Fréttablaðið - 27.10.2017, Síða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
V ið hjónin komum hingað í frí tveimur árum áður en við fluttum hingað. Og þetta var í fyrsta skipti sem ég kom á
stað og hugsaði með mér: Hér gæti
ég búið,“ segir Herdís Árnadóttir
sem sagði skilið við lífið á Íslandi
fyrir rúmu ári til að flytja til Tener-
ife. Þar rekur hún Íslendingabarinn
Nostalgiu ásamt manni sínum, Sæv-
ari Lúðvíkssyni.
„Við vildum bara prófa eitt-
hvað nýtt,“ segir Herdís spurð út
í af hverju hún ákvað að flytja frá
Íslandi. „Ég var í fínni vinnu og
lifði góðu lífi á Íslandi, það var ekki
málið. En mig langaði bara að gera
eitthvað nýtt, á meðan ég hefði
tækifæri til.“
Herdís hafði aldrei unnið á bar
né í veitingageiranum áður en þau
hjónin opnuðu Nostalgiu en í dag
er hún komin upp á lagið með allt
sem felst í því að reka og vinna á bar.
„Ég hafði bara verið fyrir framan
barinn,“ segir hún og hlær. „En ég
vissi að ég gæti lært þetta eins og allt
annað. Lykilatriðið er bara að hafa
gaman af fólki.“
Skötuveisla, kosningavaka
og landsleikir
Aðspurð hvort það sé hennar upp-
lifun að Íslendingar vilji hitta sam-
landa sína á meðan þeir eru í fríi í
útlöndum segir Herdís: „Já, þetta
er rosalega áhugavert. Sumir vilja
auðvitað ekki fara til útlanda til að
hitta Íslendinga né skemmta sér
með öðrum Íslendingum en fólk
er almennt áhugasamt og rosalega
ánægt með að við skyldum hafa gert
þetta.“
Herdís segir mörgu fólki þykja
mikilvægt að komast í íslenska
stemningu á íslenskum hátíðis-
dögum til dæmis. „Fólk sem er á
Tenerife yfir jól og áramót kemur
til að mynda til okkar í skötuveislu.
Og eins með alla landsleiki, fólk vill
heyra í íslenskum þulum lýsa leikj-
um og fagna með öðrum Íslending-
um. Fólk getur kannski alveg lifað
án Íslands í nokkrar vikur en þetta
er bara eins og skemmtileg félags-
miðstöð,“ segir hún glöð í bragði.
Um helgina verður haldið kosn-
ingapartí á Nostalgiu. „Í fyrra mættu
um 200 manns á kosningavöku hjá
okkur,“ útskýrir Herdís og dæsir
enda bíður hennar mikil vinna. „Í ár
erum við að búast við mjög mörg-
um. Það er orðið uppselt í matinn
hjá okkur um kvöldið, sem þýðir 60
manns. Við búumst svo við nokkur
hundruð manns síðar um kvöldið
vegna kosninganna. Hér verður
gleði fram á nótt.“
Spurð út í hvort hún sjái sjálfa sig
fyrir sér á Tenerife í mörg ár til við-
bótar segir Herdís: „Ég ætla að vera
eins lengi og ég hef áhuga á. Og ég
hef rosalega gaman af þessu núna,“
útskýrir Herdís sem sat úti á svölum
í 24 stiga hita þegar blaðamaður sló
á þráðinn.
gudnyhronn@365.is
Heldur kosningapartí
á Tenerife
Herdís Árnadóttir rekur Íslendingabar á Tenerife og gefur íslenskum
ferðamönnum og öðrum á Tenerife íslenska stemningu beint í æð.
Um helgina verður mikið að gera en þá verður haldin kosningavaka.
Herdís og Sævar fá gesti á öllum aldri á Nostalgiu. Hér eru þau ásamt yngsta gestinum sem heimsótt hefur barinn.
Íslendingar flykkjast alltaf á barinn til að horfa á landsleiki.
Í fyrra mæTTu um
200 manns á kosn-
ingavöku Hjá okkur.
kristalhofid.is • dancecenter.is
Upplifðu
DansGleðina með okkur!
-Vertu með frá byrjun!
Öll skráning fer fram á dancecenter.felog.is
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á
kristalhofid@gmail.com eða með því að hringja í síma: 777 3658
Fylgstu með okkur á Facebook!
dancecenter.reykjavik kristalhofid
KRISTALHOFIÐ
Háteigsvegi 27-29
105 RVK
Mæðgna-
& feðraDansGleði!
Hefst 28. október
nk. kl.12!
DívuDansGleði að
hætti Beyoncé!
Hefst 30. október
nk. kl.17.45!
Tónlistarsköpun!
Hefst 1. nóvember
nk. kl.18.45!
Allar nánari upplýsingar á
dancecenter.is og
kristalhofid.is
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r42 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
5
-3
7
A
8
1
E
1
5
-3
6
6
C
1
E
1
5
-3
5
3
0
1
E
1
5
-3
3
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K