Fréttablaðið - 02.11.2017, Side 62

Fréttablaðið - 02.11.2017, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ma g n ú s I n g i Sveinbjörnsson starfar sem við-mótshönnuður í San Franc-isco, skellir sér stundum í Crossfit eða frisbígolf í Golden Gate garðinum á milli þess sem hann viðrar mótorhjólið sitt. Hann vinnur líka að fjölmörgum aukaverkefnum – en eitt þeirra klár- aði hann nú á dögunum og er það appið Trúfrelsi. Appið hjálpar fólki við að skrá sig úr þjóðkirkjunni, enda hefur Magnús sterkar skoðanir á sambandi ríkis og kirkju. „Ég sá frétt um svipað snjallsíma- forrit í Noregi fyrir u.þ.b. tveimur árum. Það app aðstoðaði fólk við að handskrifa bréf til norsku kaþ- ólsku kirkjunnar og mér fannst hugmyndin um að til væri app sem hefði þennan eina tilgang vera algjör snilld. Ég byrjaði þá að kanna hvernig staðan væri á Íslandi og sá tækifæri til að taka þessa hugmynd skrefinu lengra með því að halda ferlinu öllu inni í appinu. Ég byrjaði að hanna grunnhugmyndina, fór í gegnum nokkrar mismunandi útgáfur á pappír og byrjaði svo að forrita appið sjálft. Svo tók vinnan dálítið yfir og ég náði ekki sinna verkefninu af neinu viti fyrr en fyrir rúmlega mánuði síðan þegar ég var staddur á Havaí að heimsækja kærustuna mína sem er tímabundið búsett þar. Ég nýtti því tímann þar á kaffihús- um og í rauninni hvar sem loftræst- ingu var að finna og náði að klára bæði framendann, það er að segja appið sjálft, sem og bakendann, sem sér um útfyllinguna á PDF-skjalinu og sendingu á tölvupósti, á tæpum mánuði.“ Appið er hannað til að vera ein- falt í notkun enda tilgangur þess að einfalda fólki að skrá sig utan trú- félaga. Það eina sem þarf er að skrá þær grunnupplýsingar sem Þjóð- skrá biður um, taka mynd af skil- ríkjum (ökuskírteini, vegabréfi eða ferðaskilríki) og svo skrifa undir. Það sem gerist bak við tjöldin er að appið fyllir út form A-280 og sendir það með upplýsingunum á Þjóð- skrá. Magnús segir að ferlið taki um það bil tvær mínútur. En hvers vegna er þér það svona mikið í mun að fólk geti skráð sig auðveldlega úr þjóðkirkjunni? „Trú- frelsi skráir þig utan allra trúfélaga, ekki bara úr þjóðkirkjunni þó svo að langflestir séu auðvitað skráðir þar. Hins vegar er ég sannfærður um að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin og það er svona helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að smíða þetta app. Ríkið á auðvitað ekki að vera með eitt uppáhaldstrúfélag sem fær meiri vasapening en öll hin trúfélögin, það er dálítið ósanngjarnt gagn- vart öllum hinum trúfélögunum og brýtur í bága við eiginlegt trúfrelsi. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn finnst mér það vera ákveðin tíma- skekkja að ríkið haldi úti lista yfir það hjá hvaða trúfélagi hver og einn Íslendingur er skráður. Það einfald- lega kemur ríkinu ekkert við á hvað ég eða þú trúum eða trúum ekki og því fannst mér tilvalið að reyna að setja smá pressu á Alþingi og koma þessari umræðu aftur í gang með því að auðvelda fólki að skrá sig utan trúfélaga.“ Hvernig sérð þú fyrir þér að þetta fyrirkomulag gæti verið, svona ef appið skilar sínu? „Ef okkur tekst að stíga síðasta skrefið inn í 21. öldina með því að aðskilja ríki og kirkju þá væri ekki þörf fyrir neinn til að opinberlega skrá sig í eitt eða annað trúfélag. Fólk gæti þá einfaldlega farið í sína kirkju eða mosku og borgað sín sóknargjöld þar. Trúfélögin hefðu þá fullkomið frelsi til að afla fjármuna án aðkomu ríkisins og hver og einn Íslendingur gæti iðkað sína trú í friði – það væri eiginlegt trúfrelsi.“ Trúfrelsi má nálgast á App Store en von er á Android-útgáfu fyrir jól. stefanthor@frettabladid.is Trúfrelsi beint í snjallsímann Trúfrelsi nefnist app sem auðveldar Íslendingum að skrá sig úr þjóð- kirkjunni. Magnús Ingi Sveinbjörnsson viðmótshönnuður, búsettur í San Francisco, sá einn um að hanna og forrita appið í hjáverkum. Hann er sannfærður um að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin. Að skrá sig úr Þjóðkirkjunni tekur einungis um tvær mínútur í Trúfrelsi. Ef ég á að vEra alvEg hrEInSkIl- Inn fInnST Mér það vEra ákvEð- In TíMaSkEkkja að ríkIð haldI úTI lISTa yfIr það hjá hvaða TrúfélagI hvEr og EInn íSlEnd- Ingur Er Skráður. SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 25.10.17 - 31.10.17 1 2 5 6 7 8 109 43 Með lífið að veði Yeonmi Park Jólaprjón Guðrún S. Magnúsdóttir Saga Ástu Jón Kalman Stefánsson Mistur Ragnar Jónasson Gagn og gaman Helgi E. / Ísak J. Ekki vera sár Kristín Steinsdóttir Amma best Gunnar Helgason Aftur & aftur Halldór Armand Helgi Þorvaldur Kristinsson Litla bókabúðin í hálöndunum Jenny Colgan 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð 0 2 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 2 -0 8 A 0 1 E 2 2 -0 7 6 4 1 E 2 2 -0 6 2 8 1 E 2 2 -0 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.