Fréttablaðið - 01.11.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 01.11.2017, Síða 30
Það er alveg nóg af boðum og bönnum í þessum heimi, en þegar kemur að jólum og jóla- skrauti er bara að njóta,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir blómaskreytir og eigandi heimilisbloggsins Skreytum hús. „Það yndislegasta við þetta allt saman er að það getur enginn bannað manni að byrja að skreyta, nema hugsanlega heimilisfólkið. Svo ef skreytivilji er fyrir hendi, þá segi ég bara: Skreyttu eins og vindurinn!“ Soffía er aðeins farin að hita upp fyrir jólaskreytingarnar heima fyrir og finnst það einkar kósí. „Um leið og dimma tekur fer mann að langa að gera meira kósí í kringum sig. Haustinu fylgja stærri teppi, jafnvel fleiri púðar og kerti, en þegar vetur gengur í garð fer að kvikna á hvítum seríum og einstaka hreindýr rekur inn nefið – enda tekur tíma að koma allri hjörðinni í hús. Og könglar, því það eru könglar í náttúrunni allt árið, sko,“ segir Soffía sem gerir greinarmun á jóla- og vetrarskrauti. „Allt sem er áfram úti í nátt- úrunni á veturna er líka fullkom- lega leyfilegt inni hjá mér. Eins og sígrænar greinar, fura og greni, könglar, hreindýr og bambar, stjörnur, börkur og allt svona nátt- úrulegt. Það sem getur svo skemmt þetta er ef viðkomandi hlutur er hlaðinn glimmeri, eða hreindýrin eru með rautt nef!“ Skrambi ertu seint að þessu! Soffía gefur lítið fyrir hæversku og feimni þegar kemur að því að vera með þeim fyrstu til að setja jóla- legan brag á heimilið. sem maður vill.“ Og við möguleg- um pirringi og neikvæðum athuga- semdum nágranna, sem helst vilja skreyta á Þorláksmessu, mundi Soffía segja: „Skrambi ertu seint að þessu!“ Og: „Ég lofa að koma ekki og skreyta heima hjá þér.“ En í alvöru hef ég aldrei heyrt neinn nágranna kvarta; það er helst að maður verði var við kvartanir í net- heimum.“ Eitt sinn skreytti Soffía heimilið í byrjun nóvember fyrir myndatöku en það var alltof snemmt. „Að vera með jólatré uppi í tvo mánuði er ekki góð skemmtun. Þess vegna er gaman að byrja bara rólega og njóta þess að setja þetta upp. Færa heimilið smám saman í hátíðabúning og gera það svolítið ævintýralegt.“ Að morgni aðfangadags er heimili Soffíu orðið alskreytt; þá er búið að leggja á borð og allt komið á sinn stað. „Mest snýst þetta um að njóta. Fyrir nokkrum árum tókum við upp á að setja löng og mjög mjó gervitré inn til krakkanna. Þau hafa haft mjög gaman af því og eru trén skreytt mismunandi eftir árum. Ein jólin var perl eftir krakk- ana til skrauts og önnur jól voru það ofurhetjur frá litla gaurnum, bangsar og stundum gerviblóm. Bara eftir því sem okkur dettur í hug,“ segir Soffía, en hjartfólgnasta jólaskrautið í hennar fórum er lítil kirkja sem er spiladós og móður- systir hennar og nafna gaf henni á bernskuárunum. Soffía segist vera með breyti- og skreytiáráttu. Hún skreyti því sjaldnast eins. „Þó eru sumir hlutir sem halda alltaf sínum sessi. Visst skraut sem þarf alltaf að fara upp og maður tengist tilfinningaböndum. Ég prófaði ein jólin að setja það mark- mið að ekkert mætti fara þar sem það hafði áður verið, og það var alveg furðu erfitt – en það er alltaf gaman að ýta sjálfum sér út fyrir þægindakassann.“ 50.000 sýna sig og sjá aðra Heimilisblogg Soffíu, Skreytum- Hús.is, er nú sjö ára og eitt það elsta sinnar tegundar á Íslandi. Facebook-hóp með sama nafni stofnaði Soffía 2014. „Því var trúr og dyggur lesenda- hópur sem fylgdi með, en orðið var fljótt að berast og hópurinn stækkaði með ógnarhraða. Fólk hefur almennan áhuga á að sjá hvað „allir hinir“ eru að gera. Ég hugsa að margir vilji fylgjast þöglir með, á meðan aðrir hafa gaman af því að sýna sitt og sjá hjá öðrum,“ segir Soffía og telur heimilið vera Íslendingum mikilvægt sökum þess hversu miklum tíma þeir verja heima. „Við búum í köldu landi og byggjum okkur skjól og hreiður sem heldur utan um okkur. Styrkur hópsins er fólginn í því að þar eru 50 þúsund manns og allar líkur á að fólk finni eitthvað við sitt hæfi, en ef ekki getur það alltaf látið ljós sitt skína og sýnt eitthvað alveg nýtt.“ „Ég sé enga ástæðu til að vera feimin við að gera það sem mann langar til heima hjá sér, og finnst það eiginlega stinga í stúf við það að heimilið er griðastaður. Það hlýtur að fela í sér að maður eigi að láta sér líða sem best og gera það Það getur enginn bannað manni að byrja að skreyta, ef skreytivilji er fyrir hendi. Soffía Dögg Garðarsdóttir Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Skreyttu eins og vindurinn! Loks kominn niðdimmur nóvember. 33 dagar í aðventu. Samt iða margir í skinninu að taka fram einstaka skraut og jólaljós í glugga. En má strax byrja að skreyta? Eða þurfum við enn að bíða? Soffía Dögg Garðarsdóttir blómaskreytir er aðeins farin að hita upp fyrir jólaskreytingar heimilisins með snjókornum, jólatrjám og ljósum. MYNDIR/ANTON Margt minnir á jólin í glugga Soffíu.Náttúran fær á sig ævintýralegan vetrarblæ, eins og sést undir glerkúpli Soffíu. NÝ SENDING AF SVÖRTUM DRÖGTUM SÍÐUM PILSUM - ODDFELLOW KLÆÐNAÐI 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . N Óv e M B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 0 1 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 0 -6 D 9 4 1 E 2 0 -6 C 5 8 1 E 2 0 -6 B 1 C 1 E 2 0 -6 9 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.