Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017
Mikið úrval mælitækja og verkfæra
fyrir raftækniiðnaðinn
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Mælitæki og verkfæri
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Aðallega er þetta táknrænt en vissu-
lega er helíum sjaldgæf gastegund og
fer þverrandi,“ segir Kristinn And-
ersen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði, en hann situr í
umhverfis- og framkvæmdaráði
Hafnarfjarðar sem leggur til að
stofnanir bæjarins hætti að nota helí-
um í gasblöðrur.
„Við erum að minna á að fara þurfi
vel með auðlindir jarðarinnar og huga
þurfi að náttúrunni. Helíum er frum-
efni sem ekki á að nota að óþörfu.“
Í fundargerð umhverfis- og fram-
kvæmdaráðs bæjarins segir að fyrir
nokkrum árum hafi gætt mikils
skorts á helíumi í heiminum, en í
fyrra bötnuðu horfur aðeins þegar
uppgötvaðist ný helíumuppspretta í
Tansaníu. Vísindamenn hafa í nokkur
ár kallað eftir banni við notkun á helí-
umi í gasblöðrur, vegna þess hve dýr-
mætt það er fyrir læknavísindin og
önnur vísindi og þar sem það er af
skornum skammti. Borgir og svæði
víðsvegar um heiminn hafa því bann-
að helíumblöðrur, bæði vegna helí-
umsins og einnig vegna slæmra
áhrifa ruslsins af blöðrunum á dýralíf
og vistkerfi jarðar.
Dr. Jón Steinar Garðarsson Mýr-
dal, sem starfað hefur m.a. sem eðl-
isfræðingur hjá DTU Energy Con-
version, Institute for Energy
Conversion and Storage, segir helíum
fyrst og fremst notað í læknavís-
indum hér á landi.
„Helíum er gífurlega létt loftteg-
und og hvarfast ekki við aðrar loft-
tegundir. Sleppi hún út í andrúms-
loftið hverfur hún hátt upp í
himinhvolfið og það er ekki hægt að
vinna hana þar að neinu leyti,“ segir
Jón Steinar og bendir á að hér á landi
sé það fyrst og fremst Landspítalinn
sem nýti helíum en það er t.d. notað í
myndgreiningatæki eins og heila-
skanna, við meðferð á asma, við
skurðlækningar og margt fleirra.
„Frumefnið er t.d. notað þar sem
unnið er með eitthvað sem er ofur-
leiðandi eins og t.d. segla í seg-
ulómtækjum, en þau eru með svokall-
aða ofurleiðandi segla. Í dag eru ekki
til ofurleiðandi seglar sem hægt er að
nota með fljótandi köfnunarefni og
því þarf að nota fljótandi helíum. Sök-
um þess hvað efnið er sjaldgæft hafa
vísindamenn haft áhyggjur af al-
mennri notkun þess.“
Ekkert helíum í blöðrur
Hafnarfjarðarbær takmarkar notkun stofnana bæjarins
á helíum Sjaldgæft frumefni sem nýta þarf sparlega
Öllum flugfarþegum sem áttu flug frá Leifsstöð í gær-
kvöldi var vísað út um vopnaleitina og aftur í innrit-
unarsal flugstöðvarinnar. Ástæðan var sú að farþegar í
flugvél frá Grænlandi áttu að fara í gegnum öryggisleit
við komuna til Íslands en fyrir mistök fyrirtækisins
kom flugvélin að öðru hliði en til stóð þannig að farþeg-
arnir fóru ekki í gegnum slíka leit. Seinkun varð á
flugi. Engin hætta var þó á ferðum.
Fyrir mistök fóru flugfarþegar frá Grænlandi ekki gegnum öryggisleit
Morgunblaðið/Sigvaldi Kaldalóns
Öllum vísað aftur í innritunarsalinn
Reikna má með
sviptingum í
veðri um helgina
og framan af
næstu viku.
Reyndar verður
tíðindalítið veður
í dag, nema á
Austfjörðum en
þar fer úrkomu-
bakki yfir til
norðausturs í
kvöld með snjó á hæstu fjallvegum.
Að sögn Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings sækir kalt loft að
landinu úr norðri á morgun, föstu-
dag. Aðfaranótt laugardags verður
komið frost með éljum víða á Norð-
urlandi og Vestfjörðum.
Síðdegis á sunnudag kemur síðan
lægð æðandi úr suðri með mildu lofti
og rigningu sunnanlands.
„Þetta stendur þó ekki lengi. Á
mánudag eru horfur á ákveðinni
suðvestanátt og útsynningi með élj-
um um suðvestan- og vestanvert
landið,“ segir Einar sem reiknar
með kulda og éljagangi víða um
landið fyrri hluta næstu viku. Þetta
segir hann helgast af háloftakulda
frá Kanada sem sé á leið austur yfir
landið. Þegar honum sleppi eftir
helgina skáni veður. sbs@mbl.is
Sviptingar,
kuldi og
éljagangur
Væta á sunnudag
Einar
Sveinbjörnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra Íslands fundaði í gær,
ásamt utanríkisráðherra Danmerkur
og utanríkisráðherra Noregs, með
Sergei Lavrov utanríkisráðherra
Rússlands. Guðlaugur Þór segir að
fundurinn hafi verið langur og farið
yfir öll helstu málin sem snerta al-
þjóðastjórnmál í dag. „Þarna voru
rædd málefni Sýrlands, miðaustur-
landa, Tyrklands, öryggismál, norð-
urskautsmálin, málefni Úkraínu og
mannréttindamál,“ segir Guðlaugur
Þór í samtali við Morgunblaðið.
Farið vítt yfir alþjóðapólitíkina
Aðspurður hvort viðskiptaþving-
anir Íslands og Rússlands hafi verið
ræddar segir hann að farið hafi verið
yfir alþjóðastjórnmálin vítt og breitt
en þetta ekki rætt sérstaklega.
Guðlaugur Þór mun á morgun
funda með Vladímír Pútín forseta
Rússlands ásamt Guðna Th. Jóhann-
essyni forseta Íslands. Að lokinni
Rússlandsferð mun Guðlaugur Þór
fara til Brussel á utanríkisráðherra-
fund NATO.
Ræða
við Pútín
í dag
Funduðu með
utanríkisráðherra
Rússlands í gær
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Undir lok þessarar viku hyggst rík-
isstjórnin kynna hugmyndir að
lækkun hins svokallaða almenna
þreps virðisaukaskattskerfisins sem
í dag stendur í 24%. Það var síðast
lækkað úr 25,5% í ársbyrjun 2015.
Þetta boðaði Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra, í ræðu á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins í Hörpu í
gær. Sagði hann að hugmyndirnar
yrðu kynntar samhliða framlagningu
ríkisfjármálaáætlunar.
„Með því að gera það þá getum við
tekið töluvert forskot á Norður-
landaþjóðir varðandi það á hvaða
stað við erum með almenna þrep
virðisaukaskattsins,“ sagði Bjarni.
Sagðist hann telja að nú væri rétti
tíminn til að stíga skref í þessa átt, í
kjölfar þess að markviss skref hefðu
verið stigin til þess að einfalda inn-
heimtukerfi tengd vörugjalda- og
tollakerfinu.
Ferðaþjónustan í almennt þrep
Í dag er ferðaþjónustan skattlögð í
lægra þrepi kerfisins sem er 11%.
Benti Bjarni á að sú gríðarlega fjölg-
un ferðamanna sem orðið hefur í
landinu gæfi tilefni til að spyrja sig
hvort ástæða væri til að halda virð-
isaukaskatti á greinina í lægra þrepi.
„Erum við hér með atvinnugrein sem
í heild sinni er réttlætanlegt að halda
í undanþáguþrepinu, lægra þrepinu, í
þeim tilgangi að styðja við og auka
viðgang hennar,“ sagði hann.
Svigrúm til frekari lækkana
Í ræðu sinni boðaði hann einnig
lækkun tryggingagjalds á kjörtíma-
bilinu.
„Atvinnulífið hefur kallað eftir
lækkun tryggingagjalds og við mun-
um lækka tryggingagjaldið á þessu
kjörtímabili en við ætlum ekki að fara
út í skattalækkanir á röngum tíma.
Við munum þurfa að tímasetja slíkar
aðgerðir með hliðsjón af því sem er að
gerast á vinnumarkaði og að öðru
leyti í opinberum fjármálum,“ sagði
Bjarni en ítrekaði að í sínum huga
væri ljóst að slíkt svigrúm myndi fást
á kjörtímabilinu sem nú stendur yfir.
Boðar lækkun virðisaukaskatts
Forsætisráðherra segir stefnt að lækkun efra þrepsins Hugmyndin kynnt nánar undir lok vikunnar
Almenna þrepið verði hvergi á Norðurlöndunum lægra Hyggjast einnig lækka tryggingagjaldið
Morgunblaðið/Eggert
Skattar Bjarni Benediktsson telur svigrúm til skattalækkana á kjörtímabilinu.