Morgunblaðið - 30.03.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
ÖFLUGUR VINNUFÉLAGI
Auðveldaðu þér vinnuna með góðum græjum
Hleðsluborvél
EY 74A2 PN2G32
Patróna: 13 mm
Rafhlaða: 18V, 2 x 3,0 Ah
Li-Ion KOLALAUS
1,8 kg
ToughTool IP
Verð:
39.200 kr.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við segjum stundum að viðséum skilgetin afkvæmiPólýfónkórsins, en for-eldrar okkar, Guðfinna
Dóra Ólafsdóttir og Rúnar Einars-
son, kynntust í þeim kór. Þau eru af-
ar músíkölsk og fóru bæði í söng-
nám, en á þeim tíma sem þau voru
ung var meira en að segja það að
leggja fyrir sig söng. Þau stofnuðu
ásamt fleira fólki sönghópinn Hljóm-
eyki þar sem við systkinin höfum öll
sungið og tvö okkar gera það enn,“
segja systkinin Hallveig, Þorbjörn
og Hildigunnur Rúnarsbörn, en þau
syngja öll í Jóhannesarpassíu um
næstu helgi, Hallveig og Þorbjörn
sem einsöngvarar en Hildigunnur
með Dómkórnum.
„Við höfum sungið saman nán-
ast alla ævi og margoft komið fram
saman opinberlega, og einu sinni
sungum við öll systkinin fjögur sam-
an einsöngstónleika, en fjórða systk-
inið, hann Ólafur, er líka einsöngv-
ari.“
Fórum mikið með mömmu og
pabba á söngæfingar
Þau segja að ólíkt því sem
margir halda hafi fjölskyldan ekki
alltaf verið að syngja saman á
bernskuheimilinu. „Aftur á móti var
heilmikið sungið heima hjá ömmu,
enda spilaði hún á píanó og bróðir
hennar var mikill söngmaður. En
auðvitað fórum við mikið með
mömmu og pabba á söngæfingar, og
að því leyti ólumst við upp við söng.
Mamma stjórnaði Skólakór Garða-
bæjar og við byrjuðum öll í þeim kór
um svipað leyti og við hófum grunn-
skólanám og sungum í honum fram
áunglingsár. Þar byrjaði uppeldið en
áhersla á nótnalestur var mikil hjá
mömmu í þeim kór, sem við búum
vel að. Það er ómetanlegur grunnur
fyrir okkur,“ segir Þorbjörn.
Þorgerður tók okkur opnum
örmum í Hamrahlíðinni
Þau fóru öll áfram í aðra kóra
þegar þau voru komin upp í fram-
haldsskóla og Hildigunnar stjórnaði
kórnum í Fjölbraut í Garðabæ um
tíma, þar sem þrjú systkinanna voru
í námi, en Hallveig fór í Mennta-
skólann í Hamrahlíð.
„Bræður mínir keyrðu mig á
fyrstu söngæfingar hjá Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð, fyrst Þor-
björn og svo Óli, og spurðu Þorgerði
Ingólfsdóttur kórstjóra hvort þeir
mættu vera með í kórnum þó þeir
væru ekki í skólanum. Hún hélt það
nú,“ segir Hallveig og Þorbjörn bæt-
ir við að Þorgerður hafi kannast við
þá bræður úr World Youth Choir,
heimskór æskufólks sem syngur um
víða veröld, sem þeir bræður voru
stofnfélagar í. „Við sungum þrjú
systkinin saman á Spáni í þessum
kór árið 1992, og þar hafði Þorgerð-
ur heyrt í okkur. Hún vissi því alveg
Í okkar fjölskyldu eru
engar djúpar raddir
Rúnarsbörn eru söngglöð systkini og raddir þeirra liggja allar hátt, systurnar eru
sópranar og bræðurnir tenórar. Þau ólust upp við söng frá blautu barnsbeini og
þakka foreldrum sínum fyrir þann grunn sem þau lögðu að þeirra sönglífi. Þrjú
þessara systkina ætla að syngja saman Jóhannesarpassíu um næstu helgi, en
hana segja þau vera kraftbirtingarhljóm Guðdómsins.
Systkinin öll með foreldrunum Jón, Þorbjörn og Rúnar fyrir aftan Dóru,
Hildigunni og Hallveigu. Fífa Jónsdóttir, elsta barnabarnið, lengst til hægri.
Fjögurra daga SKAM hátíð hefst kl. 19
í dag, fimmtudag 30. mars, í Norræna
húsinu með viðburðinum Ég elska
SKAM!, fyrir unga aðdáendur þátt-
anna. Kosegruppa, sem samanstendur
af 14 - 17 ára aðdáendum þáttanna,
skipulagði dagskrána og heldur uppi
fjörinu til kl. 21.30 með völdum mynd-
brotum úr SKAM, spurningaleik og
diskóteki.
Á morgun, föstudag 31. mars, kl. 17
- 19 verður stemmningin með öðru
sniði, enda viðburðurinn, Hvað er mál-
ið með SKAM?, ætlaður eldri aldurs-
hópum. Í hús koma bæði aðdáendur
og sérfræðingar og taka þátt í spenn-
andi pallborðsumræðum. Sýndar
verða vel valdar klippur úr þáttunum,
rætt og pælt og farið í spurningaleiki á
meðan Sunna Ben þeytir skífum með
lögum úr þáttunum.
Um helgina, laugardag og sunnu-
dag, 1.-2. apríl verður svo boðið upp á
SKAM-maraþon og allar þrjár þátta-
raðirnar sýndar á stóra skjánum í að-
alsal hússins þar sem verður „koselig
stemming“. SKAM hátíðin er skipu-
lögð í samstarfi við Norska sendiráðið
í Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Fjögurra daga SKAM hátíð í Norræna húsinu
Unglingar Norsku unglingaþættirnir SKAM eiga miklum vinsældum að fagna.
Hvað er málið með SKAM?
Hljóðheimar bjóða upp á áhrifaríkt 10
vikna námskeið sem hefst n.k mánu-
dag 3. apríl, en þar verður farið yfir
eitt vinsælasta tónlistarforritið á
markaðnum í dag, Ableton Live. Þátt-
takendur fá aðstoð við að finna út
hvernig þeir geta nýtt sér það fyrir
sína eigin tónlistarsköpun ásamt
vandaðri kynningu á aðferðum og
tækni sem þeir þurfa til þess að búa
til sín eigin lög frá A-Ö. Markmið
námskeiðsins er að þjálfa nemendur í
pródúseringu, taktsmíðum, hljóð-
hönnun og hljóðblöndun með
áherslur á elektróníska tónlist.
Námskeiðið hentar bæði byrj-
endum og þeim sem eru lengra
komnir. Nánar á hljodheimar.is
Endilega …
…skellið ykkur
á námskeið
Gaman Tónlistarsköpun.
MINØR PRINT STUDIO sem er við
Fiskislóð úti á Granda, heldur sitt
fyrsta silkiprent-námskeið í sam-
starfi við Söru Maríu Júlíudóttur For-
ynju um næstu helgi, 1.-2. apríl.
Í tilkynningu segir að á þessu helg-
arnámskeiði muni fólk læra að koma
sinni hugmynd alla leið á flík, pappír
eða hvað sem því kemur til hugar að
prenta á. Unnið verður með teikn-
ingar og ljósmyndir þar sem fólk lær-
ir allt silkiprentferlið frá A-Ö. Áhersla
verður lögð á að hver og einn fái það
sem hann vill út úr námskeiðinu.
Þátttakendur þurfa ekki að hafa
neina teiknikunnáttu eða fyrirfram
ákveðna hugmynd um hvað þeir vilja
prenta, fundið verður út úr því sam-
an.
Námskeiðið er 12 klst, laugardag
og sunnudag frá kl. 10 til 16 báða
dagana. Laugardagurinn fer í hug-
myndavinnu, myndvinnslu og
kennslu, en sunnudagurinn fer í
prentun þar sem nemendur geta
komið með að heiman það sem þá
langar að prenta á, til dæmis efni,
fatnað, viskastykki eða hvað sem er
með sléttum fleti.
Innifalið er allt efni til að undirbúa
silkiprentrammann, litir og pappír.
Textílefni til að prenta á er ekki
innifalið, nemendur koma sjálfir með
það efni sem þeir hafa áhuga á að
prenta á. Kennari er Sara Forynja og
skráning fer fram með því að senda
skilaboð á Facebooksíðunni: MINØR
Coworking.
Helgarnámskeið í silkiprenti um helgina
Uppgötvið undraheima prentsins
Silkiprent Gaman getur verið að kynnast nýjum efniviði í sköpun.