Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Verðdæmi galli EN471 á 900 vsk Kulda Dickies fr 19. m/ Vandaður sýnileikafatnaður á góðu verði Flynn herforingi er hættur semöryggisráðgjafi Hvíta hússins. Hann var rúmar þrjár vikur í starfi. Víðast voru menn að byrja að leggja nafn Flynns á minnið er hann fór.    Það værisnjöll spurning í spurninga- keppni að spyrja hver hafi verið öryggisráðgjafi Obama í áraraðir. Einhverja kynni að ráma í að sú fór í fjölda sjón- varpsþátta og skrökvaði því upp að morð á bandarískum sendiherra í Líbíu stafaði af móðgandi mynd- bandi á netinu.    Það var uppspuni hjá öryggis-ráðgjafanum. Enginn gerði neitt með það.    Ekki er vitað til fulls af hverjuFlynn þessi færðist svo hratt yfir á stíg horfinna úr sögunni. Sennilegasta ástæðan sýnist enn sú að Flynn hefði sagt varaforseta Bandaríkjanna ósatt um hvað hon- um og rússneska sendiherranum fór á milli í síma.    Ein fréttastofa á veraldarvísu erþó með aðra greiningu. „RÚV“ eitt sagði að málið snerist um það hvort varaforseti Banda- ríkjanna hefði logið að þjóðinni eða Flynn foringi að varaforsetanum. Varaforsetinn fór í margar sjón- varpsstöðvar og sagði að Flynn for- ingi hefði sagt sér að hann hefði ekki rætt refsiaðgerðir Obama við sendiherrann. Um það snerust spurningarnar.    Fréttastofa RÚV skar partinnum fullyrðingu Flynns við varaforsetann framan af fréttinni til að geta ein í heiminum verið með sína skrítnu skýringu. Hún réði ekki við sig. Síst betri en Flynn STAKSTEINAR Veður víða um heim 15.2., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Bolungarvík 3 súld Akureyri 4 rigning Nuuk -17 heiðskírt Þórshöfn 8 heiðskírt Ósló -4 léttskýjað Kaupmannahöfn 0 heiðskírt Stokkhólmur 1 léttskýjað Helsinki -1 léttskýjað Lúxemborg 11 heiðskírt Brussel 13 heiðskírt Dublin 9 skýjað Glasgow 7 rigning London 9 rigning París 13 heiðskírt Amsterdam 10 heiðskírt Hamborg 6 heiðskírt Berlín 5 heiðskírt Vín 7 heiðskírt Moskva -5 skýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 13 léttskýjað Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 14 rigning Róm 12 heiðskírt Aþena 13 heiðskírt Winnipeg -13 heiðskírt Montreal 0 alskýjað New York 2 skýjað Chicago -2 heiðskírt Orlando 19 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:19 18:06 ÍSAFJÖRÐUR 9:34 18:01 SIGLUFJÖRÐUR 9:17 17:43 DJÚPIVOGUR 8:51 17:33 Svokölluð dansbylting samtakanna UN Women verður haldin í fimmta skipti föstudaginn 17. febrúar. Við- burðurinn, sem er undir heitinu „Milljarður rís Konur dansa,“ verður á milli á milli kl. 12 og 13 í Hörpu. Hann er haldinn í samstarfi við Sónar Reykjavík og Nova. Að þessu sinni verður dans í þágu kvenna sem sæta ofbeldi um allan heim. Í ár er minning Birnu Brjánsdóttur sérstaklega heiðruð. Mikil þátttaka hefur verið í þessum viðburði undanfarin ár, en hann er á fleiri stöðum sama dag. Tóku í fyrra hátt í tíu þúsund konur þátt í samkomum víðs vegar um land- ið. Í fréttatilkynningu frá UN Women er fólk hvatt til þess að nota almenn- ingssamgöngur til að koma í Hörpu en einnig verður hægt að leggja frítt í bílakjallara Hörpu meðan samkoman stendur yfir. Dansbylt- ing í Hörpu á föstudag  Heiðra minningu Birnu Brjánsdóttur Dansbylting Fjöldi mætti í fyrra. „Þetta er mikill heiður,“ segir Davíð Arnórsson, bakari hjá Stofunni bak- hús í Vestmannaeyjum, sem á köku ársins 2017. Keppnin um köku ársins var í ár haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og gerð var krafa um að kakan innihéldi skyr frá MS. Davíð segir leiðina að sigrinum hafa verið að viðhalda ferskleikanum í skyrinu. „Það eina sem ég hugsaði um voru ávextir; límóna og hindber. Ég vissi fyrir fram að það myndi passa vel, spurningin var bara hvern- ig maður fínstillti hlutföllin. Það tók nokkur skipti,“ segir Davíð, en kakan er lagskipt með möndlukókosbotni, hindberjahlaupi og skyrfrómasi með límónu. Óhætt er að segja að Davíð sé úr mikilli bakarafjölskyldu, en faðir hans, Arnór Hermannsson, er bakari og bróðir hans Orri Arnórsson er einnig bakari hjá fjölskyldubakarí- inu, Stofunni bakhúsi. Davíð segir bróður sinn eiga mik- inn heiður í kökunni því þeir bræður stóðu saman í bakstrinum en sendu hvor inn sína köku. Davíð flýgur frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í dag og hittir Elizu Reid forsetafrú á Bessastöðum í kjöl- farið, þar sem hann afhendir henni köku ársins. Það er samkvæmt venju, en kaka ársins verður fáanleg á konu- daginn, 19. febrúar, í öllum bakaríum Landssambands bakarameistara. Kaka ársins frá Vestmannaeyjum í ár  Forsetafrú fær kökuna afhenta á Bessastöðum  Kakan inniheldur m.a. skyr Bakarar Orri og Davíð Arnórssynir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.