Morgunblaðið - 30.03.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 30.03.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017 Upplýsingar seinustu rannsókn-arnefndar bankamála eru slá- andi. Hún virðist hafa náð að nálg- ast nægjanlegt magn af skriflegum gögnum og öðrum mikilvægum vitnisburðum til að geta dregið upp ljósa mynd af því sem gerðist.    Ýmsir hafa tjáð sigaf þessu tilefni sem vonlegt er. Norð- ur-Kúbu-Gylfi lagði strax sök á þá sem voru blekktir. Það er gott að hann dæmir menn bara sem leikmaður.    En svo er það aðalleikarinn.Hann segir þessa atburði hafa gerst fyrir 15 árum og því sé fáránlegt að elta ólar við þá. Og auðvitað þykir honum enn fárán- legra að eltast við Óla, enda viti í raun enginn hver þeirra sé hinn seki.    Haldinn var stór fundur á fínuhóteli um þetta vandamál eft- ir dóm í Al Thani-málinu. Sögu- þráðurinn í því máli virðist raunar hafa verið fenginn úr málinu sem rannsóknarnefndin gerði nú grein fyrir.    Samkundan snerist um að for-dæma það, að vitlaus Óli hefði verið kærður og dæmdur. Endur- upptökunefnd fór yfir málið og sá bara einn Óla.    Eftir hótelsamkunduna fræguorti skagfirska skáldið, ættað frá Bólu: „Ekki sé ég enn til sólar eftir hrun. Núna liggja allir Ólar undir grun.“    Líklega fækkar nú grunuðumsmám saman í hópi nafnanna. Sama sagan, sömu persónur STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.3., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Bolungarvík 3 alskýjað Akureyri 4 alskýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 5 léttskýjað Ósló 4 léttskýjað Kaupmannahöfn 6 súld Stokkhólmur 1 snjókoma Helsinki 3 heiðskírt Lúxemborg 14 léttskýjað Brussel 15 léttskýjað Dublin 14 skýjað Glasgow 10 súld London 13 þoka París 19 skýjað Amsterdam 12 þoka Hamborg 12 skýjað Berlín 11 skýjað Vín 20 heiðskírt Moskva 0 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 20 heiðskírt Barcelona 19 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað Róm 19 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 5 skýjað Montreal 3 snjóél New York 10 rigning Chicago 7 heiðskírt Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:52 20:14 ÍSAFJÖRÐUR 6:53 20:22 SIGLUFJÖRÐUR 6:36 20:05 DJÚPIVOGUR 6:20 19:44 Pósturinn segir að fyrirtækið hafi margoft bent Þjóðskrá á að ekki sé æskilegt að senda vegabréf með al- mennum bréfapósti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Pósturinn benti á að það er send- andinn, Þjóðskrá, sem velur þessa leið en almennur bréfapóstur er hvorki rekjanlegur né tryggður. „Vegabréf eru send í almennum bréfapósti og er það sendandi sem velur þá þjónustuleið. Pósturinn hefur margoft bent Þjóðskrá á að almennur bréfapóstur er hvorki rekjanlegur né tryggður í þessu sambandi og vakið athygli á því að senda ætti vegabréf og önnur per- sónuleg skilríki í rekjanlegum pósti en ekki hefur verið brugðist við þessum ábendingum,“ segir í til- kynningunni. Pósturinn tekur einn- ig fram að engin leið sé fyrir þá til að rekja einstakar bréfasendingar. Þetta þýðir að ómögulegt sé að sjá hvar bréf er ef það berst ekki af ein- hverjum ástæðum. „Til að finna sendingar skiptir því rekjanleiki öllu máli en hann gerir Póstinum kleift að finna hvar í ferlinu sending sé stödd. Vill Pósturinn því ítreka það sjónarmið fyrirtækisins að senda ætti vegabréf og önnur per- sónuleg skilríki í rekjanlegum pósti.“ mhj@mbl.is Margoft bent Þjóðskrá á áhættuna  Pósturinn segir óheppilegt að senda vegabréf með almennum bréfapósti Morgunblaðið/Eggert Áhætta Þjóðskrá velur að senda vegabréf með almennum bréfapósti. Undanfarna daga hefur fyrir- spurnum rignt yfir ráðherra ríkisstjórnar- innar á Alþingi. Í þessari og síðustu viku hafa alþingismenn lagt fram 53 fyrirspurnir til ráðherranna og óskað eftir munn- legum eða skriflegum svörum. Fyrirspurnirnar voru 30 í síðustu viku og fyrstu tvo dagana í þess- ari viku eru þær orðnar 23. Bjarni Jónsson á Sauðárkróki er fyrirspurnakóngurinn. Hann sat í nokkra daga á þingi sem varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjödæmi. Á þessum stutta tíma lagði Bjarni fram 16 fyrirspurnir, þar af 14 á mánudag- inn var. Bjarni vildi fá svör við hinum margvíslegustu spurningum, svo sem um vegamál, Hvalfjarðargöng og Spöl, geðheilbrigðisþjónustu barna, laxastofna og stöðu háskóla utan Reykjavíkur, svo eitthvað sé nefnt. sisi@mbl.is Bjarni Jónsson Spurði 14 spurninga sama dag  Spurningaflóð til ráðherra á Alþingi svalandi ísar í einum kassa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.