Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Elsku Helgi minn, nú kveð ég þig með mikilli virðingu og þakklæti en fyrst og fremst með gríðarlegum sökn- uði að ég geti ekki kíkt til meist- arans míns í spjall um lífið og til- veruna. Það hefur ekki liðið sá dagur að þú hafir ekki verið í huga mér síðan ég gekk inn á heimili ykkar í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum. Ég naut þeirra forréttinda að fá að aðstoða þig í nokkur ár við þína daglegu baráttu við MND- sjúkdóminn og fyrir þann tíma verð ég ævinlega þakklát. Nokkru áður en ég hóf störf hjá þér og Hjördísi hafði ég tekið ákvörðun með sjálfri mér að ég vildi finna dýpri tilgang lífsins og leita meira inn á við. Það varst þú sem færðir mér svörin. Í hvert sinn er ég fékk tækifæri til að aðstoða ykkur fór ég ríkari heim í hjarta mínu. Þakklát fyrir litlu hlutina sem ég hafði í lífinu sem maður telur sjálf- sagða og tekur jafnvel ekki eftir. Ég fór að horfa á heiminn í öðru ljósi. Ég lærði meira að vera og njóta en gera og þjóta eins og líf mitt snérist mest um. Ég varð jafnframt snortin yfir að sjá hvernig ást ykkar Hjördísar var skilyrðislaus í þessu erfiða verk- efni. Ég varð snortin yfir þeim kærleika sem þú hafðir laðað til þín frá vinum og fjölskyldu. Ég varð snortin yfir lífssvilja þínum, æðruleysi og þakklæti sem þú sendir frá þér á hverjum degi og þannig færðir þú mér svörin um tilgang lífsins. Þú fékkst mig til að skilja að tilgangur lífsins er upp- lifun. Þú sem stofnaðir eina flottustu ferðaskrifstofu landsins með það markmið að fólk gæti upplifað heiminn og ferðast, kenndir okkur svo í lokin að við þurfum ekki allt- af að vera á ferðalagi – til að upp- lifa. Það er hægt að upplifa í kyrrðinni, þögninni í huganum. Alla ævi hefur þú með kærleika, gleði, drifkrafti og dugnaði unnið hörðum höndum og uppskorið laun í veraldlegum gæðum, ynd- islegum minningum og kynnum við frábært fólk. En stóra dóminn Helgi Jóhannsson ✝ Helgi Jóhanns-son fæddist 23. apríl 1951. Hann lést 6. febrúar 2017. Helgi var jarð- sunginn 15. febrúar 2017. fékkstu svo þegar síst var von á. Þrátt fyrir það hélstu áfram að færa heim- inum sterk skilaboð. Ekki með fram- kvæmdagleði og leiðtogahæfileikum eins og þú gerðir áð- ur heldur með lífs- svilja og æðruleysi í erfiðustu aðstæðum sem nokkur maður getur fengið. Ég veit að þú þráðir ekkert heitara en að geta verið besti afi í heimi. Þú varst orðinn tilbúinn að helga líf þitt börnunum og barnabörnum og varst farin að hlakka til að hafa loksins tíma til að njóta fjölskyldu þinnar með Hjördísi þinni sem þú elskaðir meira en allt. Þér fannst þú þó ekki getað verið til staðar á þann hátt sem þú vildir. En, elsku Helgi, þú færðir fólkinu þínu besta veganesti sem nokkur afi, pabbi og eiginmaður getur gefið. Þú kenndir fjölskyldu og vinum að maður gefst ekki upp nema í fulla hnefana. Maður berst fyrir því sem mestu máli skiptir, lífinu sjálfu, ástinni og þránni að vera sem lengst í kringum þá sem mað- ur elskar mest. Þú elskaðir að dansa og ég fann taktinn þinn alltaf þegar við spil- uðum okkar uppáhaldstónlist í botni og ég söng hástöfum falskt með. Það var ekki ósjaldan sem einhverjir komu forvitnir inn til að spyrja hvort það væri partí, okkur leiddist aldrei saman. Við eigum mörg uppáhaldslög sem ég nýt að hlusta á og rifja upp góðu tímana með söknuði. Ég óskaði þess oft að við hefðum getað tjúttað sam- an, tekið snúning en ég veit það verður seinna, þar sem við hitt- umst næst. Minningin þín og lífsbarátta mun lífa í mér alla ævi. Góða ferð, nú ferðu í langt ferðalag. Guðrún Jónína Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Í dag kveðjum við fyrrverandi framkvæmdastjóra okkar og góð- an vin Helga Jóhannsson, sem er nú farinn í sitt hinsta ferðalag. Það er á svona stundu sem maður fyll- ist þakklæti fyrir að hafa átt sam- leið með honum í mörg ár. Við er- um hluti af stórum og góðum hóp starfsmanna sem nutu þeirra for- réttinda að vinna á Samvinnuferð- um-Landsýn, því góða og skemmtilega fyrirtæki sem ekki síst vegna styrkrar stjórnar Helga Jóhannssonar var frábær vinnustaður, þar sem ríkti sam- heldni og einhugur. Helgi var afburða stjórnandi og hreif okkur með sér með áræði sínu, hugmyndum og eldmóði. Það var engin lognmolla í kringum hann. Hans mikla keppnisskap var ávallt til staðar. Hann kom stöðugt á óvart með ýmsar nýj- ungar og var fundvís á leiðir til að gera landsmönnum kleift að ferðast á kjörum sem ekki höfðu áður þekkst og braut þar með upp hefðbundið ferðamunstur með að- ildarfélagsflugi, reyklausu flugi, miðalausu flugi, flugi og pasta og öðrum skemmtilegum uppákom- um. Hver man ekki þegar tjaldað var næturlangt fyrir utan Sam- vinnuferðir-Landsýn í Austur- stræti til að freista þess að kaupa sér ferð á áður óþekktu verði. Helgi var frumkvöðull í að nota breiðþotur til að bjóða Íslending- um upp á ferðir í beinu flugi á framandi slóðir vítt og breitt um veröldina – á staði sem voru svo fjarlægir – en allt í einu svo nálæg- ir. Ein var sú ferð, þar sem reyndi á sannfæringarmátt Helga, að fá okkur í lið mér sér, en það var hugmynd hans árið 1996 að fara með 500 manns til Kúbu og láta vélina bíða þar á meðan. Það tókst, ferðin var farin, sló í gegn og fjölmargar fylgdu í kjölfarið. Þökk sé kjarki og víðsýni Helga. Helgi átti eins og venja er með slíka eldhuga margar hliðar og ein var sú sem við starfsfólkið hans nutum sérstaklega góðs af. Hann var ljúfur í viðmóti og það var gott að leita til hans. Hann var einstak- lega raungóður og ef einhvers staðar voru erfiðleikar þá studdi hann okkur og styrkti með sinni alkunnu ljúfmennsku. Hann var ávallt tilbúinn að leiðbeina okkur og kenna okkur að hugsa alltaf í lausnum. Helgi var vinur okkar og félagi. En Helgi kunni einnig að njóta lífsins, og það er gott að eiga góðar minningar um gefandi samveru- stundir á Íslandi og erlendis. Hann hafði einstaklega skemmti- lega frásagnargáfu og sagði sögur með tilþrifum og með því hljóm- falli sem tilheyrði hverju sinni. Einar af þeim minningum sem koma upp í hugann eru jólaboð þeirra hjóna á fallega heimilinu þeirra í Kleifarselinu sem var ár- viss viðburður og mikil var til- hlökkunin að mæta þar – því þau hjónin kunnu sannarlega þá list að bjóða fólk velkomið. Þar var upp- haf jólanna okkar í mörg ár. Nú er Helgi okkar farinn á nýj- an áfangastað. Við þökkum hon- um samfylgdina, vináttuna, traustið og allar skemmtilegu samverustundirnar. Góða ferð, kæri vinur. Elsku Hjördís, við vottum þér, sonum ykkar og fjölskyldum, okk- ar dýpstu samúð. Auður Björnsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Edda Björg Sig- urðardóttir, Greta Marín Pálmadóttir, Guðlaug Þráins- dóttir, Inga Engilberts, Lilja Hilmarsdóttir, Margrét Helga- dóttir, Ragna Kristjánsdóttir, Sigríður V. Árnadóttir. Það er með mikilli væntum- þykju sem ég minnist Helga Jó- hannssonar vinar míns og vinnu- félaga á Samvinnuferðum-Land- sýn. Helgi var mikill frumkvöðull og ólíkindatól sem fór leiðir sem aldrei höfðu verið farnar. Á sama hátt tókst hann á við erfið veikindi og þótt vitað væri hvert stefndi var áfall þegar kallið kom. Helgi Jóhannsson var leiðtogi með stjórnunarhæfileikana í gen- unum. Honum tókst á sinn ein- staka hátt að fá alla með sér og laðaði fram það besta í hverjum og einum. Okkur fannst hverju og einu við vera sá allra dýrmætasti starfsmaður sem fyrirtækið ætti og lögðum okkur því 100% fram. Helgi skapaði vinnustað sem var ein stór fjölskylda og ég var í hópi þeirra heppnu sem unnu á Sam- vinnuferðum-Landsýn. Helga tókst að skapa vinnustað sem við vorum öll stolt af, við hlökkuðum til að mæta í vinnuna, bárum virð- ingu fyrir samstarfsmönnum, fengum krefjandi verkefni og höfðum stefnu og markmið á hreinu. Starf Helga einkenndist af miklum metnaði fyrir sjálfan sig og ekki síður fyrir fyrirtækið og hann hafði úthald til að fylgja eftir hugmyndum sínum. Helgi gleymdi ekki því allra mikilvæg- asta á hverjum vinnustað en það er að fagna. Óspart var fagnað litlum sem stórum sigrum og veislurnar margbreytilegar inn- anlands sem utan. Eftirminnileg- ustu veislurnar voru árlegu jóla- boðin heima hjá Helga og Hjördísi þar sem tekið var á móti öllum starfsmönnum, boðið upp á heitt jólaglögg, heimagert konfekt og fleira góðgæti. Það er margs að minnast og mikið að þakka. Ég flyt Hjördís, sonunum Gunnari, Óttari, Halli og fjölskyldum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Gunnhildur Arnardóttir og fjölskylda. Kvöld eitt einhvern tímann á ní- unda áratugnum sat ég við sjón- varpið og horfði á fréttir. Brúnn Pontiac – R-62118 – rennur inn á bílastæði einhvers staðar í Breið- holti. Út úr honum stekkur snagg- aralegur maður í bláum frakka með blómvönd. Tilefnið var að af- henda fimm barna móður blóm- vönd og gjafabréf fyrir fjölskyld- una í sumarhús í Hollandi. Þetta voru fyrstu kynni mín af Helga Jóhannssyni, forstjóra Samvinnuferða-Landsýnar. Nokkrum árum síðar hitti ég manninn þegar ég mætti í starf- sviðtal á 5. hæðinni í Austurstræt- inu. Sami snaggaralegi náunginn og blái frakkinn á herðatrénu. Við- talið gekk bærilega og við áttum gott samstarf næstu 10 árin. Helgi Jóhannsson var frum- kvöðull í ferðalögum Íslendinga. Á níunda og tíunda áratugnum stóðu Samvinnuferðir fyrir sólarlanda- ferðum í breiðþotum á verði sem erfitt var að keppa við. Slagorð fé- lagsins „Á verði fyrir þig“ endur- speglaði stöðu skrifstofunnar vel. Verðið var hagstætt auk þess sem skrifstofan var helsti samkeppnis- aðili Flugleiða og ferðaskrifstofa í eigu flugfélagsins. Helgi og Sam- vinnuferðir stóðu fyrir breiðþotu- ferðum til fjarlægra landa s.s. Kúbu, Egyptalands, Kenýa, Ind- lands og Bahamaeyja. Almenningi gafst þannig kostur á að heim- sækja fjarlæga áfangastaði á verði sem fram að þessu hafði verið mun hærra. Velta Samvinnuferða og umsvif jukust mjög hratt undir stjórn Helga. Ótal nýjungar voru kynntar undir hans stjórn. Nýj- ungar sem almenningur naut góðs af. Um aldamótin síðustu stofnaði Helgi Sumarferðir, fyrstu ferða- skrifstofuna á netinu. Í dag er þetta algengasta aðferð Íslend- inga við ferðabókanir. Helgi var þarna framsýnn, sókndjarfur og hugmyndaríkur eins og svo oft áð- ur. Helgi var gamansamur, sagna- maður mikill, vinsæll meðal starfs- manna, viðskiptavina og birgja. Sem forstjóri Samvinnuferða var hann markaðsmaður, framsækinn, þrautseigur og fylginn sér. Hann spilaði sóknarbolta, skoraði mörg mörk og fékk á sig nokkur mörk af og til – en sigraði alltaf á marka- hlutfallinu. Undanfarin ár hafa verið varn- arleikur hjá Helga Jóhannssyni. Þrautseigjan var enn til staðar en úrslitin liggja nú fyrir. Harðri bar- áttu er nú lokið. Baráttu sem hann fékk dyggan stuðning við frá eig- inkonu og fjölskyldu. Ég votta Hjördísi og fjölskyldu Helga innilega samúð og kveð fyrrverandi samstarfsmann með hlýju og góðum minningum. Kristján Gunnarsson. Elsku besti afi. Elsku afi okkar var yndislegasti maður sem var til á þessari jörðu. Hjálpaði okkur krökkunum mjög mikið og gerði líf okkar auðveldara og skemmtilegra. Hann kenndi okkur margt og var alltaf að leika við okkur. Hann fór með okkur út í fótbolta í hvaða veðri sem var, maður þurfti varla að spyrja, hann var byrjaður að reima á sig takka- skóna. Svo kenndi hann okkur krökkunum að spila golf því hann var svo góður kennari. Afi var glaðlyndasti maður sem við þekkj- um, alltaf brosandi og sáum við hann aldrei reiðan. Það góða við afa var að hann var svo hugrakkur og gafst aldrei upp þó á móti blési. Þó að þú sért ekki lengur hér hjá okkur þá verður þú alltaf með okkur í hjarta okkar. Við elskum þig út af lífinu og trúum því að við hittumst aftur. Við sendum engla til þín til að passa þig. Þín barnabörn, Daníel Darri, Oliver Orri og Sara Sól. Helgi kallaði mig alltaf stelpuna sína. Veit ekki af hverju, sennileg- ast vegna þess að hann átti þrjá stráka og því hafi ég verið stelpan hans að vissu leyti. Við Gunnar, elsti sonur hans, byrjuðum að stinga saman nefjum mjög ung, mér var afskaplega vel tekið af þeim hjónum og varð fljótt hluti af fjölskyldunni. Helgi hafði þessa lágróma og yfirveguðu rödd sem einkenndi hann en var samt svo svalur, enda frá Keflavík þar sem allt var að gerast í tónlist og tísku. Bílarnir hans Helga, ég hafði aldrei séð svona flottan am- erískan kagga eins og dumbrauða kadillakinn hans. Mér fannst hann svo mikill heimsborgari, það var Kvöldið sem ég frétti að Jónsi lægi fyrir dauðanum var ég að koma úr sundi með sjö ára dóttur minni. Þetta voru þungbær tíðindi. Á göng- unni heim á leið skein hins vegar kunnugleg stjarna afar skært á kvöldvetrarhimninum, svo ég mátti til með að stoppa og sýna henni hana. Orðrétt voru við- brögð hennar: „Þá hefur einhver dáið.“ Upp úr þurru. Og svo tók hún til við að útskýra fyrir mér hvernig fólk verður að stjörnum þegar það deyr og eitthvað flétt- uðust þeir Guð og Jesús svo inn í þessa heimsmynd. Hún talaði af sannfæringu um eitthvað sem ég hef aldrei sagt henni og skil ekki alveg, veit ekki hvaðan þetta kemur. Fjölskyldur þurfa enda ekki að segja manni allan sann- leikann. Þær kenna manni sög- una og þá á maður bara að hlusta. Jónsi dó reyndar ekki þennan dag og mér finnst ólíklegt að hann sé eða hafi verið Venus. Hann var Jónsi frændi, sem á Jón Aðalsteinsson ✝ Jón Aðal-steinsson fæddist 20. apríl 1932. Hann lést 30. janúar 2017. Jón var kvaddur í Neskirkju 10. febrúar 2017. fyrstu árum ævi minnar var eins og hver önnur fjarlæg sögupersóna og lifði í gegnum frásögnina um eldri systkin sem sögðu minni systkin- um að mannætunum í Tarzan-bókum þætti best að borða rauðhærð börn. Um hæfileika hans í tón- list og spilamennsku var einnig oft rætt á mínu heimili. Síðar meir átti ég reglulega er- indi suður, fékk gistingu hjá Jónsa og Maríu og kynntist þeim. Þetta voru góðir dagar, uppfullir af útvarpshlustun og rifrildum við sjónvarpsskjáinn þar sem flestir þáverandi stjórnmálamenn á Ís- landi nema mögulega Svavar Gestsson fengu að kenna á því. Þetta var fyrir aldamót. Fyrir ungan, þenkjandi mann í mennta- skóla var afstaðan og afdráttar- leysið heillandi. Maður hlustaði og skeggræddi um pólitík tímun- um saman. Það var léttlynd al- vara í þessu leikriti: skætingur- inn gagnvart einkavæðingunum og samfélaginu sem var fylgdi dökkum lífshúmor og þung- brýndum Kristnessvip, en allt vék það síðar meir fyrir um- ræðum um líflegri málefni eins og djass og spuna. Eitthvert skiptið barst talið að ættmennum, fólkinu sem er farið. Hann sagði mér af nokkrum eld- móð að mín kynslóð þyrfti að læra sögurnar af hans kynslóð. Margt þeirra sagna situr eftir og fær að bíða. Svo fórum við yfir sameig- inlegt málefni, vorum báðir með rætur í Hrafnagilshreppi í útlegð sunnan heiða. Þetta varð ekki löng umræða, mig minnir hann hafi eytt talinu nokkurn veginn með þeim orðum að það geti ekki allir búið saman á sama stað, allt- af. Það var svo sem ekki það sem ég meinti með þessu tali, en þetta var niðurstaða sem hæfði. Ef ég man rétt var meira að segja búið að fara yfir og ræða dauðann. Enda er dauðinn ekki þessi dularfulla andstaða gagn- vart lífinu sem margir halda. Það er fæðingin annars vegar og dauðinn hins vegar – þetta eru andstæðurnar og lífið er bara þarna á milli. Það hvar við vorum áður en við urðum til er í raun sama spurning og hvar við verð- um eftir að við hættum að vera til. Í Harðar sögu Grímkelssonar segir að það séu almæli að menn verði líkastir móðurbræðrum sín- um. Úr því sem orðið er, er bara að vona það besta. Fjölskyldu hans votta ég samúð mína og kveð þennan hæfileikamann með þökkum fyrir liðnar stundir. Hjálmar Stefán Brynjólfsson. Er ég mætti til „vinnu“ á mín- um fyrsta degi í fyrsta verklega „kúrsusnum“ forðum var mér bent á Jón Aðalsteinsson, sem þarna var þá í stöðu „reynds kandídats“. Stóð Jón raunar álengdar og horfði á mig rann- sakandi augnaráði. Hann var hægur í fasi, ekki margorður. Kom eins fram við alla er á vegi okkar urðu. Stíll hans var lær- dómsríkt fordæmi. Hann kenndi fullt eins með því að spyrja en að svara öllu sjálfur. Tíminn leið næstum fullhratt. – Jón stimpl- aðist rækilega inn í minnið. – Þrátt fyrir skamma viðdvöl og þótt í árafjöld eftir þetta höfum við hist aðallega „á hlaupum“, hugsaði ég alltaf til Jóns sem trausts vinar. Svo vel vildi til að fyrir milli- göngu vinar og félaga okkar beggja, Brynjólfs Ingvarssonar, skólabróður míns og mágs Jóns, þá endurnýjuðum við kynnin fyr- ir nokkrum árum. Jón var þá fluttur hingað í bæinn að loknum starfsdegi. Fórum við Brynjólfur af og til að skreppa í heimsóknir og kaffispjall hjá þeim Jóni og Maríu konu hans og var vel tekið af báðum. Sláandi fannst mér þá hve tíminn virtist hafa „þjappast saman“. Allt var eins og andinn var samur, ef ekki ívið brattari. Í Jóni fóru saman félagslynd- ur, frumlegur grín-unnandi, al- vörugefinn maður, með keim af greindarlegum áhyggjusvip. Stöðugt leitandi og heimspeki- lega þenkjandi um lífið og til- veruna, margfróður fagurkeri og fjölhæfur læknir, áhugasamur um fag sitt og loks bjó músíkin Elsku mamma mín. Þú varst sú allra besta móðir sem hægt væri að velja sér. Án efa fáir, það er mín trú, sér áttu göfugra hjarta en þú, að vakti mér löngum lotning; í örbirgð mestu þú auðugust varst og alls skyn skapraun og þrautir barst sem værir dýrasta drottning. Ég hef þekkt marga háa sál, ég hef lært bækur og tungumál og setið við lista lindir. En enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir. Sveinbjörg Val- gerður Karlsdóttir ✝ SveinbjörgValgerður Karlsdóttir fædd- ist 2. janúar 1927. Hún lést 8. febrúar 2017. Útförin fór fram 13. febrúar 2017. Ég kveð þig, móðir, í Kristi trú, sem kvaddir forðum mig sjálfan þú á þessu þrautanna landi. Þú, fagra ljós, í ljósinu býrð, nú launar þér guð í sinni dýrð, nú gleðst um eilífð þinn andi. (Matthías Jochumsson.) Ég get aldrei þakkað þér nóg fyrir allt, elsku mamma. Þú ert svo stór hluti af mínu hjarta. Þar geymi ég allar okkar minningar og ég mun elska þig að eilífu. Þið pabbi voruð alltaf svo sam- rýnd og samheldin. Ég veit að elsku pabbi bíður þín með opnum örmum ásamt Helga Þór syni mínum og öllum ættingjum og vinum sem horfnir eru. Sjáumst síðar í Draumaland- inu. Þín elskandi dóttir, Guðrún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.