bæði hér á landi og annars staðar undanfarið. Raunar má segja að leyndarhjúpur um þessi mál hafi orðið til þess að síðasta ríkisstjórn lifði ekki kjörtímabilið. Ef litið er út fyrir landsteinana hafa mál Harvey Weinstein verið í hámæli, en upplýst er að hann hafi áratugum saman misnotað og áreitt tugi kvenna og komist upp með það. Allt í skjóli leyndarinnar. Þar til nú. Leyndarhulunni hefur verið svipt af Harvey Weinstein. Ríkisstjórnin sprakk. Í þessu samhengi er niðurstaða héraðsdóms tímaskekkja. Blaðamenn verða að fá svigrúm til að fjalla um kynferðisbrot á rannsóknar- stigi. Mál Weinsteins er lifandi sönnun þess. Auðvitað kann að vera að við gerum mistök á þeirri vegferð, en viðurlögin mega ekki vera slík að umfjöllunin þagni. Sérstaklega á það við um kynferðisbrot. Of lengi hafa fórnarlömb slíkra brota horft framan í réttarkerfi sem hvorki hlustar né skilur. Það verður að segja fréttir af slíkum málum. Í því felst ekki bara rétturinn til að upp- lýsa fólk heldur líka yfirlýsing um að þolendur eiga ekki að þurfa að þjást í hljóði. Slíkt væri afturhvarf til verri tíma. Andrými Allt rosa flókið Annað árið í röð stefnir í stjórn- arkreppu ef marka má orð Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðings sem féllu í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær. Sagði hann þar að líklega yrði erfitt að mynda ríkisstjórn eftir kosningar. Útreikningar Fréttablaðsins í dag benda til þess sama. Ekki verður hægt að mynda þriggja flokka stjórn án aðkomu Sjálfstæðis- flokksins og annað hvort VG eða Samfylkingar. Hvorugur þeirra flokka þykir hins vegar líklegur til samstarfs við Sjálfstæðismenn. Erfiðlega gekk að berja saman fimm flokka stjórn eftir síðustu kosningar og má vænta þess að það verði ekki auðvelt að berja saman fjögurra flokka stjórn eftir laugardaginn. Það væri kannski ekki vitlaust að láta reyna á minnihlutastjórn. Bjargað frá foreldrunum Ófæddri stúlku var bjargað frá þeim hörmulegu örlögum í gær að vera skírð Zoe. Þetta góðverk var unnið í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær en foreldri stúlkunnar höfðu stefnt ríkinu í kjölfar þess að mannanafnanefnd hafnaði beiðni þeirra um skráningu nafnsins. Reyndar eru það alls ekkert hörmuleg örlög að vera skírð Zoe og ekki um raunverulegt góðverk að ræða. Þarna var einfaldlega brotið á rétti fjölskyldunnar með forneskjulegum viðhorfum. thorgnyr@frettabladid.is 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r16 S k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð SKOÐUN 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -3 2 B 8 1 E 1 5 -3 1 7 C 1 E 1 5 -3 0 4 0 1 E 1 5 -2 F 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.