Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 30

Morgunblaðið - 30.03.2017, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2017 Þjóðleikhúsið óskar eftir því að fá gefins 6.107 leikfangafígúrur fyrir leiksýninguna Álfahöllin sem frum- sýnd verður á Stóra sviði leikhúss- ins 8. apríl nk. Fígúrurnar verða jafnmargar og þau börn sem líða skort á Íslandi um þessar mundir, samkvæmt rannsóknarskýrslu UNICEF, segir í tilkynningu frá leikhúsinu. Þjóðleikhúsið óskar eftir því að fá leikfangafígúrur af ýmsum stærðum og gerðum og verða þær hluti af heimi verksins og táknræn- ar fyrir börn sem líða skort á Ís- landi. „Ýmsar tegundir af leik- föngum koma til greina, svo sem bangsar, brúður, playmokallar og þess háttar fígúrur. Þeir sem vilja leggja leikhúsinu lið geta komið með leikföngin í miðasölu Þjóðleik- hússins á milli kl. 10 og 18 virka daga fram til mánudagsins 3. apr- íl,“ segir í tilkynningunni og að leikföngin muni svo fá heimili þar sem þeirra sé þörf að sýningum loknum. Á vef leikhússins segir m.a. um Álfahöllina að Þorleifur og sam- verkafólk hans sviðsetji í verkinu þætti úr sögu íslenskrar leiklistar. „Er leikhúsið síðasti raunverulegi samkomustaður samfélagsins, á tímum netvæddra samskipta og einstaklingstækja? Er leikhúsið staður þar sem er hægt að brúa bil- in í samfélagi okkar?“ er þar spurt. Listafólk leikhússins leggi af stað í óvissuferð með gleði, sköpunar- kraft og mennsku í farteskinu og bjóði þjóðinni upp á tækifæri til þess að hittast og skoða sjálfa sig í spegli listarinnar. Morgunblaðið/Golli Leikfangaleit Þorleifur Örn leik- stýrir Álfahöllinni og leitar nú 6.107 leikfangafígúra fyrir sýninguna sem verða hluti af heimi hennar. Óska eftir 6.107 leikfangafígúrum Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Barnakvikmyndahátíð er nú haldin á ný í Bíó Paradís en hún var síðast haldin þar fyrir tveimur árum. Fjöldi innlendra og erlendra kvik- mynda fyrir börn og unglinga verð- ur á dagskrá hátíðarinnar og m.a. boðið upp á fræðslusýningar fyrir skóla og viðburði sem tengjast barnamyndum. Ólafur S.K. Þor- valdz, leikari og leiklistarkennari, leiðir laugardag- inn 1. apríl nám- skeið í leiklist með sérstaka áherslu á hvernig skuli undirbúa sig fyrir áheyrnar- prufur fyrir hlut- verk í kvikmyndum og er nám- skeiðið ætlað börnum á aldrinum 9-12 ára. Sama dag mun Hilmar Sig- urðsson, framleiðandi teiknimynd- arinnar Lói – þú flýgur aldrei einn, fjalla um það hvernig tölvuteikni- myndir eru búnar til og sýna efni úr framleiðslu teiknimyndarinnar sem verður sýnd þessi jól. Skoða baksviðið Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar, segir að hátíðin sé nú haldin í fjórða sinn og að upphaflega kveikjan að henni hafi verið fræðslu- sýningar fyrir skóla sem Oddný Sen kvikmyndafræðingur hafi staðið fyr- ir og standi enn. „Við erum að kenna börnum og unglingum hugtakið kvikmyndahátíð. Það eru ekki bara sýningar á kvikmyndum heldur líka námskeið og fyrirlestrar og þau fá að skoða baksviðið og kynna sér hvað kvikmynd er, hvernig hún er búin til og hvers konar menningar- afurð hún er,“ segir Ása. „Við erum með ákveðið þema í ár, norrænt þema og opnum hátíðina með Antboy 3 sem hefur verið okkar danska ofurhetja,“ segir Ása en há- tíðin hefst kl. 17 í dag í kvikmynda- húsinu með opnunarteiti þar sem töframaður kemur m.a. fram og sýn- ing myndarinnar hefst klukkustund síðar. „Við sýnum nokkrar norskar kvik- myndir, m.a. norsku ævintýra- myndina Ævintýri á norðurslóðum þar sem börn eru að glíma við nátt- úruöflin og svo aðra ofurhetjumynd, norska, sem heitir Töffararnir en í henni eru nördar að sigra hrekkju- svín og það er frábær mynd. Síðan erum við með mynd sem heitir Sval- ir krakkar gráta ekki en hún fjallar um unga stúlku sem nýtur þess að spila fótbolta en veikist af hvítblæði. Þannig að það koma þarna inn erfið mál. Svo erum við með frumsýningu á frábærri sænskri mynd eftir Suzanne Osten sem heitir Stelpan, mamman og djöflarnir. Hún fjallar um unga stúlku sem býr hjá móður sinni sem þjáist af geðsjúkdómi, upplifir alls konar djöfla í sínum huga en dóttirin lærir að takast á við það með ímyndunaraflinu,“ segir Ása. 40 ára afmæli Klaufabárðanna Fjölbreytnin er í fyrrirúmi á há- tíðinni og þótt þema hennar sé nor- rænt koma nokkrar myndir frá lönd- um fjarri þeim í norðri. Ein slík er frá Eþíópíu, nefnist Lamb og fjallar um ungan dreng, Ephraim, sem býr með föður sínum og litlu lambi. Dag einn kemur frændi hans að máli við hann og segir honum að hann þurfi að fórna lambinu í trúarlegri athöfn en Ephraim leggur allt í sölurnar til að bjarga lambinu. Einnig verður glæný japönsk teiknimynd frum- sýnd, Sword Art Online. „Það er ekki oft sem við fáum glænýjar myndir, þetta er norræn frumsýning hjá okkur,“ segir Ása um þá mynd. Hún nefnir einnig 40 ára afmælis- mynd um Klaufabárðana tékknesku sem eru Íslendingum að góðu kunnir úr stuttum „stop motion“-myndum sem sýndar hafa verið á RÚV til fjölda ára. Klaufabárðarnir finna gamlar upptökur af sér á filmum og renna yfir klaufalega sögu sína í 80 mínútur. Ása segir sígildar barna- og ung- lingamyndir einnig á dagskrá, m.a. E.T. og Neverending Story sem og íslenskar kvikmyndir og teikni- myndir. Tilnefnd til Óskarsverðlauna Síðast en ekki síst má nefna frönsku barnamyndina Líf mitt sem kúrbítur sem tilnefnd var til Ósk- arsverðlauna í ár sem besta teikni- myndin og var einnig ein þeirra níu kvikmynda sem komust í lokaúrtak- ið fyrir bestu erlendu kvikmynd árs- ins 2016. Hún fjallar um níu ára strák sem allir kalla Kúrbít. Mamma hans er alkóhólisti og eftir að hafa vingast við lögreglumanninn Ray- mond er hann sendur á munaðar- leysingjahæli. Dvölin þar byrjar ekki vel, enda er Kúrbít mikið strítt og umhverfið framandi. En þegar á líður öðlast hann meiri virðingu og jafnvel vináttu hinna krakkana. Kvikmyndahátíðin stendur yfir í tíu daga, til og með 9. apríl og dag- skrá hennar, upplýsingar um mynd- irnar og sýningatíma má finna á vef Bíó Paradísar, bioparadis.is. Hvað er kvikmyndahátíð?  Barnakvikmyndahátíð hefst í Bíó Paradís  Fjöldi innlendra og erlendra kvikmynda fyrir börn og unglinga á dagskrá  Börn frædd um kvikmyndir með ýmsum viðburðum  Norrænt þema í ár Kúrbítur Stilla úr barnamyndinni Líf mitt sem kúrbítur sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár. Maurastrákur Ástin kemur við sögu í Antboy 3. Fertugir Klaufabárðarnir halda upp á fertugsafmælið. Ása Baldursdóttir Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla INNRÉTTINGA- OG SKÁPAHÖLDUR Í MIKLU ÚRVALI UM 400 GER ÐIR ! Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.