Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á sama tíma og hersveitir Bashars
al-Assad Sýrlandsforseta og vopnað-
ar sveitir bandamanna hans eiga í
átökum við vígamenn Ríkis íslams
við bæinn Tabqa í norðurhluta lands-
ins beinist athygli manna í auknum
mæli að ástandi stíflunnar sem finna
má í stórfljótinu Efrat skammt frá
bænum.
Langvarandi átök og skortur á
viðhaldi leiddu til þess að stíflan er
nú án rafmagns og hefur safnast
mjög í lón hennar. Óttast nú margir
að stíflan geti brostið og flóðvatnið á
fáeinum stundum valdið gífurlegum
usla og eyðileggingu.
„Tæknibúnaður stíflunnar, sem
finna má á neðri hæðum, er nú kom-
inn á kaf í vatn vegna þess að mann-
virkið hefur verið án rafmagns í
nokkra daga,“ hefur fréttaveita AFP
eftir vélvirkja á svæðinu. „Mikil
söfnun í lónið kallar á að opnað verði
fyrir yfirfallsrennur svo koma megi í
veg fyrir hættuástand.“
Lónið er stærsta vatn Sýrlands
Þáverandi stjórnvöld í Sýrlandi, í
nánu samstarfi við sérfræðinga frá
Sovétríkjunum sálugu, létu reisa
Efrat-stíflu til áveituframkvæmda
og framleiðslu rafmagns. Hófust
framkvæmdir árið 1968 og var stífl-
an fullbúin fimm árum síðar.
Mannvirkið er alls 4,5 kílómetrar
að lengd og 60 metra hátt, en mest er
breiddin 512 metrar. Uppistöðulón
Efrat-stíflu, sem jafnframt er
stærsta vatn landsins, nefnist Assad-
vatn. Er það kennt við Hafez al-As-
sad, þáverandi forseta Sýrlands og
föður Bashars al-Assad núverandi
forseta, en vatnið nær yfir alls 610
ferkílómetra svæði.
Stjórnstöðin sögð óstarfhæf
Erfitt gæti reynst að lagfæra
tæknibúnað stíflunnar, þar sem
vígamenn Ríkis íslams og vopnaðar
sveitir hliðhollar Assad forseta berj-
ast nú um yfirráð hennar. Að sögn
AFP þyrftu tæknimenn og vélvirkj-
ar að hafa fullt aðgengi að virkjun-
inni til að ljúka viðgerðum.
Stjórnarsveitir gera lítið úr þeirri
hættu sem virðist stafa af stíflunni
og segja ekkert benda til þess að hún
hafi orðið fyrir alvarlegum skemmd-
um. Fréttaveita AFP hefur það hins
vegar eftir tæknimanni að stjórnstöð
mannvirkisins sé nú óstarfhæf. Sami
maður segir hóp tæknimanna vera
kominn á svæðið og að þeir muni
reyna að komast inn í virkjunina til
að hefja viðgerðir. Ekki er þó víst að
sveitir Sýrlandsforseta samþykki að
hleypa hópnum inn. „Sprengingar og
bardagar ógna stíflunni. Við biðjum
því stríðandi fylkingar um að draga
sig frá henni,“ hefur AFP eftir
tæknimanni.
Í undirbúningi er stórsókn hersins
og bandalagssveita inn í borgina
Raqqa, síðasta höfuðvígi Ríkis ísl-
ams í Sýrlandi. Segja sveitirnar lið í
þeirri aðgerð að endurheimta bæinn
Tabqa og Efrat-stíflu. Má því búast
við hörðum átökum þar áfram.
Átökin ógna stíflunni
Efrat-stífla í Sýrlandi er nú sögð án rafmagns eftir langvarandi átök á svæðinu
Mikilvægur tæknibúnaður er kominn á flot og stjórnstöðin óstarfhæf með öllu
AFP
Vígvöllur Svæðið í kringum Efrat-stíflu er rústir einar eftir hörð átök á milli vígamanna og stjórnarsveita, en hóp-
arnir berjast nú um yfirráð yfir mannvirkinu. Tæknimenn hvetja fylkingarnar til þess að yfirgefa svæðið.
Efrat-stífla
» Langvarandi átök í námunda
við virkjunina í stórfljótinu
ógna nú öryggi hennar og íbúa
á svæðinu.
» Tæknimaður segir stjórn-
stöð stíflunar óvirka og mikil-
vægan vélbúnað á kafi í vatni.
» Stríðandi fylkingar eru
hvattar til að færa víglínuna frá
Efrat-stíflu svo koma megi í
veg fyrir frekari skemmdir og
hugsanlegt flóð.
Nokkur skelfing
greip um sig við
bandaríska þing-
húsið í Washing-
ton DC í gær
þegar kona
reyndi að keyra
niður fótgang-
andi lögreglu-
menn þar við.
Konan var í kjöl-
farið handtekin
en ekki fékkst uppgefið hvað henni
stóð til með athæfi sínu.
Bandarískir fréttamiðlar greina
frá því að konan hafi í fyrstu ekið
bifreið sinni utan í lögreglubíl áður
en hún gerði tilraun til að keyra
niður nokkra lögreglumenn.
Öryggissveitir og lögregla voru
með mikinn viðbúnað vegna þessa
og var opinberum byggingum, m.a.
þinghúsinu og skrifstofum þing-
manna, lokað um tíma.
BANDARÍKIN
Reyndi að keyra
niður lögreglumenn
Konan var hand-
tekin á hlaupum.
Einn komst lífs
af þegar bát
hvolfdi á Mið-
jarðarhafi, en um
borð voru fjöl-
margir flótta-
menn sem vildu
komast til Evr-
ópu frá Líbíu. Er
óttast að allir
hinir sem um
borð voru, alls
146 manns, hafi drukknað.
Fréttaveita AFP greinir frá því
að um sé að ræða karlmann og var
honum bjargað um borð í spænskt
herskip sem statt er á svæðinu í
tengslum við eftirlits- og björg-
unaraðgerðir Evrópusambandsins.
Hann segir flesta flóttamennina
hafa komið frá Nígeríu, Malí og
Gambíu, en bátnum hvolfdi eftir að
leki kom upp í honum.
MIÐJARÐARHAF
Óttast að 146 manns
hafi drukknað
Aðeins einn mað-
ur komst lífs af.
Ísraelskar öryggissveitir skutu í
gær til bana palestínska konu sem
reyndi að stinga lögreglumann með
eggvopni. Árásin átti sér stað við
hið sögufræga Damaskus-hlið.
Litlar upplýsingar hafa verið
gefnar um konuna. Sjónarvottar
segja konuna á miðjum aldri.
Um 260 Palestínumenn hafa látið
lífið í öldu ofbeldis á svæðinu frá
2015. Langflestir þeirra voru
drepnir af öryggissveitum þegar
þeir reyndu að fremja hnífa-, skot-,
eða bílaárásir.
ÍSRAEL
Öryggissveitir komu
í veg fyrir hnífaárás
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ríkisstjórnin hefur brugðist við lýð-
ræðislegum vilja bresku þjóðarinnar
og hinni skýru og sannfærandi afstöðu
þingsins. Fyrir fáeinum mínútum, í
Brussel, afhenti sendiherra Bretlands
gagnvart Evrópusambandinu forseta
leiðtogaráðsins bréf í mínu nafni, sem
staðfestir ákvörðun ríkisstjórnar um
að virkja 50. grein Lissabon-
sáttmálans.“
Þetta sagði Theresa May, forsætis-
ráðherra Bretlands, á breska þinginu í
gær. Tekur nú við tveggja ára ferli þar
sem reynt verður að semja á milli
Bretlands og Evrópusambandsins um
hin ýmsu mál sem standa munu út af
borðinu við útgönguna, m.a. viðskipti
og tollamál.
Ætla að taka eigin ákvarðanir
„Í samræmi við vilja bresku þjóðar-
innar er Bretland að yfirgefa Evrópu-
sambandið. Þetta er söguleg stund og
það verður ekki aftur snúið,“ sagði
May og hélt áfram: „Við ætlum að
taka okkar eigin ákvarðanir og semja
okkar eigin lög. Við ætlum að taka í
okkar hendur þau mál er snerta okkur
mest. Og við ætlum að nýta þetta
tækifæri til þess að byggja upp sterk-
ara og sanngjarnara Bretland – land
sem börn okkar og barnabörn eru
stolt af að kalla heimili sitt. Það er
okkar metnaður og þar liggja tæki-
færin.“
Boris Johnson, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði gærdaginn sögu-
legan. „Það er full ástæða til að vera
bjartsýnn á niðurstöðu útgöngunnar.“
„Það verður ekki aftur snúið“
Munum byggja upp sterkara og sanngjarnara Bretland, sagði Theresa May
AFP
Brexit Tim Barrow (t.v.) afhendir
Donald Tusk bréfið frá May.
Neðangreind fyrirtæki leggja land undir fót og heimsækja 13 staði á landinu.
Tilgangurinn er að kynna vörur og þjónustu fyrirtækjanna.
Fyrsti viðkomustaður verður Hvolsvöllur. Þar verðum við fimmtudaginn 30. mars.
Verið velkomin. Við tökum vel á móti ykkur.
Veglegar
gjafir í boði!
... á leiðinni til þín
Taktu þátt í léttu
m
spurningaleik.
Dregið verður ú
r réttum
lausnum í lok fe
rðar.
Í aðalvinning er
vegleg utanland
sferð
og ýmsir aukavi
nningar
frá sýnendum.
SPURNINGALEI
KUR!
1 2
3
4
5
6
7
89
10
12
11
13
Hvolsvöllur fimmtudaginn 30. mars // Verslun Líflands - Kl. 10:00-12:00
Kirkjubæjarklaustur fimmtudaginn 30. mars // Félagsheimilið - Kl. 15:00-17:00
Nesjar föstudaginn 31. mars // Mánagarðar - Kl. 10:00-12:00
Breiðdalsvík föstudaginn 31. mars // Kl. 16:00-18:00
Egilsstaðir laugardaginn 1. apríl // Verslun Jötuns - Kl. 9:30-12:00
Ýdalir Aðaldal laugardaginn 1. apríl // Hafralækjarskóli - Kl. 16:00-18:00
Akureyri sunnudaginn 2. apríl // Verslun Jötuns - Kl. 11:00-14:00
Varmahlíð sunnudaginn 2. apríl // Miðgarði - Kl. 16:00-18:30
Blönduós mánudaginn 3. apríl // Verslun Líflands - Kl. 9:00-11:00
Hvammstangi mánudaginn 3. apríl // Gamla mjólkurstöðin - Kl. 13:00-15:00
Króksfjarðarnes mánudaginn 3. apríl // Gamla verslun - Kl. 18:00-20:00
Búðardalur þriðjudaginn 4. apríl // KM-Þjónustan - Kl. 10:00-12:00
Borgarnes þriðjudaginn 4. apríl // Reiðhöllin - Kl. 14:00-16:00
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13 Fyrirl
estrar
á öllum stöðum
!
Gr
il
m Hriu NGi
!
Fyrirlestrar á flestum stöðum hefjast
u.þ.b. hálftíma fyrir hverja sýningu.