Fréttablaðið - 01.11.2017, Side 29
Sardínur, sem innihalda mjög hátt hlutfall af Omega-3 fitu-sýrum, próteini og kalki, er
hægt að matreiða á ýmsa vegu. Hér
er einn nýstárlegur réttur sem er
gaman að prófa.
Fyrir 2-3 manns
2 dósir af sardínum í olíu
3 meðalstórar kartöflur
1 egg
2 skalottlaukar
1 rautt chili
Lúka af ferskum kóríander
½ tsk. chili duft (smekksatriði)
1 tsk. salt og ögn af pipar
1 msk. olía, til steikingar
1 límóna, borin fram með réttinum
Skerið kartöflur niður í litla tenginga
og sjóðið í 10-15 mín. eða þar
til mjúkir. Á meðan er skalottu-
laukurinn, chili og kóríander skorið
smátt niður. Opnið sardínudósir,
hellið vökvanum af og setjið í stóra
skál. Maukið vel þar til enginn stór
biti er eftir eða sýnileg bein. Maukið
kartöflurnar með gaffli í annarri skál
og bætið út í hina. Hrærið vel saman.
Bætið egginu út í ásamt lauknum,
chili, kóríander, chilidufti og salti og
pipar. Mótið lófastórar kökur með
höndum og ekki hafa þær of þykkar.
Ef blandan er of blaut má þykkja
hana með brauðraspi. Setið olíuna
á pönnu og hitið við meðalhita.
Steikið í nokkrar mínútur og snúið
þeim varlega við. Borið fram með
t.d. fersku salati og límónu.
Sardínu fiskikökur
Clinique dagar í Lyfju Lágmúla, Smáratorgi og
Selfossi dagana 1. – 4. nóvember.
Glæsilegur kaupauki fylgir með ef keyptar eru vörur fyrir
6.900 kr eða meira*
Kaupaukinn inniheldur:
Take The Day Off augnfarðahreinsi 30ml
Milda andlitssápu 15 ml
Clinique Smart rakakrem 7ml
Clinique Smart næturkrem 7ml
Clinique Smart serum 7 ml
High Impact maskara 3.5ml
Fallegan varalit
*Á meðan birgðir endast.
Nýtt frá Clinique! High impact Elevating maskari.
Maskari sem nær augnhárunum þínum í nýjar
hæðir, endist í allt að 12 tíma og inniheldur
kjarna olíur sem næra á þér augnhárin. Létt formúla
sem smitast ekki né flagnar. Ofnæmisprófaður.
20%afsláttur af öllum Clinique vörum
lyfja.is
Auglýsing fyrir kvikmyndina
Whisky Galore frá 1949.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Kvikmyndahús í Glasgow er byrjað að halda mánaðar-legar kvikmyndasýningar
sem eru sérhannaðar fyrir fólk sem
þjáist af elliglöpum. Sýningarnar
kallast „Kvikmyndaminningar“ eða
„Movie Memories“ og tilgangur
þeirra er að gera kvikmyndahús
aðgengilegri fyrir fólk í þessari
stöðu og vinna gegn einangruninni
sem getur fylgt sjúkdómnum.
Á síðasta ári var prófað að sýna
kvikmyndina Singin’ in the Rain
frá 1952 og það gekk mjög vel,
svo verkefnið hélt áfram í ár með
sýningum á myndinni Whisky
Galore frá árinu 1949. Sýningunum
fylgir aukaefni sem hjálpar gestum
að muna eftir myndunum og tím-
anum sem þær gerast á. Lýsingin
er aukin svo það sé auðveldara að
færa sig til í salnum og hljóðið er
aðlagað til að hjálpa gestum sem
eru heyrnarskertir.
„Greining á elliglöpum ætti
ekki að valda útskúfun úr sam-
félaginu, þannig að við höfum
samfélagslega skyldu til að sjá til
þess að fólk geti enn tekið þátt,“
sagði Jodie Wilkinson, stjórnandi
verkefnisins. „Þetta er fyrsta kvik-
myndahúsið í Glasgow sem býður
upp á svona dagskrá og við erum
stolt af því að bjóða fólki með
elliglöp, fjölskyldum þeirra og/eða
umönnunaraðilum tækifæri til að
koma í bíó.“
Gestir eru ánægðir með þetta
framtak og eru spenntir fyrir sýn-
ingum á klassísku jólamyndinni
White Christmas frá árinu 1954,
sem verður sýnd í desember.
Sama kvikmyndahús hefur áður
haldið sýningar fyrir fólk með ein-
hverfu og fyrir smábörn.
Bíó fyrir fólk
með elliglöp
Samkvæmt bandarísku flug- og geimvísindastofnuninni, NASA, ætti að skella minnst
einni plöntu á hverja 9 fermetra í
íbúðarhúsnæði eða á skrifstofunni
til að viðhalda góðum loftgæðum.
Gerð var ýtarleg rannsókn á hvers
konar lofttegundir mismunandi
plöntur hreinsuðu úr andrúms-
loftinu og á Wikipediu er að finna
lista yfir stofublóm sem hreinsa
loftið.
Meðal þessara heilsusamlegu
heimilisvina eru plöntur eins og
Sansevieria trifasciata, sem gengur
undir nokkrum nöfnum, oft
kölluð indjánafjöður, snákaplanta
eða tannhvöss tengdamóðir.
Hedera helix, eða english ivy,
er planta sem sómir sér afar vel í
hangandi potti eða staðsett á blá-
brúninni á hillu eða skáp þar sem
hún hangir afar fallega niður.
Þá er drekatré öflugur loft-
hreinsir, einnig pálmi og friðar-
lilja. www.wikipedia.org
Heilsusamlegir
heimilisvinir
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 1 . n óv e m b e r 2 0 1 7
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
0
-6
8
A
4
1
E
2
0
-6
7
6
8
1
E
2
0
-6
6
2
C
1
E
2
0
-6
4
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K