Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Viltu meðhöndla liðverkinn
án þess að taka töflur?
150g50%
meira m
ag
n!
Prófaðu að meðhöndla liðverkina
með Voltaren geli.
Lyfjaauglýsing
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
VR ákvað nýlega að hætta með jafnlaunavott-
un á sínum vegum. Í tilkynningu á heimasíðu
stéttarfélagsins kemur fram að ætlunin hafi
alltaf verið að hætta með jafnlaunavottun þeg-
ar opinbert ferli við vottun færi af stað sam-
kvæmt jafnlaunastaðlinum. VR hefur verið
með jafnlaunavottun síðan staðlaráð Íslands
gaf út jafnlaunastaðal í desember 2012, en þá
taldi félagið nauðsynlegt að bregðast skjótt
við og fékk vottunarfyrirtækið BSI á Íslandi
(British Standards Institution) til þess. Hátt í
6.000 manns hafa farið í gegnum jafnlauna-
vottun VR síðan þá, meðal þeirra er tölvu-
leikjaframleiðandinn CCP sem fékk jafn-
launavottun VR 13. janúar síðastliðinn og var
meðal síðustu fyrirtækjanna til að fá vott-
unina.
Fara af stað á ný ef stjórnvöld bregðast
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir
að ákveðið hafi verið að staldra við vegna þess
að ríkið sé byrjað að taka yfir þessi verkefni.
„Við erum í ákveðinni biðstöðu núna eftir að
stjórnvöld ákváðu að taka þetta til sín en ég
hef alltaf sagt að ef að stjórnvöld eru ekki að
gera þetta með þeim hætti sem þarf munum
við halda áfram í okkar horfi,“ segir Ólafía.
„Þetta byrjaði í raun sem tilraunaverkefni í
ýmsum fyrirtækjum og ríkisstofnunum í ráð-
herratíð Eyglóar Harðardóttur,“ segir Ólafía.
Hún segir að áhugavert verði að sjá hvernig
frumvarp Þorsteins Víglundssonar, félags- og
jafnréttismálaráðherra, um jafnlaunavottun
muni fara í gegn.
Þau fyrirtæki sem gert hafa þriggja ára
samning við BSI á Íslandi undir merkjum
Jafnlaunavottunar VR munu ljúka við vott-
unina og að því loknu er þeim frjálst að endur-
nýja samninginn undir heitinu BSI jafnlauna-
vottun. „Þessir aðilar sem eru nýlega búnir
með ferlið, eins og CCP, munu viðhalda því
undir merkjum jafnlaunavottunar VR næstu
þrjú ár en við erum ekki að taka móti nýjum
umsóknum undir þeirra formerkjum,“ segir
Árni H. Kristinsson, framkvæmdastjóri BSI á
Íslandi.
Spurður hvort hann telji að verkefnum
tengdum jafnlaunavottun muni fjölga mikið ef
stjórnarfrumvarp um jafnlaunavottun verði
samþykkt segir Árni reiknað með því að eftir-
spurn aukist í kjölfarið. Telur hann þó ekki að
slík eftirspurn verði vottunarfyrirtækjum um
of.
Meira en kynbundinn launamunur
IKEA var fyrsta fyrirtækið sem hlaut jafn-
launavottun VR og segir Þórarinn Ævarsson,
framkvæmdastjóri IKEA, mikla ánægju með
vottunina. „Við vorum um 300 þegar vottunin
var gerð, það voru tvær manneskjur á starfs-
mannasviði hjá okkur sem leiddu þessa vinnu í
30% starfi í þrjá mánuði. Aðalvinnan fór í að
skrá niður vinnuferla og starfslýsingar og hef-
ur það nýst okkur vel að hafa greint störfin
vel,“ segir Þórarinn, en öll laun voru jöfn hjá
IKEA og því þurfti ekki að jafna nein laun.
„Við litum ekkert endilega á þetta bara sem
jöfn laun karla og kvenna. Þetta snýst bara
um að allir séu jafnir. Hvort sem þú ert fædd-
ur í Bangkok, Palestínu eða á Íslandi. Að það
sé ekki verið að spá í hvaða trúarbrögð þú að-
hyllist eða hver kynhneigð þín er. Við finnum
það líka að traust starfsmanna til okkar hefur
aukist hvað varðar laun, þ.e. að þau séu ekki
háð geðþóttaákvörðun,“ segir Þórarinn og
bætir við að ánægt starfsfólk skili betri sölu-
tölum. Hann slær hins vegar varnagla við því
að þetta sé eins fyrir öll fyrirtæki; jafnvel geti
það verið íþyngjandi fyrir sum þeirra. „Þetta
er íþyngjandi fyrir lítil fyrirtæki, ég held að
það sé alveg á hreinu.“
VR er hætt að votta laun
Ætlunin að hætta þegar jafnlaunavottun færi í opinbert ferli 6.000 manns fóru í gegnum jafnlauna-
vottun VR Vottunarfyrirtæki fá nægileg verkefni verði frumvarp um jafnlaunavottun að lögum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjölbreytni Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir jafnlaunavottun tryggja jafn-
ræði í launum ekki bara vegna kyns heldur einnig vegna uppruna, trúarbragða og kynhneigðar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nokkur sveitarfélög hafa birt upp-
lýsingar um niðurstöður könnunar á
þjónustu sveitarfélaga 2016. Gallup
kannaði ánægju íbúa með ýmsa
þjónustu í 19 af stærstu sveitar-
félögum landsins.
Árborg
Mikill meirihluti íbúa Árborgar,
eða 78%, er ánægður með sveitarfé-
lagið sem búsetustað. Ánægja þeirra
upp á 4,0 var þó undir landsmeðaltali
sem var 4,2. Fleiri konur (83%) en
karlar (74%) voru ánægðar með Ár-
borg sem sveitarfélag til að búa í.
Litlu minni hluti íbúa, eða 74%, lýsti
ánægju sinni með aðstöðu til íþrótta-
iðkunar í sveitarfélaginu.
Reykjanesbær
Þjónusta í Reykjanesbæ var yfir
landsmeðaltali þeirra sveitarfélaga
sem tóku þátt, hvað varðaði málefni
leik- og grunnskóla, menningar-
mála, aðstöðu til íþróttaiðkunar og
við að leysa úr erindum þeirra sem
leita til starfsfólks sveitarfélagsins,
að því er fram kemur á heimasíðu
Reykjanesbæjar. Ánægja íbúa
Reykjanesbæjar með sveitarfélagið
sitt sem búsetustað jókst lítillega frá
því í fyrra.
Hjá Reykjanesbæ kemur einnig
fram að þeir málaflokkar sem komu
verst út yfir allt landið í könnuninni
hafi verið skipulagsmál auk þjónustu
við eldri borgara og fatlaða.
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær birtir niður-
stöður könnunar Gallup fyrir sveit-
arfélagið á heimasíðu sinni. Þar má
sjá að 88% svarenda voru ánægð
með sveitarfélagið sem stað til að
búa á. Ánægja Hafnfirðinga með
sveitarfélagið sitt hafði aukist úr 4,1
stigi 2015 í 4,3 (+) stig 2016. Niður-
staðan að þessu leyti var yfir lands-
meðaltali.
Ánægja Hafnfirðinga með aðstöðu
til íþróttaiðkunar hafði einnig aukist
á milli ára og var yfir landsmeðaltali.
Mosfellsbær
Mosfellsbær skoraði hæst allra
sveitarfélaga þegar kom að ánægju
íbúa með sveitarfélagið sitt. „Það er
gleðiefni fyrir alla þá er starfa fyrir
Mosfellsbæ, kjörna fulltrúa sem og
starfsmenn, og hvetur þá áfram til
góðra verka í þágu samfélagsins
okkar og til að vinna áfram að mark-
miðum er lúta að því að veita fram-
úrskarandi þjónustu til íbúa Mos-
fellsbæjar,“ sagði í fundargerð
bæjarráðs Mosfellsbæjar.
Flestir eru sáttir við sveitarfélagið sitt
Sveitarfélög birta niðurstöður könn-
unar á ánægju íbúa með ýmis atriði
Morgunblaðið/Ómar
Mosfellsbær Íbúar þar eru mjög ánægðir með sveitarfélagið sitt, þeir skoruðu hæst þegar kom að ánægju.