Fréttablaðið - 01.11.2017, Qupperneq 30
Það er alveg nóg af boðum og bönnum í þessum heimi, en þegar kemur að jólum og jóla-
skrauti er bara að njóta,“ segir Soffía
Dögg Garðarsdóttir blómaskreytir
og eigandi heimilisbloggsins
Skreytum hús.
„Það yndislegasta við þetta allt
saman er að það getur enginn
bannað manni að byrja að skreyta,
nema hugsanlega heimilisfólkið.
Svo ef skreytivilji er fyrir hendi,
þá segi ég bara: Skreyttu eins og
vindurinn!“
Soffía er aðeins farin að hita upp
fyrir jólaskreytingarnar heima fyrir
og finnst það einkar kósí.
„Um leið og dimma tekur fer
mann að langa að gera meira kósí í
kringum sig. Haustinu fylgja stærri
teppi, jafnvel fleiri púðar og kerti,
en þegar vetur gengur í garð fer að
kvikna á hvítum seríum og einstaka
hreindýr rekur inn nefið – enda
tekur tíma að koma allri hjörðinni
í hús. Og könglar, því það eru
könglar í náttúrunni allt árið, sko,“
segir Soffía sem gerir greinarmun á
jóla- og vetrarskrauti.
„Allt sem er áfram úti í nátt-
úrunni á veturna er líka fullkom-
lega leyfilegt inni hjá mér. Eins
og sígrænar greinar, fura og greni,
könglar, hreindýr og bambar,
stjörnur, börkur og allt svona nátt-
úrulegt. Það sem getur svo skemmt
þetta er ef viðkomandi hlutur er
hlaðinn glimmeri, eða hreindýrin
eru með rautt nef!“
Skrambi ertu seint að þessu!
Soffía gefur lítið fyrir hæversku og
feimni þegar kemur að því að vera
með þeim fyrstu til að setja jóla-
legan brag á heimilið.
sem maður vill.“ Og við möguleg-
um pirringi og neikvæðum athuga-
semdum nágranna, sem helst vilja
skreyta á Þorláksmessu, mundi
Soffía segja: „Skrambi ertu seint
að þessu!“ Og: „Ég lofa að koma
ekki og skreyta heima hjá þér.“ En
í alvöru hef ég aldrei heyrt neinn
nágranna kvarta; það er helst að
maður verði var við kvartanir í net-
heimum.“
Eitt sinn skreytti Soffía heimilið í
byrjun nóvember fyrir myndatöku
en það var alltof snemmt.
„Að vera með jólatré uppi í tvo
mánuði er ekki góð skemmtun.
Þess vegna er gaman að byrja bara
rólega og njóta þess að setja þetta
upp. Færa heimilið smám saman í
hátíðabúning og gera það svolítið
ævintýralegt.“
Að morgni aðfangadags er
heimili Soffíu orðið alskreytt; þá er
búið að leggja á borð og allt komið
á sinn stað.
„Mest snýst þetta um að njóta.
Fyrir nokkrum árum tókum við
upp á að setja löng og mjög mjó
gervitré inn til krakkanna. Þau
hafa haft mjög gaman af því og
eru trén skreytt mismunandi eftir
árum. Ein jólin var perl eftir krakk-
ana til skrauts og önnur jól voru
það ofurhetjur frá litla gaurnum,
bangsar og stundum gerviblóm.
Bara eftir því sem okkur dettur í
hug,“ segir Soffía, en hjartfólgnasta
jólaskrautið í hennar fórum er lítil
kirkja sem er spiladós og móður-
systir hennar og nafna gaf henni á
bernskuárunum.
Soffía segist vera með breyti- og
skreytiáráttu. Hún skreyti því
sjaldnast eins.
„Þó eru sumir hlutir sem halda
alltaf sínum sessi. Visst skraut sem
þarf alltaf að fara upp og maður
tengist tilfinningaböndum. Ég
prófaði ein jólin að setja það mark-
mið að ekkert mætti fara þar sem
það hafði áður verið, og það var
alveg furðu erfitt – en það er alltaf
gaman að ýta sjálfum sér út fyrir
þægindakassann.“
50.000 sýna sig og sjá aðra
Heimilisblogg Soffíu, Skreytum-
Hús.is, er nú sjö ára og eitt það
elsta sinnar tegundar á Íslandi.
Facebook-hóp með sama nafni
stofnaði Soffía 2014.
„Því var trúr og dyggur lesenda-
hópur sem fylgdi með, en orðið
var fljótt að berast og hópurinn
stækkaði með ógnarhraða. Fólk
hefur almennan áhuga á að sjá
hvað „allir hinir“ eru að gera. Ég
hugsa að margir vilji fylgjast þöglir
með, á meðan aðrir hafa gaman af
því að sýna sitt og sjá hjá öðrum,“
segir Soffía og telur heimilið vera
Íslendingum mikilvægt sökum
þess hversu miklum tíma þeir verja
heima.
„Við búum í köldu landi og
byggjum okkur skjól og hreiður
sem heldur utan um okkur. Styrkur
hópsins er fólginn í því að þar eru
50 þúsund manns og allar líkur á
að fólk finni eitthvað við sitt hæfi,
en ef ekki getur það alltaf látið ljós
sitt skína og sýnt eitthvað alveg
nýtt.“
„Ég sé enga ástæðu til að vera
feimin við að gera það sem mann
langar til heima hjá sér, og finnst
það eiginlega stinga í stúf við það
að heimilið er griðastaður. Það
hlýtur að fela í sér að maður eigi að
láta sér líða sem best og gera það
Það getur enginn
bannað manni að
byrja að skreyta, ef
skreytivilji er fyrir hendi.
Soffía Dögg Garðarsdóttir
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Skreyttu eins og vindurinn!
Loks kominn niðdimmur nóvember. 33 dagar í aðventu. Samt iða margir í skinninu að taka fram
einstaka skraut og jólaljós í glugga. En má strax byrja að skreyta? Eða þurfum við enn að bíða?
Soffía Dögg Garðarsdóttir blómaskreytir er aðeins farin að hita upp fyrir jólaskreytingar heimilisins með snjókornum, jólatrjám og ljósum. MYNDIR/ANTON
Margt minnir á jólin í glugga Soffíu.Náttúran fær á sig ævintýralegan vetrarblæ, eins og sést undir glerkúpli Soffíu.
NÝ SENDING AF
SVÖRTUM DRÖGTUM
SÍÐUM PILSUM - ODDFELLOW KLÆÐNAÐI
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . N Óv e M B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
0
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
0
-6
D
9
4
1
E
2
0
-6
C
5
8
1
E
2
0
-6
B
1
C
1
E
2
0
-6
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K