Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 1

Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 6. F E B R Ú A R 2 0 1 7 Stofnað 1913  40. tölublað  105. árgangur  TÍU ÞÚSUND VILDU VINNU HJÁ WOW ÚRVALSLIÐ Í HANDBOLTA KARLA FYRSTA RAF- RÚTAN LOKSINS Á GÖTURNAR ÍÞRÓTTIR SÉRBLAÐ UM RAFBÍLAVIÐSKIPTAMOGGINN Agnes Bragadóttir, Jóhann Ólafs- son, Jón Birgir Eiríksson Samninganefndir sjómanna og út- gerðarmanna funduðu í Karphúsinu fram á kvöld í gær. Á tíunda tím- anum fóru síðan samninganefndirn- ar tvær í Sjávarútvegsráðuneytið, þar sem þær funduðu með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, fram eftir kvöldi. Að fundi loknum báru nefndarmenn fyrir sig fjölmiðlabann og héldu aftur í Karphúsið, þar sem enn var fundað þegar Morgunblaðið fór í prentun eftir miðnætti. Þorgerður Katrín sagði að loknum fundinum að hún hefði lagt þar fram tillögu um að farið yrði í greiningar- vinnu um fjárhagslegar afleiðingar þess ef gengið yrði að kröfum sjó- manna um skattaafslátt af fæðis- gjaldi. Slíka greiningu ætti að vera hægt að vinna hratt. „Ég lagði fram tillögu um heildstæða nálgun og greiningu og að við myndum fara hratt í að skoða fæðis- og dagpen- inga á almennum vinnumarkaði með tilliti til skattaívilnana þannig að við sjáum þá hvernig staðan er.“ Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stendur Viðreisn algerlega að baki Þorgerði Katrínu en mikill ágreiningur er í ráðherra- og þing- mannaliði Sjálfstæðisflokksins vegna afstöðu hennar í deilunni. Spurð hvort áðurnefnd tillaga gæti ekki frestað lausn deilunnar sagði hún „mjög sérstakt og eiginlega einsdæmi ef ríkisvaldið ætti að upp- fylla kröfu sem gæti sent röng skila- boð inn í komandi kjaradeilur. Á meðan loðnan er til staðar næstu vik- ur hlýtur að vera pressa á mönnum“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gengið af fundi Samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna gengu af fundi ráðherra á tólfta tímanum í gærkvöldi og fóru aftur til funda í Karphúsinu. Fundað fram eftir nóttu  Sjávarútvegsráðherra vill greina áhrif skattaafsláttar  Loðna pressar á lausn Strætó bs hefur nú ákveðið að kaupa níu raf- strætóa frá kín- verska rútufram- leiðandanum Yutong. Í fyrra varð framleiðand- inn hlutskarpastur í útboði Strætó með fjóra vagna og í útboði í nýlið- inni viku bættust fimm vagnar við. Jóhannes Svavar Rúnarsson, for- stjóri Strætó, segir að nú sé lagt mat á hvaða leiðir þessum vögnum verði ekið og þar þurfi meðal annars að taka ákvörðun um uppsetningu þar til gerðra hleðslustöðva. »Rafmögnuð framtíð Stórt stökk til rafvæð- ingar flotans  Strætó kaupir 9 rafmagnsvagna Jóhannes Svavar Rúnarsson  Á síðustu tveimur árum hafa sjö ferða- þjónustuaðilar fengið greidda 1,7 milljarða króna fyrir sölu á köfunar- og snorklferðum í Silfru á Þing- völlum, ef tekið er mið af uppgefnu verði á heimasíðum tveggja stærstu köfunarfyrirtækjanna. »ViðskiptaMogginn Köfuðu fyrir 1,7 milljarða króna MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUR OG KODDAR HEILSURÚM ALLAR STÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 Jón Þórisson Stefán Einar Stefánsson Á aðalfundi Borgunar sem haldinn verður síðdegis á morgun mun stjórn félagsins leggja til að fundur- inn samþykki að greiddur verði allt að 4,7 milljarða króna arður til hlut- hafa. Heimildarmenn Morgunblaðsins herma að búið sé að kynna helstu hluthöfum tillöguna og þeir hafi ekki hreyft mótmælum. Er því gengið út frá því að tillagan verði samþykkt einum rómi. Hagnaður félagsins á síðasta ári er á áttunda milljarð króna og með arðgreiðslunni er því ekki gengið nærri félaginu. Samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Borgunar eru eigendur fé- lagsins þrír: Íslandsbanki með 63,47% hlut, Eignarhaldsfélagið Borgun sem er nú skráð fyrir 29,38% hlut og BPS sem skráð er með 5% hlut. Íslandsbanki fær því greidda frá Borgun um þrjá milljarða, Eignar- haldsfélagið Borgun fær 1,4 millj- arða og BPS 235 milljónir. Aðalfundur síðasta árs samþykkti að greiða 2,2 milljarða arð til hlut- hafa og hefur því arðshlutur 31,2% hlutar sem Eignarhaldsfélagið Borgun keypti af Landsbankanum á 2,2 milljarða skilað kaupendum sömu fjárhæð, eða 2,2 milljörðum. Eins og kunnugt er keypti Eignarhaldsfélag Borgunar 31,2% hlut í Borgun af Landsbankanum undir lok árs 2014. Þau viðskipti urðu tilefni deilna milli aðila þegar í ljós kom að meðal eigna Borgunar var verðmætur valréttur sem virkj- aðist við sameiningu Visa Europe og Visa inc. Taldi Landsbankinn að hann hefði orðið af söluhagnaði þar sem kaupendur hefðu vitað af þessu og leynt bankann upplýsingum við kaupin. Þessu höfnuðu Borgunar- menn. Fór svo að Landsbankinn stefndi kaupendum, Borgun og forstjóra Borgunar. Enn sér því ekki fyrir endann á deilum vegna þessara við- skipta. Leggja til 4,7 milljarða arð  Með arði frá í fyrra fá kaupendur því kaupverð Borgunarhlutarins endurgreitt MViðskiptaMogginn  Flestir eru sáttir við sveitar- félagið sitt sam- kvæmt könnun Gallup á ánægju íbúa með ýmsa nærþjónustu í 19 af stærstu sveitarfélögum landsins. Ánægðastir eru íbúar í Mos- fellsbæ. Hafnarfjörður og Reykja- nesbær mældust yfir landsmeðal- tali en Árborg mældist rétt undir landsmeðaltali. »10 Íbúar Mosfellsbæjar eru ánægðastir Ánægja Könnuð var ánægja íbúa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.