Fréttablaðið - 02.11.2017, Qupperneq 48
0 kr. fyrsti mánuðurinn!
Verið vel tengd
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
Sinfóníuhljómsveit Íslands lætur ekki sitt eftir liggja á Iceland Airwaves hátíðinni sem stendur nú sem hæst.
Í kvöld verða tónleikar þar sem
sveitin flytur fjögur verk eftir jafn
margar konur sem eru í framvarðar
sveit íslenskra tónskálda og hafa
getið sér gott orð bæði hér heima
og ekki síður erlendis. Tónskáldin
sem um ræðir eru þær María Huld
Markan Sigfúsdóttir, Hildur Guðna
dóttir, Anna Þorvaldsdóttir og Þur
íður Jónsdóttir en hljómsveitar stjóri
verður hin finnska AnnaMaria
Helsing sem er þegar orðin íslensk
um tónlistarunnendum að góðu
kunn.
AnnaMaria Helsing hefur vakið
mikla athygli í tónlistarheiminum
á síðustu árum. Hún hefur stjórnað
öllum helstu sinfóníuhljómsveitum
Finnlands sem og sveitum víða um
Skandinavíu og í Eystrasaltslönd
unum en þess má geta að á árunum
2010 til 2013 var hún aðalhljóm
sveitarstjóri sinfóníuhljómsveitar
innar í Oulu, þá fyrst kvenna til þess
að vera í forsvari finnskrar sinfóníu
hljómsveitar. Hún segir þó að hún
hafi aldrei velt því fyrir sér hvort
það sé eitthvað öðruvísi fyrir konur
að starfa í heimi sinfónískrar tón
listar. „Ég hef í raun enga hugmynd
um hvort það er eitthvað öðruvísi,
eftirlæt öðrum að velta því fyrir sér,
vegna þess að ég vil bara einbeita
mér að því sem ég geri. Þetta starf er
það eina sem ég þekki og auðvitað
eru miklu fleiri karlar í þessum geira
en það stjórnast af hefðum og fyrri
tíð og rétt að taka það fram að það
gleður mig mikið að þetta skuli vera
að breytast.“
AnnaMaria Helsing hefur starfað
nokkuð oft áður á Íslandi, bæði með
Sinfóníuhljómsveit Íslands og einn
ig stjórnaði hún óperunni Magnus
Maria eftir Karólínu Eiríksdóttur
víða um Norðurlönd á sínum tíma,
en þetta er í þriðja sinn á þessu
ári sem hún vinnur með Sinfóníu
hljómsveit Íslands. „Ástæðan fyrir
því að ég kem alltaf aftur hingað er
einfaldlega hversu gott er að vinna
hérna og hversu góð hljómsveitin
er. Ég nýt þess mjög mikið að vinna
með þessari hljómsveit og mér
finnst eins og við búum að sam
eiginlegri sýn og skilningi á tónlist.
Það er góð tilfinning að vinna við
slíkar aðstæður.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Anna
Maria Helsing starfar hér í tengslum
við Iceland Airwaves hátíðina en
hún segir að tónverkaskráin fyrir
tónleika kvöldsins sé sérstaklega
spennandi. „Þessi fjögur verk, eftir
þessar fjórar konur, eru öll mjög
spennandi. Ég held að þetta verði
mjög forvitnilegt fyrir áheyrendur
vegna þess að það eru svo ólíkir
eiginleikar í þessum verkum sem
gera þau alveg einstök.
Við erum t.d. með verk þar sem
hljómsveitin þarf að flytja bróður
part verksins í algjöru myrkri.
Verkið byrjar í myrkri en því lýkur
í ljósi. Hljómsveitin sér mig svona
aðeins en það gera áhorfendur
hins vegar ekki og hluta af þessari
tónsmíð er í raun stýrt af ljósinu
og fjarveru þess vegna þess að tón
skáldið stýrir í raun hversu mikið
ljós kemur á nótnastatíf hljóðfæra
leikaranna. Þau spila þegar og ef
það kemur ljós á statífið. Þannig að
ljósið stýrir þessu að hluta og svo fæ
ég að stýra hinum hlutanum svona
á móti ljósinu. Þetta verður öðruvísi
reynsla fyrir mig, hljómsveitina og
áhorfendur.
Svo erum við með annað verk þar
sem notast er við upptökur til við
bótar við hljómsveitina og það er
spennandi vegna þess að það getur
verið erfitt að greina hvað kemur
frá hljómsveitinni og hvað kemur
úr hátölurunum.“
AnnaMaria Helsing segir að
eftir að hún fór að vinna hér hafi
það komið henni skemmtilega á
óvart hvað Íslendingar eiga mikið af
góðum, ungum tónskáldum. „Mér
þykir mikið til koma um þetta. Hef
stundum velt því fyrir mér hvað
veldur en ég held að það séu ákveð
in líkindi á milli Íslands og Finn
lands þar sem sterk nútímatónlist er
annars vegar. Munurinn er aðallega
fólginn í fámenninu á Íslandi en það
gerir það enn eftirtektarverðara
hvað þið eigið mikið af góðum tón
skáldum.
Þó svo Finnland sé miklu fjöl
mennara þá er það líka lítið land
sem á mikið af góðum nútímatón
skáldum. Ég hef stundum velt því
fyrir mér hvort ástæðan geti verið
fólgin í því hvað við búum við
harða náttúru og erum í miklum
tengslum við náttúruöflin. Kannski
þurfum við tónlist til þess að lifa af
þessa dimmu vetrardaga, ég veit það
ekki. Kannski er það vegna þess að
heimurinn skilur ekki tungumálin
okkar og því leitum við á náðir
þessa alþjóðlega tungumáls tónlist
arinnar. Að náttúran og tungumálið
sé okkar drifkraftur í tónlistinni. Ég
kann vel við þá skýringu.“
Náttúran og tungumálið
er okkar drifkraftur
Anna-Maria Helsing stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Iceland
Airwaves tónleikum í kvöld, þar sem flutt verða tónverk þriggja
kvenna sem allar eru í fremstu röð íslenskra nútímatónskalda.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Anna-Maria Helsing, hljómsveitarstjóri frá Finnlandi, stýrir Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á spennandi Iceland Airwaves tónleikum í kvöld.
Ég Held Að þettA
verðI Mjög for-
vItnIlegt fyrIr áHeyrendur
vegnA þeSS Að þAð eru Svo
ólÍkIr eIgInleIkAr Í þeSSuM
verkuM SeM gerA þAu Alveg
eInStök.
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r40 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
2
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
1
-F
E
C
0
1
E
2
1
-F
D
8
4
1
E
2
1
-F
C
4
8
1
E
2
1
-F
B
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K