Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKI 1 Haffi 777 2000 Grétar 777 2001 Stærðir 200x200 210x210 220x220 235x235 8 hyrnt RAFMAGNSPOTTAR HITAVEITU- SKELJAR Mikið úrval Frá Arctic Spas LOK Á POTTA Litir: Grátt Brúnt www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is Aðgangur kr. 600 Gott kaffi í hléi innifalið Leifur Þorsteinsson Höskuldur Jónsson Brot úr 90 ára sögu FÍ í máli og myndum Fræðslu- og myndakvöld Ferðafélags Íslands Miðvikudaginn 15. febrúar kl. 20 í sal FÍ gæti komist í pásu. Svo var manni uppálagt að eyða ekki of miklum tíma í hvern og einn, það var gjarnan talað um að það mætti ekki „dúlla of mikið með fólkið“. Magnús segir að á þessum tíma hafi ýmsum refsingum verið beitt gagnvart fullorðnu vistfólki. Algengt hafi t.d. verið að meina fólki, sem þótti ekki haga sér skikkanlega, um það sem því þótti gott, eins og t.d. kaffi. „Það voru ýmsar matarrefsingar í gangi. Svo voru sumir einfaldlega læstir lengi inni í herbergjum ef þeir voru æstir.“ Var einhver yfirmaður sem setti þessar reglur? „Ég veit það ekki, þetta hafði verið gert löngu áður en ég byrjaði þarna. En þetta fannst mér ógeðslegt og alger óvirðing við fólk. Spennitreyjur voru ekki notaðar þegar ég var þarna, en ég sá einu sinni för í gólfi eftir skrúfur og mér var sagt að þær hefði verið fyrir belti sem voru spennt yfir rúmin.“ Eigum eftir að taka stór skref Magnús segir að hafa þurfi í huga að á þessum tíma átti að koma fötluðu fólki fyrir einhvers staðar þar sem aðrir yrðu ekki varir við og það hafi mótað starfsemina. „Ég vann með fullt af frábæru fólki, sem gerði sitt besta við erfiðar aðstæður og litla hvatningu frá yfirmönnum. Margt af þessu var ungt fólk sem fór síðan í þroskaþjálfanám. En það var skortur á fagfólki og það setti mark sitt á starfsemina.“ Hver er staða þessa málaflokks í dag? Erum við að gera nógu vel? „Nei. Við eigum enn eftir að taka stór skref. Við hugsum oft um þetta fólk sem hóp og lausnirnar eru hópmiðaðar, en við þurfum að hugsa um þau sem einstaklinga.“ Eftir að Magnús hafði lokið þroskaþjálfanámi stóðu hann og nokkrir aðrir fagmenn fyrir breyttum vinnubrögðum og viðhorfum á Kópa- vogshæli og segir hann að það hafi borið skjótan árangur. Einn úr þeim hópi er Þóroddur Þórarinsson þroskaþjálfi sem hóf störf á Kópa- vogshæli árið 1980 þegar hann var tvítugur nýstúdent. „Sumt ofbeldið, sem sagt er frá í skýrslunni, rímar við það sem ég heyrði frá eldri starfs- mönnum, en ég sá það ekki sjálfur. Annað var ennþá í gangi þegar ég byrjaði að vinna þarna. Til dæmis var vatni sprautað á fólk til að fá það til að hætta tiltekinni hegðun. Ég man t.d. eftir að þessu var beitt til að fá mann, sem barði höfðinu ítrekað í vegginn, til að hætta því. Þetta var algerlega út í hött. Ef fólk er það illa statt af einhverjum ástæðum að það lemur höfðinu í vegg, þá hættir það því ekk- ert þó að það fái á sig vatn.“ „Ég er hér á lágmarkslaunum“ Önnur refsing, sem Þóroddur minnist er að vistmenn voru læstir inni í herbergjum sínum í allt að tíu klukkustundir og höfðu þá hvorki að- gang að salerni né vatni. Spurður hvers vegna starfsfólkið hafi komið svona fram við vistfólkið, segir hann líklega ekkert eitt svar við því, en það megi að einhverjum hluta skýra með skorti á starfsfólki og fag- mennsku. Á sumum deildum hafi tveir starfsmenn séð um 15 vistmenn, suma með miklar fatlanir og lítið annað verið gert fyrir fólk en að koma því á fætur. „Ég man eftir því að einu sinni ætluðum við að fara með fólkið í gönguferð og þá spurði einn starfsmaðurinn: Af hverju ætti ég að gera það, ég er hérna á algerum lág- markslaunum.“ Upplifði algert virðingarleysi Hann segir að starfsemin hafi ver- ið mjög misjöfn eftir deildum. „Á einni deildinni var t.d. opið salern- issvæði þannig að allir gátu séð þann sem var á klósettinu, bæði konur og karlar, og allir sáu hver var í baði. Það var virkilegt áfall fyrir mig að upplifa þetta algera virðingarleysi,“ segir Þóroddur. Hann hætti á Kópavogshæli árið 1985 og kom síðan aftur til starfa árið 1990 og vann þar til 2002. Síðan þá hefur hann starfað sem þroskaþjálfi, m.a. veitt sambýlum forstöðu. Þór- oddur segist vona að birting skýrslu vistheimilanefndar verði til þess að fram fari opinská umræða um að- stæður fatlaðra og að hún leiði til góðs og segir málaflokkinn síður en svo vera í ákjósanlegum farvegi. „Hvernig skyldi fólk eftir 30 ár sjá ástandið eins og það er núna? Við er- um t.d. að bjóða fötluðu fólki búsetu- úrræði sem henta því engan veginn og það eru áralangir biðlistar eftir lögbundinni þjónustu. Stefna Reykjavíkurborgar, um að leggja niður herbergjasambýli og taka upp íbúðakjarna, lítur mjög fallega út á blaði. En það er ekki verið að fram- kvæma hana og þó að það sé búið að loka stórum stofnunum eins og Kópa- vogshæli, þá er ekki þar með sagt að stofnanamenning hafi lagst af.“ Meinað um mat og vatni sprautað  Ýmsar refsingar á Kópavogshæli  Margt ógert í málefnum fatlaðra Kópavogshæli á árum áður Skýrsla vistheimilanefndar um vistun barna á Kópavogshæli kom út fyrr í vikunni.Talsverð umræða hefur verið í samfélaginu undanfarna daga um aðbúnað vistmanna, bæði barna og fullorðinna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þroskaþjálfar Magnús Helgi Björnsson (t.v.) og Þóroddur Þórarinsson störfuðu báðir á Kópavogshæli og lærðu síðan til þroskaþjálfa. BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ómannúðlegar refsingar voru enn við lýði á Kópavogshæli í upphafi 9. ára- tugarins og talsvert skorti á virðingu fyrir vistfólkinu. Þó að margt hafi breyst til batnaðar síðan þá, er enn margt ógert í málefnum fatlaðra. Þetta segja þeir Þóroddur Þórarins- son og Magnús Helgi Björgvinsson, tveir fyrrverandi starfsmenn á Kópa- vogshæli sem báðir hófu þar störf ungir, en lærðu síðan til þroskaþjálfa. „Þegar ég hafði menntað mig, þá sá ég að aðstæður voru langt frá því að vera boðlegar,“ segir Magnús þegar hann lítur til baka. Hann hóf störf á barnadeild á Kópavogshæli árið 1984, þá rúmlega tvítugur. Þá höfðu verið gerðar tals- verðar umbætur á starfseminni frá því sem áður var, fækkað hafði verið á deildum og betur hugað að því hvern- ig vistmenn áttu saman þegar raðað var á deildir og í herbergi. „En það var gríðarleg áhersla lögð á sparnað og starfsfólkið var gert mjög með- vitað um að alltaf þyrfti að vera að spara. Kópavogshæli var hluti af rík- isspítölunum og það var hugsað um þessa starfsemi á sama hátt og önnur sjúkrahús þar sem hægt væri að loka rúmum til að spara. Það var auðvitað ekkert hægt á Kópavogshæli; þetta var heimili fólksins.“ Þegar Magnús hóf þarna störf voru, að hans sögn, ýmsar óskráðar vinnureglur í gildi, sumar ómannúð- legar. „Til dæmis snerist matartíminn mikið um að láta vistfólkið borða eins hratt og mögulegt var svo starfsfólkið Skýrsla vistheimilanefndar um vistun barna á Kópavogshæli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.