Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 48
0 kr. fyrsti mánuðurinn! Verið vel tengd MAGNOLIA OFFICINALIS Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“ SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu Sinfóníuhljómsveit Íslands lætur ekki sitt eftir liggja á Iceland Airwaves hátíðinni sem stendur nú sem hæst. Í kvöld verða tónleikar þar sem sveitin flytur fjögur verk eftir jafn margar konur sem eru í framvarðar­ sveit íslenskra tónskálda og hafa getið sér gott orð bæði hér heima og ekki síður erlendis. Tónskáldin sem um ræðir eru þær María Huld Markan Sigfúsdóttir, Hildur Guðna­ dóttir, Anna Þorvaldsdóttir og Þur­ íður Jónsdóttir en hljómsveitar stjóri verður hin finnska Anna­Maria Helsing sem er þegar orðin íslensk­ um tónlistarunnendum að góðu kunn. Anna­Maria Helsing hefur vakið mikla athygli í tónlistarheiminum á síðustu árum. Hún hefur stjórnað öllum helstu sinfóníuhljómsveitum Finnlands sem og sveitum víða um Skandinavíu og í Eystrasaltslönd­ unum en þess má geta að á árunum 2010 til 2013 var hún aðalhljóm­ sveitarstjóri sinfóníuhljómsveitar­ innar í Oulu, þá fyrst kvenna til þess að vera í forsvari finnskrar sinfóníu­ hljómsveitar. Hún segir þó að hún hafi  aldrei velt því fyrir sér hvort það sé eitthvað öðruvísi fyrir konur að starfa í heimi sinfónískrar tón­ listar. „Ég hef í raun enga hugmynd um hvort það er eitthvað öðruvísi, eftirlæt öðrum að velta því fyrir sér, vegna þess að ég vil bara einbeita mér að því sem ég geri. Þetta starf er það eina sem ég þekki og auðvitað eru miklu fleiri karlar í þessum geira en það stjórnast af hefðum og fyrri tíð og rétt að taka það fram að það gleður mig mikið að þetta skuli vera að breytast.“ Anna­Maria Helsing hefur starfað nokkuð oft áður á Íslandi, bæði með Sinfóníuhljómsveit Íslands og einn­ ig stjórnaði hún óperunni Magnus Maria eftir Karólínu Eiríksdóttur víða um Norðurlönd á sínum tíma, en þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem hún vinnur með Sinfóníu­ hljómsveit Íslands. „Ástæðan fyrir því að ég kem alltaf aftur hingað er einfaldlega hversu gott er að vinna hérna og hversu góð hljómsveitin er. Ég nýt þess mjög mikið að vinna með þessari hljómsveit og mér finnst eins og við búum að sam­ eiginlegri sýn og skilningi á tónlist. Það er góð tilfinning að vinna við slíkar aðstæður.“ Þetta er í fyrsta sinn sem Anna­ Maria Helsing starfar hér í tengslum við Iceland Airwaves hátíðina en hún segir að tónverkaskráin fyrir tónleika kvöldsins sé sérstaklega spennandi. „Þessi fjögur verk, eftir þessar fjórar konur, eru öll mjög spennandi. Ég held að þetta verði mjög forvitnilegt fyrir áheyrendur vegna þess að það eru svo ólíkir eiginleikar í þessum verkum sem gera þau alveg einstök. Við erum t.d. með verk þar sem hljómsveitin þarf að flytja bróður­ part verksins í algjöru myrkri. Verkið byrjar í myrkri en því lýkur í ljósi. Hljómsveitin sér mig svona aðeins en það gera áhorfendur hins vegar ekki og hluta af þessari tónsmíð er í raun stýrt af ljósinu og fjarveru þess vegna þess að tón­ skáldið stýrir í raun hversu mikið ljós kemur á nótnastatíf hljóðfæra­ leikaranna. Þau spila þegar og ef það kemur ljós á statífið. Þannig að ljósið stýrir þessu að hluta og svo fæ ég að stýra hinum hlutanum svona á móti ljósinu. Þetta verður öðruvísi reynsla fyrir mig, hljómsveitina og áhorfendur. Svo erum við með annað verk þar sem notast er við upptökur til við­ bótar við hljómsveitina og það er spennandi vegna þess að það getur verið erfitt að greina hvað kemur frá hljómsveitinni og hvað kemur úr hátölurunum.“ Anna­Maria Helsing segir að eftir að hún fór að vinna hér hafi það komið henni skemmtilega á óvart hvað Íslendingar eiga mikið af góðum, ungum tónskáldum. „Mér þykir mikið til koma um þetta. Hef stundum velt því fyrir mér hvað veldur en ég held að það séu ákveð­ in líkindi á milli Íslands og Finn­ lands þar sem sterk nútímatónlist er annars vegar. Munurinn er aðallega fólginn í fámenninu á Íslandi en það gerir það enn eftirtektarverðara hvað þið eigið mikið af góðum tón­ skáldum. Þó svo Finnland sé miklu fjöl­ mennara þá er það líka lítið land sem á mikið af góðum nútímatón­ skáldum. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ástæðan geti verið fólgin í því hvað við búum við harða náttúru og erum í miklum tengslum við náttúruöflin. Kannski þurfum við tónlist til þess að lifa af þessa dimmu vetrardaga, ég veit það ekki. Kannski er það vegna þess að heimurinn skilur ekki tungumálin okkar og því leitum við á náðir þessa alþjóðlega tungumáls tónlist­ arinnar. Að náttúran og tungumálið sé okkar drifkraftur í tónlistinni. Ég kann vel við þá skýringu.“ Náttúran og tungumálið er okkar drifkraftur Anna-Maria Helsing stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Iceland Airwaves tónleikum í kvöld, þar sem flutt verða tónverk þriggja kvenna sem allar eru í fremstu röð íslenskra nútímatónskalda. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Anna-Maria Helsing, hljómsveitarstjóri frá Finnlandi, stýrir Sinfóníuhljóm- sveit Íslands á spennandi Iceland Airwaves tónleikum í kvöld. Ég Held Að þettA verðI Mjög for- vItnIlegt fyrIr áHeyrendur vegnA þeSS Að þAð eru Svo ólÍkIr eIgInleIkAr Í þeSSuM verkuM SeM gerA þAu Alveg eInStök. 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r40 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 1 -F E C 0 1 E 2 1 -F D 8 4 1 E 2 1 -F C 4 8 1 E 2 1 -F B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.