Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Áfrýjunardómstóll í San Francisco hefur hafnað kröfu ríkisstjórnar Donalds Trumps um að ógilda bráðabirgðalögbann sem alríkis- dómari í Seattle setti til að stöðva gildistöku umdeildrar tilskipunar um tímabundið bann við komu fólks frá sjö löndum múslíma til Banda- ríkjanna. Þetta er álitið mikið áfall fyrir stjórn Trumps en málinu er ekki lokið og forsetinn hyggst áfrýja úrskurðinum. Ferðabannið átti að ná til fólks frá Írak, Íran, Sýrlandi, Súdan, Líbíu, Jemen og Sómalíu og gilda í að minnsta kosti þrjá mánuði, sam- kvæmt tilskipun sem forsetinn gaf út viku eftir að hann tók við forseta- embættinu 20. janúar. Forsetinn stöðvaði einnig móttöku flóttamanna í fjóra mánuði og bannaði algerlega komu flóttafólks frá Sýrlandi þar til annað verður ákveðið. Alríkisdómar- inn setti bráðabirgðalögbann á til- skipunina 4. febrúar að kröfu yfir- valda í Washington-ríki og Minnesota en stjórn Trumps áfrýj- aði lögbannsúrskurðinum. Áfrýjunarrétturinn í San Franc- isco tók ekki afstöðu til þess hvort forsetatilskipunin væri brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar um trúfrelsi og hvort hún mismunaði fólki eftir uppruna og trúarbrögðum. Dómstóllinn telur þó að tilskipunin brjóti líklega gegn reglu í stjórnar- skrá Bandaríkjanna þess efnis að enginn verði sviptur frelsi án dóms og laga. Einróma niðurstaða Embættismenn dómsmálaráðu- neytisins héldu því fram að forseta- tilskipunin væri nauðsynleg til að tryggja öryggi Bandaríkjanna vegna hættu á að hryðjuverkamenn kæm- ust þangað til að gera árásir. Þeir sögðu einnig að forsetinn hefði vald til að gefa út slíkar tilskipanir í þágu þjóðaröryggis og dómstólarnir hefðu ekki rétt til að ógilda þær. Áfrýjunarrétturinn hafnaði þessu og sagði að það væri engum vafa undirorpið að alríkisdómstólar hefðu rétt til að dæma í slíkum málum þeg- ar forsetinn væri sakaður um brot á stjórnarskránni. Sú fullyrðing að dómstólarnir hefðu ekki vald til að ógilda slíkar forsetatilskipanir sam- ræmdist ekki „grundvallarfyrir- komulagi lýðræðis okkar“. Dómstóllinn sagði að fulltrúar dómsmálaráðuneytisins hefðu ekki fært sönnur á að tilskipunin væri nauðsynleg til að tryggja öryggi Bandaríkjanna. Þeir hefðu t.a.m. ekki bent á neinar vísbendingar um að menn frá löndunum sjö, sem til- skipunin náði til, hefðu framið hryðjuverk í Bandaríkjunum. Donald Trump var fljótur að bregðast við úrskurði dómstólsins með tísti á Twitter. „SÉ YKKUR Í DÓMSALNUM. ÖRYGGI LANDS OKKAR ER Í VEÐI!“ tísti hann nokkrum mínútum eftir að úr- skurðurinn var birtur. „Þetta er póli- tísk ákvörðun,“ sagði hann seinna við fréttamenn. Forsetinn hafði áður gagnrýnt al- ríkisdómarann í Seattle og áfrýjunarréttinn í San Francisco. „Dómstólarnir virðast vera svo póli- Úrskurður- inn áfall fyrir Trump  Málareksturinn vegna ferðabannsins umdeilda talinn geta staðið í meira en ár Abe heimsækir Trump » Donald Trump tók á móti Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, í Hvíta húsinu í gær. » Abe vonar að viðræður hans við forsetann eyði óvissu um viðskipti og varnarsamstarf ríkjanna eftir að Trump lét í ljós efasemdir um varnar- skuldbindingar Bandaríkjanna og undirritaði forsetatilskipun um að landið drægi sig út úr fríverslunarsamningi við ellefu Kyrrahafsríki, TPP. » Abe sagði fyrir fundinn að samstarf Bandaríkjanna og Japans hefði verið til hagsbóta fyrir bæði löndin. Fjárfestingar japanskra fyrirtækja í Banda- ríkjunum hefðu numið alls 411 milljörðum dala og skapað 840.000 störf. » Stjórn Trumps hefur sent blendin skilaboð um tengsl Bandaríkjanna og Japans, að mati fréttaskýrenda. Abe legg- ur mikla áherslu á að tryggja sterk tengsl við Bandaríkin, m.a. vegna hættunnar sem stafar af kjarnavopnum og eld- flaugum Norður-Kóreu. Gestir virða fyrir sér snjóstyttur á árlegri snjóhátíð í borginni Sapp- oro í Japan. Hátíðin hófst á mánu- daginn var og henni lýkur á morg- un. Snjóhátíðin í Sapporo var fyrst haldin árið 1950 þegar mennta- skólanemar komu saman í almenn- ingsgarði í borginni til að búa til nokkrar snjóstyttur. Síðan hefur hátíðin undið upp á sig og um tvær milljónir manna koma í borgina til að skoða hundruð snjólistaverka. AFP Vinsæl snjóhátíð haldin í Japan lÍs en ku ALPARNIR s alparnir.is VETRARFRÍDAGAR ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727 20% - 40% afsláttur Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. www.kjaran.is | sími 510 5520

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.