Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 9

Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Undirbúningur fyrir Íslensku sjávarútvegssýn- inguna 2017 stendur sem hæst, en hún verður haldin í íþróttahúsunum Smáranum og Fífunni í Kópavogi dagana 13. til 15. september. Liður í undirbúningi var að verja 2 milljónum króna til að styrkja nemendur sem stefna á framhaldsnám við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Tveir styrkir voru afhentir í gær, upp á 500 þúsund krónur hvor, en samsvarandi styrkir voru af- hentir fyrr í vetur. Að þessu sinni fengu Jóhanna Sigurlaug Eiríksdóttir frá Sauðárkróki og Hall- grímur Jónsson frá Grindavík námsstyrkina. Sýningin í haust verður sú 12. á ríflega 30 ára ferli, sem hófst árið 1984 með sýningu í Laugar- dalshöll. Síðari ár hefur sýningin, oft nefnd IceFish, farið fram í Kópavogi. Sem fyrr stefnir í stóra sýningu og segir Mari- anne Rasmussen Coulling, framkvæmdastjóri IceFish, undirbúninginn ganga mjög vel. Síðast, árið 2014, voru um 500 sýnendur frá 32 löndum og núna segir hún áhugann erlendis vera enn meiri. Nú þegar sé 20% fleiri erlendir þátttak- endur og ekki margir básar lausir til ráðstöf- unar. Ýmsar nýjungar verða í boði í haust og að- staða bætt fyrir sýnendur, m.a. fyrir fundi og veitingar. Stefnir í stóra sýningu  Tveir námsstyrkir afhentir í tilefni af Íslensku sjáv- arútvegssýningunni sem fer fram í Kópavogi í haust Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjávarútvegur Styrkirnir voru afhentir hjá Íslenska sjávarklasanum í gær. F.v.: Hall- grímur, Marianne Rasmussen Coulling, framkvæmdastjóri sýningarinnar, og Jóhanna. 08:30 Skráning og kaffisopi - Básar til sýnis 09:00 Setning - Almar Guðmundsson, Samtök Iðnaðarins 09:10 VFSC - Próf. Ólafur H. Wallevik, Rb við NMÍ og HR 09:30 Skáldað í sjónsteypu - Guja Dögg Hauksdóttir, Studio Hvítt 09:50 Praktisk hærdeteknologi - Lasse Frølich, Aalborg Portland STEINSTEYPUDAGURINN 2017 17. FEBRÚAR Á GRAND HÓTEL 10:30 Synthetic structural fibers in concrete - Dr. Klaus A. Rieder, GCP Applied Technologies Inc. 11:00 Blátrefjabending í stað járnabendingar - Eyþór Þórhallsson, HR 11:20 Hvernig hús myndi ég byggja í dag ? - Jón Sigurjónsson, Emeritus yfirverkfræðingur Rb 11:40 Verkframkvæmdir ríkisins 2017 á vegum FSR og Ríkiseigna - Halldóra Vífilsdóttir, FSR 13:00 Hönnun út frá möguleikum steypunnar - Hildur Steinþórsdóttir, TOS 13:20 Nemendakynning - Umsjón Einar Einarsson, BM Vallá 13:30 Lífsferilsgreiningar – Helga J. Bjarnadóttir, EFLA 13:50 Áskoranir við viðhald og byggingu steinsteyptra brúa - Ingunn Loftsdóttir, Vegagerðin 14:30 P2P, Performance based specification – Wassim Mansour, Readymix Abu Dhabi 15:00 Mikilvægi vistbyggðar – Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Vistbyggðaráð 15:20 Steinsteypuöldin - Egill Helgason og Pétur H. Ármannsson 15:40 Steinsteypuverðlaunin 2017 - Forseti Íslands, Herra Guðni Th. Jóhannesson afhendir 16:00 Ráðstefnulok - Próf. Ólafur H. Wallevik, formaður Steinsteypufélags Íslands Heill dagur: 18.000 kr. með hádegisverði Hálfur dagur: 12.000 kr. án hádegisverðar Nemagjald: Frítt með hádegisverði, hámark 40 nemendur* Básar: 50.000 kr. frammi / 75.000 kr. inni í sal. Innifalið ein skráning með hádegisverði *Nemagjald 2017 er í boði: 10:10 Kaffihlé Dagskrá 12:00 Hádegismatur 14:10 Kaffihlé Léttar veitingar í ráðsetnulok Félagsmenn í Fé- lagi kennara og stjórnenda í tón- listarskólum (FT) fá um 17% launahækkun og tvær ein- greiðslur upp á samtals 350 þús- und krónur, sam- kvæmt miðlunar- tillögu ríkissátta- semjara í deilu FT og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Miðlunar- tillagan var samþykkt í síðustu viku. Samningurinn gildir til 31. mars 2018. Samningur við FT hafði verið laus í um 15 mánuði. 20 árangurs- lausir fundir voru í kjaradeilunni áður en miðlunartillagan var lögð fram. Í samningnum bættust einnig við launaflokkar fyrir stjórnendur og þá sem eru með fleiri próf og reynslu á sviði stjórnunar. Einnig var lægsta launaþrepið fellt út sem nýir kennarar féllu undir. „Við vonum að það kalli á nýliðun félagsmanna,“ segir Dagrún Hjartardóttir, starfandi formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, um kjarasamning- inn. Hún segir vissulega gott að samningar hafi náðst en bendir hún á að félagsmenn hafi viljað nálgast kollega sína meira. Hún bindi vonir við að farið verði í frekari kerfis- breytingar á samningnum, sem sé kominn til ára sinna. 350.000 eingreiðsl- ur og 17 % hækkun Dagrún Hjartardóttir Fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða sem ber yfirskriftina Út að borða fyrir börnin hefst í dag. Alls styðja 40 staðir átakið á 109 stöðum í öllum landsfjórðungum með því að láta hluta af verði val- inna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Skv. upplýsingum Barnaheilla hafa aldrei fleiri staðir tekið þátt í átak- inu, sem nú fer fram í sjöunda sinn og stendur yfir í einn mánuð. „Við erum himinlifandi með þennan fjölda veitingastaða sem eru tilbúnir að styðja málstaðinn á þennan hátt,“ er haft eftir Ernu Reynisdóttir, framkvæmdastjóra Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Ísland festi barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna í lög árið 2013, en í honum er börnum tryggður réttur til verndar gegn ofbeldi. Benda Barnaheill á að það sé hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns. Hvetja fólk út að borða fyrir börnin Átak Kynningarmynd fyrir söfnunina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.