Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Fréttir úr fjarska gætu komið þér úr jafnvægi í dag. Leitaðu ráða þér eldri og reyndari manna og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. 20. apríl - 20. maí  Naut Ekkert er í raun jafn ánægjulegt í lífinu eins og að tileinka sér ákveðna kunnáttu frá byrjun til enda. Tilfinningalegur ruglingur dregur úr þér. Sérhver ofurhetja þarfnast fé- laga. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ekki drengilegt gagnvart vin- um sínum að hrósa sér af óförum þeirra með því að segja „ég var búinn að segja þér þetta“. Stundum færðu ekki það sem þig vantar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hafðu hemil á ráðríki þínu ef þú vilt ekki lenda í vandræðum sem eiga eftir að draga dilk á eftir sér. Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur gleymt einhverju sem þú munt muna rétt upp úr hádegi. Ekki síst í sam- skiptum við stjórnendur, foreldra og yfirboð- ara almennt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er ekki rétti tíminn til að aðgreina sig, aðskilja eða vera einn. Hvort heldur sem er, áttar þú þig á því seinna í dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Persónulegar ástæður leysast með tím- anum eins og erfið þraut. Forðastu mann- eskju sem tekur frá þér orku með stöðugum umkvörtunum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinur hvetur þig til þess að kynna þér möguleika til náms eða útgáfu- starfsemi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú verður að brjóta odd af oflæti þínu og leita eftir samstöðu annarra við verk- efni þitt. Hann er heltekinn af ónefndri hug- mynd og ætlar sér að fá vilja sínum fram- gengt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er rétti tíminn til að láta til skar- ar skríða varðandi þær breytingar, sem þú hefur velt fyrir þér. Ef þær eru ekki á þínu valdi skaltu bara anda rólega. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er mjög góður dagur til þess að skrifa undir samninga og samkomulag við aðra. Frestaðu miklum fjárútlátum til morg- uns því þá sérðu hlutina í skýrara ljósi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur gott útsýni af stóru myndinni – já, á ekki bara að láta einhvern annan um smáatriðin? Umræðuefnið er alvarlegt og eitt er víst, þú vilt koma vel fyrir. Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns- son: Höf og lönd þar líta má. Í leik sér nýta börnin smá. Margir spá víst í þau enn. Afar fáir heita menn. Helgi R. Einarsson segir að lausnin hljómi svona þessa vikuna: Spái ég í spilin, spyr mig síðan hvort að brúa megi bilin og brúka orðið „kort“. Helgi Seljan svarar: Kortin hylja bæði höf og lönd hafa börnin kort að leika sér. Í kort að spá er spekin næsta vönd og sparað nafnið Kort sem betur fer. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Á korti líta löndin má. Litlu börnin róa kort. Konur og menn í kortin spá. Kort Jónsson í gær ég sá. Þá er limra: Hann Kort gamli Klásen af Ströndum var klofinn upp að höndum, þannig lá í því, að láðst hafði í að lengja hans axlaböndum. Og að lokum ný gáta eftir Guð- mund: Alltaf birtir meir og meir, mál er nú að rísa, hnoðað saman hef ég leir, hér er gátuvísa: Trygg og húsbóndaholl er sú. Á hjólum léleg græja. Fús til ásta, en engum trú. Oft er hún send milli bæja. Sr. Friðrik Friðriksson á Húsavík orti: Eftir sumar stutt og stirt stælist þjóðarkraftur. Það hefur fyrr og svartar syrt samt hefur birt upp aftur. Sr. Helgi Sveinsson orti: Mildur vertu manni í nauðum meðan hann er enn að strita. Seint er ást að sýna dauðum, sokkið skip þarf engan vita. Gestur Ólafsson kennari á Ak- ureyri orti eftir að hafa hlýtt á messu: Athuga þinn innri mann, er þar líkt hjá flestum. Sumir trúa á sannleikann, sumir trúa prestum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sumt er út úr kortinu en annað ekki Í klípu „EF ÞÚ HEFUR MÍNÚTU VILDI ÉG GJARNAN HLAUPA YFIR NOKKRAR AF ÞESSUM TÖLUM MEÐ ÞÉR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ MÁTT FARA TIL LAS VEGAS EF ÞÚ ERT NÓGU HEPPINN TIL ÞESS AÐ KOMAST Í GEGNUM ÞESSAR DYR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gefa henni að borða meðan hún lærir á matarprjónana sína. ELLEN, ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ FARA ÚT MEÐ ÞÉR VAAAH! HA! HA! HA! HA! EN ÞÚ ÞARFT AÐ BIÐJA MIG FALLEGA ÖFUGA SÁLFRÆÐIN VIRKAÐI EKKI ÞAÐ ER RÉTT, HR. FREUD ÉG HATA AÐ BÚA Í HÚSI MEÐ MOLDARGÓLFI! SÍÐAN HVENÆR HAFA MOLDARGÓLFIN VERIÐ VANDAMÁL? SÍÐAN FANGELSIÐ VAR OPNAÐ Í NÆSTU GÖTU! Síðast þegar Víkverji vissi varhægri umferð á Íslandi og hefur verið í gildi frá því að H-dagurinn var haldinn 26. maí 1968. Víkverji hefur samt ítrekað lent í því að þeir sem hann mætir á göngu sinni í Elliðaár- dalnum kjósi að fara eftir vinstri um- ferð. Alveg sama hvað Víkverji fer langt til hægri eru ótrúlega margir sem kjósa að stíga út fyrir stíginn til að geta farið vinstra megin framhjá. x x x Á Vísindavef HÍ segir að vinstriumferð eigi sér laga sögu: „Þeg- ar vopnaðir menn mættust, gangandi eða ríðandi, var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu meg- in og sá var, sem á móti kom. Örv- hentir riddarar urðu sjaldan elli- dauðir.“ Víkverji hefur hingað til farið óvopnaður í göngutúra svo ekki er það ástæðan fyrir þessum út- úrdúrum. Það er mjög truflandi að fólk fari ekki eftir hægri reglunni og býr til mikla óvissu og jafnvel slysa- hættu, þetta er ekki eitthvað sem á að meta hverju sinni. x x x Ef slysahættan er til staðar ágöngu, þá er hún sannarlega fyr- ir hendi á sundi. Víkverji var í Laug- ardalslauginni á dögunum og var að synda á sömu braut og kona ein sem kaus að synda vinstra megin. Þegar Víkverji hélt áfram sinni leið hægra megin fór hún vinstra megin frá sér séð, upp að bandinu sem aðskilur brautirnar og hékk í því á meðan Víkverji synti framhjá. Svona gekk þetta lengi og var mjög óþægilegt. x x x Víkverji hélt að hann myndi aldreilenda í þessu akandi en nú í vik- unni var hann að keyra rólega íbúa- götu þegar bílstjóri sem kom akandi á móti ákvað að keyra alveg til vinstri, bíða þar við gangstétt þannig að Víkverji neyddist til að fara vinstra megin við bílinn, sem hélt síð- an áfram. Mjög undarlegt. x x x En hvað táknar þetta? Kannskibyltingu? Áður fyrr ók aðallinn vögnum sínum vinstra megin á veg- inum og bolaði alþýðunni út í hægri kantinn. Núna virðast allir vilja vera aðallinn! vikverji@mbl.is Víkverji Guði séu þakkir, sem gefur oss sig- urinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! (I Kor. 15:57) Fyrir elskuna þína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.