Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Það var að frumkvæði Guðna Th. Jó- hannessonar, forseta Íslands, að Margrét Danadrottning sæmdi Guð- mund Þórð Guðmundsson, hinn ís- lenska landsliðsþjálfara Dana, ridd- arakrossi Dannebrog-orðunnar í tengslum við opinbera heimsókn Guðna til Danmerkur í janúar síðast liðnum. Hvorki danskir fjölmiðlar né forystumenn danska handbolta- sambandsins höfðu vitneskju um það fyrr en í gær að Guðmundur hefði orðið þessa heiðurs aðnjótandi. Per Bertelsen, formaður danska hand- knattleikssambandsins, lét þá í ljós mikla ánægju yfir viðurkenningunni. „Þetta er frábært, virkilega flott og þetta er meiriháttar virðing,“ var haft eftir honum á sjónvarpsstöðinni TV2. Örnólfur Thorsson forsetaritari segir að venja sé að veita heiðurs- orður í tilefni af opinberum heim- sóknum þjóðhöfðingja. Hafi forseti Íslands komið nokkrum nöfnum á framfæri við undirbúning opinberrar heimsóknar til Danmerkur í síðasta mánuði. Endanleg ákvörðun um það hverjir hlutu orðu var hins vegar í höndum Margrétar drottningar og kom tillagan formlega frá henni.Auk Guðmundur hlutu fulltrúar í hinni op- inberu sendinefnd Íslands orður drottningar og að auki nokkrir Ís- lendingar sem forseti Íslands stakk upp á: Ólafur Elíasson myndlistar- maður, Böðvar Guðmundsson rithöf- undur, Sigríður Eyþórsdóttir kór- stjóri, Tryggvi Ólafsson myndlistar- maður, Auður Hauksdóttir forstöðu- maður Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur, Jóhann Sigurðsson útgefandi Íslendingasagna og Hulda Þórisdóttir lektor við Háskóla Ís- lands. Guðmundur lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Dana í sumar en áð- ur en af því kemur stýrir hann danska liðinu í fjórum leikjum í und- ankeppni EM í vor. Ekki liggur fyrir hvað Guðmundur tekur sér fyrir hendur eftir að hann hættir. Frumkvæðið að orðunni kom frá forseta Íslands AFP Heiðursorða Guðmundur Þórður Guðmundsson, hinn íslenski landsliðs- þjálfari Dana, er talinn vel að viðurkenningu Danadrottningar kominn.  Veiting Dannebrog-orðunnar til Guðmundar Þ. Guð- mundssonar vekur athygli í Danmörku SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Opnað var fyrir borholu ÞG-13 á Þeistareykjum í fyrsta sinn í fyrra- dag og hún látin blása. Holan verður látin blása í fimm til sex vikur áður en í ljós kemur hve aflmikil hún er. Nú þegar er til reiðu nægt gufuafl til að knýja fyrri vél Þeistareykja- virkjunar sem gangsetja á í haust. Stefnt er að gangsetningu seinni vélarinnar í apríl 2018. Hvor vél er 45 MW og verður virkjunin því 90 MW þegar fullum afköstum hefur verið náð. Valur Knútsson stýrir Þeista- reykjaverkefninu hjá Landsvirkjun. Hann sagði að á liðnu ári hefðu verið boraðar fjórar holur á Þeista- reykjum. Bora á fjórar holur til við- bótar á þessu ári, en holurnar sem boraðar eru í þessari lotu verða allar stefnuboraðar. Flestar ná niður á um tveggja kílómetra dýpi og eru um 2,5 km langar hver um sig. Eftir borun er hver hola látin hitna í ákveðinn tíma og ná upp þrýstingi áður en hún er látin blása. ÞG-13 var sú þriðja af nýju holunum sem sett hefur verið í blástur. „Við erum komin með mælingu á afköstum fyrstu holunnar, sem boruð var í fyrra, og hún lofar mjög góðu. Hinar eru enn að blása. Árang- urinn virðist ætla að vera í góðu meðallagi hjá okkur,“ sagði Valur. Spurður um kostnað við boranir sagði hann að umfang borverks væri almennt um þriðjungur af heildar- kostnaði við gufuaflsvirkjun. Hvor vél þarf átta borholur Samkvæmt reynslu á Þeistareykj- um þarf um átta virkar borholur til að knýja hvora vél virkjunarinnar. Við upphaf framkvæmda var búið að afla gufu fyrir ríflega 50 MW raf- magnsframleiðslu úr átta virkum holum. Reiknað er með að nýju holurnar fjórar muni skila um 25 MW. Stefnt er að því að ljúka borun á þeim fjór- um holum sem boraðar verða á þessu ári á Þeistareykjum í haust, að sögn Vals. Orkuöflunin er því að nálgast 90 MW í heildina. Nauðsynlegt er að hafa varaholur til að tryggja rekstraröryggi stöðvarinnar, og því er stefnt að því að hafa til reiðu gufu- afl sem samsvarar 100 MW við upp- haf reksturs. Ljósmynd/Hreinn Hjartarson Þeistareykir Borhola ÞG-13 blæs nú tignarlegum gufustrók upp í loftið. Bora á fjórar nýjar holur á þessu ári. Gott útlit með nægt afl á Þeistareykjum  Opnað var fyrir holu ÞG-13 í fyrradag og hún látin blása Ljósmynd/Hreinn Hjartarson Gufuöflun Borholurnar á Þeistareykjum ná niður á um 2 km dýpi. Óvenjuleg hlýindi undanfarið hafa hvorki farið framhjá fólki né gróðri. Gróður er sums staðar farinn að taka við sér líkt og vorið sé að koma. „Það er ástæðulaust að hafa áhyggjur enn sem komið er, en það getur verið áhyggjuefni ef hlýindin halda áfram og svo kemur hret,“ sagði Þórólfur Jónsson, deild- arstjóri náttúru og garða hjá Reykjavíkurborg. Hann sagði að þessi hlýi febrúarkafli væri að verða óvenju langur. Margur gróður tekur við sér eftir að ákveðnum uppsöfnuðum hita er náð. Komi kuldakafli eftir hlýindin þá stöðvast vöxturinn. Hafi gróður- inn verið byrjaður að bæra á sér þá bregst hann hraðar við næst þegar hlýnar, að sögn Þórólfs. Veðurspáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri eftir næstu helgi og það mun væntanlega hægja á allri gróðurframvindu. Þórólfur sagði að ýmsir laukar og runnar sem standa á góðum stöðum væru farnir að bæra á sér. Inn- fluttar tegundir frá suðlægari breiddargráðum geta látið svona hlýindakafla plata sig. Þótt þær verði fyrir áföllum og kali eitthvað þá ná plönturnar sér yfirleitt aftur á strik. Íslenska birkið lætur hins vegar hlýindin ekki plata sig heldur tekur það við sér í maí að venju. gudni@mbl.is Ástæðulaust að hafa áhyggjur eins og er Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Gróður Núna um miðjan febrúar eru ýmsir laukar og runnar farnir að bæra á sér, segir Þórólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru og garða hjá borginni. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Karlmaður sem beitti sambýliskonu sína grófu ofbeldi, nauðgaði og svipti frelsi sínu í fjórar klukkustundir, þrýsti á hana ásamt föður sínum að skipta um réttargæslumann og senda héraðssaksóknara tölvupóst um að henni hefði ekki verið nauðgað. Þetta kom fram í vitnisburði konunnar í héraðsdómi samkvæmt dómi í málinu sem birtur var í gær. Játaði hluta háttsemi sinnar Hlaut maðurinn fjögurra ára fang- elsisrefsingu fyrir brot sín, en hann var meðal annars fundinn sekur um að hafa meinað konunni að fara út úr íbúð sinni, slegið hana ítrekað hnefahöggum í síðu og höfuð, rifið í hár hennar, tekið hana hálstaki, sparkað ítrekað í síðu hennar og sparkað undan henni stól þannig að hún féll í gólfið. Játaði hann hluta þessarar háttsemi en sagðist að öðru leyti ekki geta útilokað að brotin hefðu átt sér stað. Einnig var hann fundinn sekur um að hafa þvingað konuna til munn- maka og endaþarmsmaka eftir fyrri brotin. Þvinguð til að breyta framburði  Karlmaður fékk fjögurra ára dóm Dómur Konan var beitt ofbeldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.