Fréttablaðið - 02.11.2017, Síða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ma g n ú s I n g i Sveinbjörnsson starfar sem við-mótshönnuður í San Franc-isco, skellir sér
stundum í Crossfit eða frisbígolf í
Golden Gate garðinum á milli þess
sem hann viðrar mótorhjólið sitt.
Hann vinnur líka að fjölmörgum
aukaverkefnum – en eitt þeirra klár-
aði hann nú á dögunum og er það
appið Trúfrelsi. Appið hjálpar fólki
við að skrá sig úr þjóðkirkjunni,
enda hefur Magnús sterkar skoðanir
á sambandi ríkis og kirkju.
„Ég sá frétt um svipað snjallsíma-
forrit í Noregi fyrir u.þ.b. tveimur
árum. Það app aðstoðaði fólk við
að handskrifa bréf til norsku kaþ-
ólsku kirkjunnar og mér fannst
hugmyndin um að til væri app sem
hefði þennan eina
tilgang vera algjör
snilld. Ég byrjaði
þá að kanna hvernig
staðan væri á Íslandi
og sá tækifæri til að
taka þessa hugmynd
skrefinu lengra með
því að halda ferlinu
öllu inni í appinu.
Ég byrjaði að hanna
grunnhugmyndina,
fór í gegnum nokkrar
mismunandi útgáfur á
pappír og byrjaði svo
að forrita appið sjálft.
Svo tók vinnan dálítið
yfir og ég náði ekki sinna
verkefninu af neinu viti
fyrr en fyrir rúmlega
mánuði síðan þegar ég
var staddur á Havaí að
heimsækja kærustuna
mína sem er tímabundið búsett þar.
Ég nýtti því tímann þar á kaffihús-
um og í rauninni hvar sem loftræst-
ingu var að finna og náði að klára
bæði framendann, það er að segja
appið sjálft, sem og bakendann, sem
sér um útfyllinguna á PDF-skjalinu
og sendingu á tölvupósti, á tæpum
mánuði.“
Appið er hannað til að vera ein-
falt í notkun enda tilgangur þess að
einfalda fólki að skrá sig utan trú-
félaga. Það eina sem þarf er að skrá
þær grunnupplýsingar sem Þjóð-
skrá biður um, taka mynd af skil-
ríkjum (ökuskírteini, vegabréfi eða
ferðaskilríki) og svo skrifa undir.
Það sem gerist bak við tjöldin er að
appið fyllir út form A-280 og sendir
það með upplýsingunum á Þjóð-
skrá. Magnús segir að ferlið taki um
það bil tvær mínútur.
En hvers vegna er þér það svona
mikið í mun að fólk geti skráð sig
auðveldlega úr þjóðkirkjunni? „Trú-
frelsi skráir þig utan allra trúfélaga,
ekki bara úr þjóðkirkjunni þó svo
að langflestir séu auðvitað skráðir
þar. Hins vegar er ég sannfærður um
að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin
og það er svona helsta ástæðan fyrir
því að ég ákvað að smíða þetta app.
Ríkið á auðvitað ekki að vera með
eitt uppáhaldstrúfélag sem fær meiri
vasapening en öll hin trúfélögin,
það er dálítið ósanngjarnt gagn-
vart öllum hinum trúfélögunum og
brýtur í bága við eiginlegt trúfrelsi.
Ef ég á að vera alveg hreinskilinn
finnst mér það vera ákveðin tíma-
skekkja að ríkið haldi úti lista yfir
það hjá hvaða trúfélagi hver og einn
Íslendingur er skráður. Það einfald-
lega kemur ríkinu ekkert við á hvað
ég eða þú trúum eða trúum ekki og
því fannst mér tilvalið að reyna að
setja smá pressu á Alþingi og koma
þessari umræðu aftur í gang með því
að auðvelda fólki að skrá sig utan
trúfélaga.“
Hvernig sérð þú fyrir þér að þetta
fyrirkomulag gæti verið, svona ef
appið skilar sínu?
„Ef okkur tekst að stíga síðasta
skrefið inn í 21. öldina með því að
aðskilja ríki og kirkju þá væri ekki
þörf fyrir neinn til að opinberlega
skrá sig í eitt eða annað trúfélag.
Fólk gæti þá einfaldlega farið í sína
kirkju eða mosku og borgað sín
sóknargjöld þar. Trúfélögin hefðu þá
fullkomið frelsi til að afla fjármuna
án aðkomu ríkisins og hver og einn
Íslendingur gæti iðkað sína trú í friði
– það væri eiginlegt trúfrelsi.“
Trúfrelsi má nálgast á App Store
en von er á Android-útgáfu fyrir jól.
stefanthor@frettabladid.is
Trúfrelsi beint í
snjallsímann
Trúfrelsi nefnist app sem auðveldar Íslendingum að skrá sig úr þjóð-
kirkjunni. Magnús Ingi Sveinbjörnsson viðmótshönnuður, búsettur
í San Francisco, sá einn um að hanna og forrita appið í hjáverkum.
Hann er sannfærður um að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin.
Að skrá sig úr Þjóðkirkjunni tekur einungis um tvær mínútur í Trúfrelsi.
Ef ég á að
vEra
alvEg hrEInSkIl-
Inn fInnST Mér
það vEra ákvEð-
In TíMaSkEkkja
að ríkIð haldI
úTI lISTa yfIr
það hjá hvaða
TrúfélagI hvEr
og EInn íSlEnd-
Ingur Er
Skráður.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
25.10.17 - 31.10.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Með lífið að veði
Yeonmi Park
Jólaprjón
Guðrún S. Magnúsdóttir
Saga Ástu
Jón Kalman Stefánsson
Mistur
Ragnar Jónasson
Gagn og gaman
Helgi E. / Ísak J.
Ekki vera sár
Kristín Steinsdóttir
Amma best
Gunnar Helgason
Aftur & aftur
Halldór Armand
Helgi
Þorvaldur Kristinsson
Litla bókabúðin í hálöndunum
Jenny Colgan
2 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
0
2
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
2
-0
8
A
0
1
E
2
2
-0
7
6
4
1
E
2
2
-0
6
2
8
1
E
2
2
-0
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K